Fréttatíminn - 27.08.2016, Blaðsíða 36
en hún og maðurinn hennar höfðu
mestar áhyggjur af því að veislan
yrði ekki nógu skemmtileg. „Mig
hafði aldrei dreymt um að gifta mig
þannig ég hafði enga hugmynd um
hvað ég vildi. Ég byrjaði að skoða
brúðarkjóla og vissi ekki neitt. Og
skreytingar. En svo byrjar maður og
þá koma upp allskonar hugmyndir.
Það var bara eitt atriði sem við vor-
um alveg viss um að við vildum. Það
var staðsetningin – í hlöðunni í Lax-
nesi í Mosfellsdal.“
Um var að ræða hundrað manna
veislu, sem samt var mjög heimilis-
leg, að sögn Lilju. Og þar sem veislan
var uppi í Mosfellsdal ákváðu þau að
panta rútu til að ferja gestina í bæ-
inn, en til stóð að brúðhjónin færu
einnig með rútunni. Það fór hins
vegar ekki svo. „Á þeim tímapunkti
fann ég bara að ég varð að setjast
niður og fá mér heilt vínglas án þess
að nokkur væri að biðja mig um að
koma hingað eða þangað eða taka
mynd af mér. Það var búið að vera
mjög gaman, en ég fann það þarna
hvað ég var búin að fá nóg af áreiti.
Þetta var besta vínglas sem ég hef
drukkið.“ Kvöldið endaði svo á því að
Lilja og maðurinn hennar fóru heim
með vinahjónum sínum í einn drykk
og sofnuðu næstum því á sófanum
hjá þeim. Þau náðu þó að komast til
síns heima áður en það gerðist. Upp-
gefin en ánægð.
Sögðu já við skjá
Lilja segir stóra daginn hafa verið frá-
bæran í alla staði, en hún væri samt
alveg til í að prófa að upplifa hann
aftur án spennufallsins sem mynd-
aðist þegar allt var að gerast. „Mesta
stressið var reyndar bara fyrsta hálf-
tímann eftir að við komum inn. En
við vorum búin að reikna með því
þannig við undurbjuggum smá grín
í athöfninni til að létta pressuna. Við
létum Pál Óskar gefa okkur saman
á skjá,“ segir Lilja, en maðurinn
hennar þekkir til hans eftir að hafa
útbúið fyrir hann vefsíðu. „Hann var
staddur í Bandaríkjunum og komst
ekki til að syngja í brúðkaupinu, en
vildi samt gera eitthvað. Hann kom
sjálfur með þessa hugmynd, að gefa
okkur saman. Við bárum þetta undir
prestinn og honum fannst það mjög
fyndið. Þannig að einn eftirmiðdag
fyrir brúðkaupið fórum við heim til
Páls Óskars og tókum upp mynd-
band þar sem hann talaði í einhvers
konar sýndarheimi og við sögðum
já við skjá á brúðkaupsdaginn. Við
þurftum reyndar að segja aftur já við
prestinn, en það var aukaatriði.“
Brjálæðislegt bónorð
Bónorð Guðmundar til Lilju var líka
mjög frumlegt og skemmtilegt, en
það fór fram í þættinum Ísland í dag.
Hann fékk þáttastjórnendur til liðs
við sig við að gabba Lilju aðeins, svo
hann gæti beðið hennar fyrir fram-
an myndavélarnar, að fjölskyldu og
vinum viðstöddum. Með áhorfendur
heima í stofu. Hún var látin halda
að hún væri að hjálpa annarri konu
við að undirbúa bónorð til kærasta
hennar. „Mér hefði aldrei dottið í
hug að þetta myndi gerast. Þetta var
svo langt fyrir utan hans þægindara-
mma. Hann hatar alla athygli, ólíkt
mér. Mér líður eiginlega eins og
þetta hafi aldrei gerst. Þetta var svo
brjálæðislega framandi. Ég upplifði
algjöra geðshræringu þegar ég átt-
aði mig á að þetta væri að gerast.
Það fyrsta sem ég sá þegar ég kom
niður í kjallarann á Snaps var hann
með kampavínsglas og mig langaði
að fara að hágráta. En svo fór ég að
hlæja. Ég trúði því ekki að einhver
hefði gert allt þetta fyrir mig. Mér
fannst það svo skrýtið. En mjög góð
tilfinning. Svo hugsaði ég samt með
mér að ég gæti aldrei toppað þetta.
Ég hef reynt að koma honum á óvart
á afmælinu hans, en hvað gæti ég
gert? Flogið með hann til Afríku?
Fara með hann í loftbelg?“ spyr Lilja
og hlær.
Þrátt fyrir að bónorðið bæri að
með óvenjulegum hætti var Lilja
aldrei í vafa um hvert svarið yrði.
