Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 27.08.2016, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 27.08.2016, Blaðsíða 36
en hún og maðurinn hennar höfðu mestar áhyggjur af því að veislan yrði ekki nógu skemmtileg. „Mig hafði aldrei dreymt um að gifta mig þannig ég hafði enga hugmynd um hvað ég vildi. Ég byrjaði að skoða brúðarkjóla og vissi ekki neitt. Og skreytingar. En svo byrjar maður og þá koma upp allskonar hugmyndir. Það var bara eitt atriði sem við vor- um alveg viss um að við vildum. Það var staðsetningin – í hlöðunni í Lax- nesi í Mosfellsdal.“ Um var að ræða hundrað manna veislu, sem samt var mjög heimilis- leg, að sögn Lilju. Og þar sem veislan var uppi í Mosfellsdal ákváðu þau að panta rútu til að ferja gestina í bæ- inn, en til stóð að brúðhjónin færu einnig með rútunni. Það fór hins vegar ekki svo. „Á þeim tímapunkti fann ég bara að ég varð að setjast niður og fá mér heilt vínglas án þess að nokkur væri að biðja mig um að koma hingað eða þangað eða taka mynd af mér. Það var búið að vera mjög gaman, en ég fann það þarna hvað ég var búin að fá nóg af áreiti. Þetta var besta vínglas sem ég hef drukkið.“ Kvöldið endaði svo á því að Lilja og maðurinn hennar fóru heim með vinahjónum sínum í einn drykk og sofnuðu næstum því á sófanum hjá þeim. Þau náðu þó að komast til síns heima áður en það gerðist. Upp- gefin en ánægð. Sögðu já við skjá Lilja segir stóra daginn hafa verið frá- bæran í alla staði, en hún væri samt alveg til í að prófa að upplifa hann aftur án spennufallsins sem mynd- aðist þegar allt var að gerast. „Mesta stressið var reyndar bara fyrsta hálf- tímann eftir að við komum inn. En við vorum búin að reikna með því þannig við undurbjuggum smá grín í athöfninni til að létta pressuna. Við létum Pál Óskar gefa okkur saman á skjá,“ segir Lilja, en maðurinn hennar þekkir til hans eftir að hafa útbúið fyrir hann vefsíðu. „Hann var staddur í Bandaríkjunum og komst ekki til að syngja í brúðkaupinu, en vildi samt gera eitthvað. Hann kom sjálfur með þessa hugmynd, að gefa okkur saman. Við bárum þetta undir prestinn og honum fannst það mjög fyndið. Þannig að einn eftirmiðdag fyrir brúðkaupið fórum við heim til Páls Óskars og tókum upp mynd- band þar sem hann talaði í einhvers konar sýndarheimi og við sögðum já við skjá á brúðkaupsdaginn. Við þurftum reyndar að segja aftur já við prestinn, en það var aukaatriði.“ Brjálæðislegt bónorð Bónorð Guðmundar til Lilju var líka mjög frumlegt og skemmtilegt, en það fór fram í þættinum Ísland í dag. Hann fékk þáttastjórnendur til liðs við sig við að gabba Lilju aðeins, svo hann gæti beðið hennar fyrir fram- an myndavélarnar, að fjölskyldu og vinum viðstöddum. Með áhorfendur heima í stofu. Hún var látin halda að hún væri að hjálpa annarri konu við að undirbúa bónorð til kærasta hennar. „Mér hefði aldrei dottið í hug að þetta myndi gerast. Þetta var svo langt fyrir utan hans þægindara- mma. Hann hatar alla athygli, ólíkt mér. Mér líður eiginlega eins og þetta hafi aldrei gerst. Þetta var svo brjálæðislega framandi. Ég upplifði algjöra geðshræringu þegar ég átt- aði mig á að þetta væri að gerast. Það fyrsta sem ég sá þegar ég kom niður í kjallarann á Snaps var hann með kampavínsglas og mig langaði að fara að hágráta. En svo fór ég að hlæja. Ég trúði því ekki að einhver hefði gert allt þetta fyrir mig. Mér fannst það svo skrýtið. En mjög góð tilfinning. Svo hugsaði ég samt með mér að ég gæti aldrei toppað þetta. Ég hef reynt að koma honum á óvart á afmælinu hans, en hvað gæti ég gert? Flogið með hann til Afríku? Fara með hann í loftbelg?