Fréttatíminn - 27.08.2016, Side 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 27. ágúst 2016
Nokkrir klíkufélagar í eignarhaldsfélagi Kaup-þings skipta bróðurlega á milli sín 1500 milljónum
og kalla það bónus.
Forstöðukona á barnaheimili þarf
að gefa hundrað manns að borða
þrisvar á dag, fyrir 30 þúsund krón-
ur.
Braskarar dusta rykið af úreltu
borgarskipulagi frá því fyrir hrun
og reikna út að það eigi að greiða
þeim mörg hundruð milljónir fyrir
að leyfa gömlum húsum að standa.
Af því það væri vel hægt að byggja
hótel í staðinn. Eða bara eitthvað
annað.
Öryrkjar og sjúklingar selja lyf-
in sín á Facebook til að eiga fyrir
mat og húsaleigu. Einhvers staðar
í myrkrinu, í helgarskarkalanum
hnígur ungur maður niður fyr-
ir utan veitingahús eftir of stóran
skammt af verkjalyfi og félagi hans
reynir að blása í hann lífi.
Þetta er bara brot úr síbyljunni úr
fréttum vikunnar en úr því má lesa
hvað það virðist vera flókið að skapa
hérna samfélag fyrir alla.
Sérstaklega þar sem stjórnmála-
mennirnir, sem eiga að skapa
reglurnar í sambúðinni, segja sjálf-
töku bankamannanna siðlausa.
Þeir segjast elska gömul hús, börn
og öryrkja og fátt vilji þeir meira en
standa vörð um okkur öll og gæta
þess að við getum haft gömul hús
og fallega náttúru í kringum okkur
þegar við viljum.
Og nema hvað?
Auðvitað er eitthvað að þegar fá-
einir starfsmenn í eignarhaldsfélagi
Kaupþings geta skipt á milli sín 1500
milljónum en ekki eru til peningar
til að gefa smábörnum almennilega
að borða. Lítil börn sem feta hik-
andi fyrstu skrefin á skólagöngunni,
með trúnaðartraust í augum og bak-
pokana á bakinu.
Eru þau ekki það verðmætasta
sem við eigum?
Eru st jórnmálamennirnir
kannski verðmætari? Er það þess
vegna sem við niðurgreiðum fyrir
þá góðan og hollan mat en ætlumst
til að börnin borði þrisvar á dag fyr-
ir 300 krónur?
Hælisleitendur eru sendir úr
landi í kippum, ungir, gamlir,
ófrískar konur, börn og jafnvel fár-
sjúkt fólk.
Mannúðin kostar peninga.
Inn eru f luttir erlendir verka-
menn til að vinna fyrir lág laun
og búa í vinnubúðum. Það þarf að
halda vélinni gangandi.
Landspítalinn sendir innheimtu-
lögfræðinga á skjólstæðinga sína til
að rukka fyrir veitta þjónustu á geð-
deild. Það vantar peninga til að reka
spítala og sjúklingar fá ekki liggja
þar. Þeir eru sendir fárveikir heim
og unglingum í sjálfsvígshættu er
vísað út á götu.
Á meðan liggja milljarðar ríkasta
fólks landsins á aflandsreikningum
og þrír ráðherrar þurfa aldrei að
sýna fram á svart á hvítu hvort þeir
notuðu sín aflandsfélög til að svíkja
undan skatti líkt og þorri þeirra sem
eru í sömu sporum.
Það ríkir leynd yfir fjármálum
þeirra sem einstaklinga.
En þeir elska samt sjúklinga og
vilja reka heilbrigðiskerfi fyrir alla.
En þetta kostar bara svo mikið af
peningum. Róm var ekki byggð á
einum degi og allt það.
„Af hverju er heilbrigðiskerfið svo
heilagt að ekki megi taka áhættu og
finna upp á einhverju nýju ef það
heitir velferð og heilbrigðiskerfi,“
spyr borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins sem vill verða þingmaður
og setur sig í stellingar.
Já maður spyr sig.
Það er auðvitað líka kominn verð-
miði á sjúklinga. En bara suma. Hin-
ir eru ókeypis og bráðum vill þá
enginn.
Hvarvetna blakta verðmiðarnir í
golunni. Það kostar að leyfa ám að
streyma, að leyfa hverum að bulla,
að leyfa gömlum húsum að standa
og sólinni að skína. Það kostar pen-
inga að elska. Og það kostar peninga
að gefa litlum börnum að borða.
Og útgerðarmenn réðu sér nýjan
framkvæmdastjóra í vikunni. Einu
sinni var hann talsmaður þess að
ekkert væri athugavert að láta al-
menning borga auðmönnum pen-
inga fyrir að horfa á fallega náttúru.
Nú er hann orðin talsmaður þeirra
auðmanna sem vilja veiða fiskinn í
sjónum án þess að borga markaðs-
verð til almennings.
Alls staðar rekur almenningur
sig á ómöguleikann og ósýnilega
veggi reiknimeistara kapítalism-
ans, þegar kemur að því sem skipt-
ir máli.
En þegar útgerðarmenn slá eign
sinni á fiskinn í sjónum og kallaklík-
an í Kaupþingi ætlar að skipta á
milli sín 1500 milljónum halda
engar girðingar.
Í raun gæti maður haldið að það
væri vegna þess að þetta fólk væri
það verðmætasta sem við eigum.
En í raun er það öfugt.
Við erum það verðmætasta sem
það á. Með nægum fagurgala verður
bráðum hægt að rukka okkur líka
fyrir andrúmsloftið sem við drög-
um að okkur.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
ÞAÐ ER DÝRT
AÐ VERA
MANNESKJA
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Í Framsóknarflokknum er undirbúningur
fyrir flokksþing í fullum gangi.