Fréttatíminn - 27.08.2016, Side 14
Ella María Georgsdóttir er
15 ára og keypti sér miða á
báða tónleika Justin Bieber
fyrir fermingarpeningana
sína. Hún segir það erfiðasta
við að elska Bieber vera að
lesa ljótar athugasemdir um
hann á netinu.
„Stóra frænka mín sagði mér fyrst
frá Justin Bieber. Hún sagði að
hann væri asnalegur og syngi eins
og stelpa. Í byrjun þorði ég ekki að
viðurkenna hvað mér fannst hann
flottur og hlustaði bara á hann í
leyni. Pabbi minn var heldur ekkert
mikið fyrir hann, þannig að þegar
ég stalst í tölvuna hans til að hlusta
á hann á netinu, þá notaði ég bara
heyrnartól.“
Myndirðu segja að þú værir skotin
í honum?
„Að sjálfsögðu. Ég er búin að
vera það í svona fjögur eða fimm
ár.“
Hvernig er að vera skotin í honum?
„Mér líður svo vel þegar ég heyri
lögin hans. Þegar mér líður illa og
þarf að gráta, þá get ég notað lögin
hans til að koma mér til að gráta. Ég
get líka látið mér líða betur með því
að hlusta á þau. Og þegar mér líður
vel, þá get ég notað lögin hans til að
líða ennþá betur.
Stundum hugsa ég til hans þegar
ég þarf að gera eitthvað sem mér
finnst erfitt. Eins og þegar ég er í
íþróttum, og ég er sko ekki mikil
íþróttamanneskja, þá segi ég við
sjálfa mig að ef ég klára bara þessa
æfingu, þá eigi ég pottþétt eftir að
hitta hann einhverntíma. Og það
virkar!
Mér finnst samt erfitt að vera
ástfangin af honum af því að ég hef
aldrei hitt hann. Ég veit að hann
elskar mig ekki til baka en mér líð-
ur samt eins og við séum í fjarsam-
bandi.“
Eitt af því sem Ellu Maríu finnst
erfitt við að vera skotin í Bieber,
er að lesa allar ljótu athugasemd-
irnar sem skrifaðar eru um hann
á netinu. „Ég kynni mig oftast sem
Ellu Maríu Bieber þegar ég hitti
fólk, og þá fæ ég alltaf einhver nei-
kvæð komment, um að hann reyki
gras eða sé alltaf að lenda í slags-
málum eða eitthvað álíka. Ég þoli
það ekki.”
Er það þá ekki satt?
„Jú, en það þarf ekki alltaf að ein-
blína á það neikvæða. Hann hefur
alltaf verið viðkvæm og góð mann-
eskja. Hann hefur sett fáránlega
mikla peninga í góð málefni og ég
held að hann sé að reyna sitt besta.
En hatararnir eru svo leiðinleg-
ir við hann og eru sífellt að dæma
hann. Öllum myndi líða illa við að
fá svona athugasemdir og það gerir
allt svo margfalt verra. Það hefur
komið honum í þennan félagsskap
og þetta rugl.”
Hefur hann reynt að taka sig á?
„Já, ég held að það en það hefur
bara ekki gengið alveg nógu vel. Ég
trúi því að hann sé að reyna.“
Hvernig hugsarðu til hans?
„Ég get eiginlega ekki lýst því.
Þetta er allt mjög eðlilegt hjá mér,
en mér finnst samt mjög óraun-
verulegt að hann sé til í alvöru.
Mér finnst stundum eins og hann
sé bara til í hausnum á mér. Ég fæ
gæsahúð þegar ég sé myndir af
honum. Sama þegar hann syngur.
Einu sinni póstaði hann vídeóum
á Instagram, af sér að syngja með
enga tónlist undir, og ég bara missti
mig. Mér leið svo óendanlega vel,
allar áhyggjur hurfu. Ég upplifði
raunverulega hamingju. Og 100%
ást.“
Hvernig á þér eftir að líða þegar þú
færð loks að sjá hann?
„Ég er svo stressuð fyrir þessa
tónleika, ég byrja að titra við til-
hugsunina. Ég er svo hrædd um að
lenda einhvers staðar aftast og sjá
ekkert, eða að miðinn minn rifni
áður en ég kemst inn. Eða bara að
eitthvað klikki. Ég er svo hrædd
um að ég fái ekki að sjá hann. Ég er
samt komin með leyfi frá skólanum
báða dagana, til þess að geta mætt
snemma. Ég samdi við mömmu
þegar við keyptum miðana, um að
ég fengi frí úr skólanum báða dag-
ana sem tónleikarnir eru.“
Aðspurð um hvernig hún varð sér
út um miða, segir Ella María: „Ég
keypti þá sjálf fyrir fermingarpen-
ingana mína. Fyrst áttu bara að vera
einir tónleikar og foreldrar mín-
ir leyfðu mér að kaupa einn miða.
En svo komu aukatónleikarnir og
ég gat ekki sleppt þeim. Mamma
og pabbi vita að þetta er það eina
sem ég vil þannig að þau leyfðu mér
að kaupa annan. Þetta hefur verið
draumur minn í svo mörg ár. Ég veit
ekki hversu mörg bréf ég hef skrif-
að til hans, og sjónvarpskonunnar
Ellen DeGeneres, og fleiri í gegnum
tíðina, til að biðja um að hann héldi
tónleika á Íslandi.“
Hefurðu elskað einhvern annan
svona mikið?
„Já, íslenska söngvarann Jón
Jónsson. Ég elska hann jafn mikið
og Justin Bieber. Ég gleymi því ekki
þegar ég sá hann fyrst í sjónvarp-
inu. Ég elska sem sagt tvo.“
Heldurðu að þeir beri tilfinningar til
þín?
„Nei, það truflar mig ekki að þeir
séu ekki skotnir í mér. Ég elska þá
bara óendanlega mikið. Mér finnst
alveg nóg að fá lögin þeirra.“
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 27. ágúst 2016
„Ég veit að hann
elskar mig ekki til
baka en mér líður
samt eins og við
séum í fjarsam-
bandi.“
Ástfangnar af Justin Bieber
Ör hjartsláttur. Gæsahúð. Vonbrigði. Gleðihrollur. Að vera ástfangin af Justin Bieber er ekki
svo ólíkt því að vera ástfangin af öðrum. Fréttatíminn ræddi við nokkrar stelpur sem telja
stærstu stund lífs síns vera í aðsigi. Þegar poppstjarnan, sem þær elska, kemur fram á Íslandi.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Líður eins og í fjarsambandi
Ella María Georgsdóttir segist hafa upplifað raunverulega hamingju og hundrað prósent ást þegar Justin Bieber setti myndbönd af sér syngja, án undirleiks, á Instagram.
Mynd | Rut