“ spyr Lilja og hlær. Þrátt fyrir að bónorðið bæri að með óvenjulegum hætti var Lilja aldrei í vafa um hvert svarið yrði. Hún hafði oft hugsað út í hvernig hún myndi bregðast við ef þessi spurning kæmi upp. Eftir bónorðið átti þau svo frábært kvöld með fjölskyldu og vinum þar sem hún reyndi að ná sér niður á jörðina. „Þetta var eiginlega meira spennufall en eftir brúðkaupið. Við höfðum talað um að gifta okkur en ég var búin að segja við hann að hann yrði að biðja mín. Það mátti alveg vera bara uppi í sófa yfir sjónvarpinu. En ég vildi ekki að við myndum sam- mælast um að trúlofa okkur. Ég vildi fá bónorð en þetta var svolítið sjokk.“ Meiri ró og festa Guðmundur sagði Lilju eftir á að hann hefði reynt að hugsa upp leið til að biðja hennar þannig hún gæti ekki sagt nei. Þetta varð niðurstaðan. Svo bætti hann því að þetta yrði allt sýnt í sjónvarpinu. „Þá fékk ég ann- að sjokk. Þó mér finnist athygli ekki leiðinleg þá fannst mér þetta pínu skrýtið. Þetta var svolítið persónu- legt.“ En hvernig líður henni svo sem giftri konu? „Það er rosa þægilegt að vera gift. Ég hélt þetta væri eins og þegar maður á afmæli og vakn- ar daginn eftir einu ári eldri án þess að nokkuð hafi breyst. En þetta er ekki þannig. Það er meiri ró, meiri festa og meira öryggi. Það er auðvit- að vinna að vera í hjónabandi. Það getur nefnilega alveg verið hættulegt að finna fyrir öryggi og ró. Þá getur maður dottið í einhvern fasa þar sem manni finnst maður ekki þurfa að gera neitt flippað lengur. Eins og dautt línurit. Við erum samt dugleg að gera skemmtilega og sæta hluti og tölum mjög mikið saman, þannig ég held það verði ekki þannig.“ Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti. Fengu Pál Óskar til að gefa sig saman af sjónvarpsskjá Lilja Katrín gekk að eiga unnusta sinn í sumar og fóru þau heldur óvenjulega leið í þeim efnum. Bónorðið var líka ansi óvenjulegt, en það var sýnt í Ísland í dag á Stöð 2. Lilja er reyndar dugleg að gera óvenjulega hluti, en nú er hún að skip- uleggja sólarhrings bökunarmaraþon. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Lilja Katrín Gunnarsdóttir, leikkona, fjölmiðlakona og áhugabakari með meiru, stofnaði kökubloggið blaka.is fyrir um ári. Hún hafði lengi gengið með þann draum í maganum að opna fallega síðu þar sem hún gæti sett inn uppskriftir og myndir af kökunum sem hún væri að baka. Maðurinn hennar, Guðmund- ur R. Einarsson vefari, hjálpaði henni að láta drauminn verða að veruleika. Hún er alltaf að fá nýjar hugmynd- ir sem tengjast bakstri og sú nýjasta er sólarhrings bökunarmaraþon til styrktar Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk með krabbamein, og að- standendur þess. Bakar í heilan sólarhring „Frænka mannsins míns var fyrir stuttu síðan í auglýsingu fyrir Kraft. Hún missti fótinn vegna krabba- meins. Ég veit að það var erfitt fyr- ir hana að stíga þetta skref en mér finnst hún svo brjálæðislega hug- rökk. Mér fannst hún svo góð fyrir- mynd að gera þetta. Hún sagði mér frá Krafti, en það er kannski ekki mikið talað um félagið og hvað er verið að gera þar. Hugmyndin að bökunarmaraþoninu fæddist út frá því. Mig langaði að gera eitthvað. Ég nennti ekki að hlaupa í Reykjavíkur- maraþoninu, ég hef gert það áður og það er mjög gaman, en