Hún hafði oft hugsað út í hvernig hún
myndi bregðast við ef þessi spurning
kæmi upp.
Eftir bónorðið átti þau svo frábært
kvöld með fjölskyldu og vinum þar
sem hún reyndi að ná sér niður á
jörðina. „Þetta var eiginlega meira
spennufall en eftir brúðkaupið. Við
höfðum talað um að gifta okkur en
ég var búin að segja við hann að hann
yrði að biðja mín. Það mátti alveg
vera bara uppi í sófa yfir sjónvarpinu.
En ég vildi ekki að við myndum sam-
mælast um að trúlofa okkur. Ég vildi
fá bónorð en þetta var svolítið sjokk.“
Meiri ró og festa
Guðmundur sagði Lilju eftir á að
hann hefði reynt að hugsa upp leið
til að biðja hennar þannig hún gæti
ekki sagt nei. Þetta varð niðurstaðan.
Svo bætti hann því að þetta yrði allt
sýnt í sjónvarpinu. „Þá fékk ég ann-
að sjokk. Þó mér finnist athygli ekki
leiðinleg þá fannst mér þetta pínu
skrýtið. Þetta var svolítið persónu-
legt.“
En hvernig líður henni svo sem
giftri konu? „Það er rosa þægilegt
að vera gift. Ég hélt þetta væri eins
og þegar maður á afmæli og vakn-
ar daginn eftir einu ári eldri án þess
að nokkuð hafi breyst. En þetta er
ekki þannig. Það er meiri ró, meiri
festa og meira öryggi. Það er auðvit-
að vinna að vera í hjónabandi. Það
getur nefnilega alveg verið hættulegt
að finna fyrir öryggi og ró. Þá getur
maður dottið í einhvern fasa þar
sem manni finnst maður ekki þurfa
að gera neitt flippað lengur. Eins og
dautt línurit. Við erum samt dugleg
að gera skemmtilega og sæta hluti og
tölum mjög mikið saman, þannig ég
held það verði ekki þannig.“
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Fengu Pál Óskar til að gefa
sig saman af sjónvarpsskjá
Lilja Katrín gekk að eiga unnusta sinn í sumar og fóru þau heldur óvenjulega leið í þeim efnum. Bónorðið var líka ansi
óvenjulegt, en það var sýnt í Ísland í dag á Stöð 2. Lilja er reyndar dugleg að gera óvenjulega hluti, en nú er hún að skip-
uleggja sólarhrings bökunarmaraþon.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, leikkona, fjölmiðlakona og áhugabakari með meiru, stofnaði kökubloggið blaka.is fyrir um ári. Hún
hafði lengi gengið með þann draum
í maganum að opna fallega síðu þar
sem hún gæti sett inn uppskriftir og
myndir af kökunum sem hún væri að
baka. Maðurinn hennar, Guðmund-
ur R. Einarsson vefari, hjálpaði henni
að láta drauminn verða að veruleika.
Hún er alltaf að fá nýjar hugmynd-
ir sem tengjast bakstri og sú nýjasta
er sólarhrings bökunarmaraþon til
styrktar Krafti, stuðningsfélagi fyrir
ungt fólk með krabbamein, og að-
standendur þess.
Bakar í heilan sólarhring
„Frænka mannsins míns var fyrir
stuttu síðan í auglýsingu fyrir Kraft.
Hún missti fótinn vegna krabba-
meins. Ég veit að það var erfitt fyr-
ir hana að stíga þetta skref en mér
finnst hún svo brjálæðislega hug-
rökk. Mér fannst hún svo góð fyrir-
mynd að gera þetta. Hún sagði mér
frá Krafti, en það er kannski ekki
mikið talað um félagið og hvað er
verið að gera þar. Hugmyndin að
bökunarmaraþoninu fæddist út frá
því. Mig langaði að gera eitthvað. Ég
nennti ekki að hlaupa í Reykjavíkur-
maraþoninu, ég hef gert það áður og
það er mjög gaman, en að vera með
tvö börn og alltaf þreytt, það hefði
liðið yfir mig,“ sagði Lilja sem einmitt
var frekar illa sofin þegar við hittu-
mst, því 14 mánaða dóttur hennar
þykir ekki gaman að sofa. Og þar fyr-
ir utan er hún að taka tennur. Dóttir-
in semsagt, ekki Lilja. En hin dóttir-
in, þessi 6 ára, sefur sem betur fer á
nóttunni.
„Ég ákvað því að fara í annars kon-
ar maraþon, aðeins lengra reyndar.
Það hefði samt örugglega tekið mig
sólarhring að hlaupa heilt maraþon,
svo þetta kemur á sama stað nið-
ur. Mér þykir bara miklu
skemmtilegra að baka
og borða kökur held-
ur en að hlaupa.“
Lilja ætlar því
að bjóða öllum
þeim sem hafa
áhuga á góðum
kökum og vilja
styrkja gott mál-
efni, heim til sín
í sólarhringslangt
kaffiboð, sem hefst
klukkan 12 á hádegi
þann 17. september
næstkomandi.
