Fréttatíminn - 27.08.2016, Blaðsíða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 27. ágúst 2016
20 ára
Bæði í
kennaranámi
23 ára
Annað byrjar
í vinnu
25 ára
Fyrsta barn
fæðist 26 ára
Hitt byrjar
í vinnu
43 ára
Eldra barnið
18 ára
30 ára
Kaupa íbúð
VONDU KERFIN:
HÚSNÆÐISKERFIÐ
Noregur er eina landið í
okkar heimshluta þar sem
hlutfall séreignar er svip-
að og á Íslandi. Þar hefur
launafólk hins vegar hærri
tekjur, borgar lægri skatta,
fær ríkulegri barna- og
vaxtabætur og borgar
lægri vexti en Íslendingar.
Til að halda uppi jafn
háu hlutfalli séreignar og
tryggja láglaunafólki og
fólki með lægri millitekjur
öruggt húsaskjól, þyrftu
Íslendingar að aðlaga launa-
og skattkerfi sitt að því
norska.
Gunnar Smári Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Noregur: Hærri laun og lægri skattar, hærri bætur og lægri vextir
Til að átta okk-
ur á muninum
milli landanna
bjuggum við
til tvö ímynd-
uð pör, annað
norskt og hitt
íslenskt. Við byrjum að fylgjast
með þeim þar sem þau eru í námi á
námslánum. Annað útskrifast eft-
ir þriggja ára háskólanám og hitt
eftir fimm ár. Bæði starfa eftir það
sem kennarar allan tímann og fær-
ast upp launastigann eftir aldurs-
hækkunum. Þau eignast barn 25
ára og annað barn um þrítugt. Frá
tvítugu til 25 leigja þau litla íbúð,
nokkuð stærri næstu fimm árin en
kaupa síðan íbúð um þrítugt sem
þau búa í fram
á lífeyrisaldur.
Þetta er sem
sé hið dæmi-
gerða fólk,
sem er svo
dæmigert að það er líklega
ekki til. En það dugar okkur til að
sjá meginútlínur þeirra kerfa sem
Norðmenn og Íslendingar hafa
byggt í kringum líf venjulegs fólks.
Verra fyrir ungmenni
Meðan pörin eru á námslánum er
staða íslenska parsins betri. Fram-
færslulán eru hér hærri og parið
fær auk þess húsaleigubætur. Slík-
ar bætur fást ekki í Noregi nema
fólk sé með mjög litla innkomu eða
borgi svimandi leigu. Húsaleiga í
Reykjavík og Osló er viðlíka há svo
leigan hefur ekki áhrif á saman-
burðinn.
Þegar náminu lýkur breytast 40
prósent af námslánaskuld norska
parsins í styrk. Í lok námstímans
skuldar það 6,8 milljónir króna á
meðan íslenska parið skuldar þá
12,7 milljónir króna, að hluta til
vegna þess að það fékk meira lán-
að en að mestu vegna þess að þau
fá ekki styrk og lánin bera hærri
vexti.
Barnabætur hærri
Þegar skólagöngu lýkur og fyrra
barnið fæðist er annar aðilinn
kominn út á vinnumarkaðinn á
meðan hitt er að ljúka námi. Þá
batnar hagur Norðmanna meira,
bæði vegna þess að launin eru um
14 prósent hærri í upphafi starfs-
ferilsins og barnabætur veiga-
meiri. Í Noregi fær hvert barn
13.775 krónur á mánuði eða 165
þúsund krónur á ári. Íslenskar
parið fær hins vegar engar barna-
bætur með sínu fyrsta barni. Það
er ekki fyrr en börnin eru orðin
tvö að íslenska parið fær fyrst 167
þúsund krónur en síðan lækkar sú
upphæð ört eftir því sem launin
hækka eftir því sem parið færist
upp launastigann.
Þegar íslenska parið fær 167 þús-
und á mánuði í barnabætur fær
V I Ð E R U M H L U T I
A F G Ó Ð U F E R ÐA L AG I
16
-1
62
0
—
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Gunnlaugur er flugvallarstarfsmaður og það er meðal annars í hans verkahring að sjá um að öll ljós á Akureyrarflugvelli
séu í góðu lagi. Þannig er Gunnlaugur hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um Akureyrarflugvöll.
Freydís er á leið til ömmu og afa á Akureyri með mömmu sinni, henni Jónu.
Freydís hefur ótrúlega gaman af að fljúga og gæti vel hugsað
sér að verða flugmaður þegar hún verður stór.
Hjá Isavia starfar samhentur hópur starfsmanna. Markmið okkar er
að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra 30 milljóna farþega sem fara
um flugvelli og flugstjórnarsvæði okkar árlega.
Okkar hlutverk er að tryggja öryggi þeirra allra og gera för þeirra sem
ánægjulegasta. Við erum að vaxa og þurfum að fjölga í liðinu okkar
til að bregðast við sífelldri fjölgun farþega. Við bjóðum upp á gott og
fjölskylduvænt starfsumhverfi, öfluga fræðslu og þjálfun og leggjum
áherslu á jákvæðan starfsanda innan fyrirtækisins.
Kynntu þér störfin sem standa til boða hjá Isavia og vertu
hluti af góðu ferðalagi með okkur
isavia.is/atvinna
facebook.com/isaviastorf
23%
Ri sent. Pio intiemo revicie
ndum se auc re concerum.