Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 27.08.2016, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 27.08.2016, Blaðsíða 60
Unnið í samstarfi við VON Hjónin Einar Hjalta-son og Kristjana Þura Bergþórsdóttir höfðu lengi gengið með þann draum í maganum að opna veitingahús þar sem áhugi þeirra og ástríða fyrir „local“ matar- menningu og matargerð fengi að njóta sín. Rétt fyrir fæðingu frumburðarins, árið 2014, ákváðu þau að koma sér fyrir í Hafnar- firðinum og þá lá beinast við að láta drauminn rætast í nánasta umhverfi. Útkoman varð VON Mathús sem er staðsett í hjarta Hafnarfjarðar, á hafnar svæðinu sem er í miklum blóma. Einar hefur yfirgripsmikla reynslu úr veitingageiranum og var síð- ast á KOL á Skólavörðustíg og Kristjana hefur unnið í hótel- og veitingageiranum í yfir áratug. Hún er fædd og uppalin í Hafnar- firði og þannig var það enn meira viðeigandi að hefja rekstur þar. Mathúsið er staðsett í húsi sem kallast Drafnarhúsið, þar var skipasmíðastöðin Dröfn áður fyrr. Hönnun staðarins er með vísan í fyrri starfsemi. „Við erum með sjávarþema á staðnum, mikið stál og gamlar myndir úr skípasmíða- stöðinni, reyndum að halda dá- lítið í þennan hafnarfíling,“ segir Kristjana. Á matseðlinum er lögð áhersla á ferskt fiskmeti sem þarf að sækja sem styst og árstíða- bundið hráefni. „Við reynum að versla eins mikið og við getum í nærumhverfi okkar, gerum allt frá grunni og vöndum valið á hrá- efninu,“ segir Kristjana. Um helgar er boðið upp á brönsseðil þar sem áhersla er lögð á notalega fjölskyldu- stund. Ekki var farin hefðbund- in leið í að ákveða seðilinn; þar er ekkert beikon eða bakaðar baunir að finna. Hins vegar er til dæmis hægt að fá íslenska vöfflu með reyktum laxi, grænkáli og eggjakremi, hægeldaða svínasíðu og heimagert granóla. VON í hjarta Hafnarfjarðar Ástríða fyrir matarmenningu í forgrunni. Vistvæn og sjálfbær ræktun 400 tonn af salati á ári. Unnið í samstarfi við Lambhaga Lambhagi er tæplega 40 ára gamalt fyrirtæki sem hefur verið í stöð-ugum vexti frá stofn- un þess. „Við reiknum með að framleiðslan verði í ár um 400 tonn,“ segir Magnús Stefánsson garðyrkjumaður. „Við ræktum allt árið og notum þar af leiðandi mikið ljós, verðum að lýsa mikið alla vetrarmánuðina. Það er ekki mikið minni framleiðsla yfir vet- urinn. Eins og er önnum við vart eftirspurn. Við erum með þrjá stóra dreifingarðila sem sjá til þess að salatið sé fáanlegt um allt land en keyrum líka aðeins út sjálf í verslanir og á veitinga- staði,“ segir Magnús. Lollo Rosso á leiðinni í búðir Hefðbundna blaðsalatið, hið eina sanna Lambhagasalat, þekkja flestir enda er það eins konar flaggskip Lambhaga. Nokkuð er ræktað af kryddjurtum einnig sem og íssalat og nokkur tonn af spínatkáli sem nýtur mikilla vin- sælda. „Svo vorum við að byrja að framleiða salat sem heitir Lollo Rosso, það verður komið í verslanir fljótlega. Þetta er mjög gott salat og góður litur í því.“ Engin eiturefni Hjá Lambhaga eru menn meðvit- aðir um umhverfi sitt og mik- ilvægi þess að stuðla að sjálf- bærni. „Við erum með algerlega vistvæna ræktun, notum engin eiturefni og vörunnar má neyta án þess að þvo hana, bara beint úr pokanum. Við ráðum yfir 15000 fermetrum og þetta er í dag stærsta garðyrkjufyrir- tæki landins og það inni í miðri Reykjavík,“ segir Magnús. Plastpottarnir liðin tíð Hjá Lambhaga vinna 25-30 manns. Stöðin er afar tæknivædd og sjálfvirk að stórum hluta. „Við ræktum allt á færiböndum og leggjum mikið upp úr snyrti- mennsku. Við erum líka alltaf að verða vistvænni, nú erum hætt að rækta í plastpottum og rækt- um allt í pappapottum sem eyð- ast á 6 vikum.“ Gísli Matthías verður á Hlemmi Mathöllin opnar í desember ef allt gengur upp. G ísli Matthías Auðuns- son, yfirkokkur og eig- andi Matar og drykks og Slippsins í Vest- mannaeyjum, verður einn þeirra veitingamanna sem verður með rekstur í mathöllinni á Hlemmi. Staðinn mun hann reka ásamt Birni Steinari Jónssyni sem kenndur er við Saltverk. „Þetta verður kokkteila- og bjórbar með íslenskum smáréttum,“ segir Gísli sem hlakkar til að takast á við nýja áskorun. Haukur Már Gestsson, annar framkvæmdastjóra mathallar- innar, segir allt komið á fullt fyrir alvöru og ótrautt sé stefnt á opnun í desember. Búið er að rífa allt út úr húsinu, byrjað á lögnum og öðru þannig að ef allt gengur upp mun mathöllin opna dyrnar sínar í desember. Auk staðar Gísla og Björns verð- ur á Hlemmi grænmetisverslun þar sem einungis verður fáanlegt íslenskt grænmeti, kryddjurtir og ber. Áður hafði verið tilkynnt um staðina Urban Pasta sem verð- ur ítalskur bístró þar sem pastað er gert á staðnum og Te og kaffi micro roast kaffibar. Tilkynnt verður um fleiri staði á allra næstu vikum. LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 201616 MATARTÍMINN Lollo Rosso Þetta fallega kóralrauða salat verður fáanlegt innan tíðar í öllum verslunum. Mynd | Rut Grænir fingu Magnús Stefánsson garðyrkjumaður leggur áherslu á vistvæna og sjálfbæra ræktun. Mynd | Rut
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.