„Ég hef smá áhyggjur af því að
vera ekki með hrærivél, en ég hef
aldrei átt hrærivél. Ég nota bara
handþeytara. Það á eftir að koma í
ljós hvort ég fæ krampa í upphand-
leggina,“ segir hún hlæjandi.
Aldrei dreymt um brúðkaup
Þrátt fyrir að blaðamaður sé mikill
áhugamaður um góðar kökur getur
hann ekki haft augun af einstaklega
fallegum hælaskóm sem Lilja klæð-
ist. Hún tekur fram að þetta séu
brúðarskórnir hennar sem sáust
reyndar ekkert fyrir kjólnum þegar
hún gifti sig í sumar. Þeir fá því að
njóta sín við önnur tilefni. „Við gift-
um okkur 23. júlí síðastliðinn svo
það er bara rétt rúmur mánuður síð-
an. Þetta var ógeðslega gaman og ég
mæli með þessu.“ Lilja viðurkennir
þó að það hafi tekið á taugarnar að
skipuleggja eigin brúðkaupsveislu,
Nýgift Lilja Katrín
segir að eitthvað
hafi breyst þegar
hún og unnustinn
hennar urðu hjón.
Það sé meiri ró og
festa í sambandinu.
…viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
„Mig hafði ald
rei
dreymt um að
gifta
mig þannig ég
hafði
enga hugmyn
d um hvað
ég vildi. Ég by
rjaði að
skoða brúðark
jóla og
vissi ekki neit
t.“
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Flottur
sumarfatn ður
Kvarterma peysa á
12.900 kr.
3 litir
Stærð 36 - 52
Buxur á 15.900 kr.
5 litir
Stærð 34 - 48
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Flottur
sumarfatnaður
Kvarterma peysa á
12.900 kr.
3 litir
Stærð 36 - 52
Buxur á 15.900 kr.
5 litir
Stærð 34 - 48
íkið á myndir og verð á Facebook
Verð 11.900 kr.
3 litir: blátt, grátt, svart.
Stærð 36 - 46
- rennilás neðst á skálm
Verð 15.900 kr.
5 litir: gallablátt,
svart, hvítt, blátt,
ljóssand.
Stærð 34 - 48
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Flottur
su arfatn ður
Kvarterma peysa á
12.900 kr.
3 litir
Stærð 36 - 52
Buxur á 15.900 kr.
5 litir
Stærð 34 - 48
Gall b xur
Kíkið á myndir og verð á Facebook
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Flottur
suma fatnaður
Kvarterma peysa á
12.900 kr.
3 litir
Stærð 36 - 52
Buxur á 15.900 kr.
5 litir
Stærð 34 - 48
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Flottur
sumarfatnaður
Kvarterma peysa á
12.900 kr.
3 litir
Stærð 36 - 52
Buxur á 15.900 kr.
5 litir
Stærð 34 - 48
íkið á myndir og verð á Facebook
Verð 11.900 kr.
3 l tir: blátt, grátt, svart.
Stærð 36 - 46
- rennilás neðst á skálm
Verð 15.900 kr.
5 litir: gallablátt,
svart, hvítt, blátt,
ljóssand.
Stærð 34 - 48
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka da a k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Flottur
su arfatnaður
Kvarterma peysa á
12.900 kr.
3 litir
Stærð 36 - 52
Buxur á 15.900 kr.
5 litir
Stærð 34 - 48
Gallab xur
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Flottur
sumarfatnaður
Kvarterma peysa á
12.900 kr.
3 litir
Stærð 36 - 52
Buxur á 15.900 kr.
5 litir
Stærð 34 - 48
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Flottur
sumarfatnaður
Kvarterma peysa á
12.900 kr.
3 litir
Stærð 36 - 52
Buxur á 15.900 kr.
5 litir
Stærð 34 - 48
íkið á myndir og verð á Facebook
Verð 11.900 kr.
3 litir: blátt, grátt, svart.
Stærð 36 - 46
- rennilás neðst á skálm
Verð 15.900 kr.
5 litir: gallablátt,
svart, hvítt, blátt,
ljóssand.
Stærð 34 - 48
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Flottur
su arfatnaður
Kvarterma peysa á
12.900 kr.
3 litir
Stærð 36 - 52
Buxur á 15.900 kr.
5 litir
Stærð 34 - 48
Gallab xur
VERÐHRUN
ÚT ÖLULOK
60-80%
AFSLÁTTUR
Buxur 1.900 kr. - 6.900 kr.
Pils 900 kr. - 3.900 kr.
Kjólar 1.900 kr. - 3.900 kr.
Efri partar 900 kr. - 3.900 kr.