að vera með tvö börn og alltaf þreytt, það hefði liðið yfir mig,“ sagði Lilja sem einmitt var frekar illa sofin þegar við hittu- mst, því 14 mánaða dóttur hennar þykir ekki gaman að sofa. Og þar fyr- ir utan er hún að taka tennur. Dóttir- in semsagt, ekki Lilja. En hin dóttir- in, þessi 6 ára, sefur sem betur fer á nóttunni. „Ég ákvað því að fara í annars kon- ar maraþon, aðeins lengra reyndar. Það hefði samt örugglega tekið mig sólarhring að hlaupa heilt maraþon, svo þetta kemur á sama stað nið- ur. Mér þykir bara miklu skemmtilegra að baka og borða kökur held- ur en að hlaupa.“ Lilja ætlar því að bjóða öllum þeim sem hafa áhuga á góðum kökum og vilja styrkja gott mál- efni, heim til sín í sólarhringslangt kaffiboð, sem hefst klukkan 12 á hádegi þann 17. september næstkomandi. „Ég hef smá áhyggjur af því að vera ekki með hrærivél, en ég hef aldrei átt hrærivél. Ég nota bara handþeytara. Það á eftir að koma í ljós hvort ég fæ krampa í upphand- leggina,“ segir hún hlæjandi. Aldrei dreymt um brúðkaup Þrátt fyrir að blaðamaður sé mikill áhugamaður um góðar kökur getur hann ekki haft augun af einstaklega fallegum hælaskóm sem Lilja klæð- ist. Hún tekur fram að þetta séu brúðarskórnir hennar sem sáust reyndar ekkert fyrir kjólnum þegar hún gifti sig í sumar. Þeir fá því að njóta sín við önnur tilefni. „Við gift- um okkur 23. júlí síðastliðinn svo það er bara rétt rúmur mánuður síð- an. Þetta var ógeðslega gaman og ég mæli með þessu.“ Lilja viðurkennir þó að það hafi tekið á taugarnar að skipuleggja eigin brúðkaupsveislu, Nýgift Lilja Katrín segir að eitthvað hafi breyst þegar hún og unnustinn hennar urðu hjón. Það sé meiri ró og festa í sambandinu. …viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 „Mig hafði ald rei dreymt um að gifta mig þannig ég hafði enga hugmyn d um hvað ég vildi. Ég by rjaði að skoða brúðark jóla og vissi ekki neit t.“ Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatn ður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 íkið á myndir og verð á Facebook Verð 11.900 kr. 3 litir: blátt, grátt, svart. Stærð 36 - 46 - rennilás neðst á skálm Verð 15.900 kr. 5 litir: gallablátt, svart, hvítt, blátt, ljóssand. Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur su arfatn ður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Gall b xur Kíkið á myndir og verð á Facebook Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur suma fatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 íkið á myndir og verð á Facebook Verð 11.900 kr. 3 l tir: blátt, grátt, svart. Stærð 36 - 46 - rennilás neðst á skálm Verð 15.900 kr. 5 litir: gallablátt, svart, hvítt, blátt, ljóssand. Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka da a k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur su arfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Gallab xur Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 íkið á myndir og verð á Facebook Verð 11.900 kr. 3 litir: blátt, grátt, svart. Stærð 36 - 46 - rennilás neðst á skálm Verð 15.900 kr. 5 litir: gallablátt, svart, hvítt, blátt, ljóssand. Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur su arfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Gallab xur VERÐHRUN ÚT ÖLULOK 60-80% AFSLÁTTUR Buxur 1.900 kr. - 6.900 kr. Pils 900 kr. - 3.900 kr. Kjólar 1.900 kr. - 3.900 kr. Efri partar 900 kr. - 3.900 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.