Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 27.08.2016, Page 26

Fréttatíminn - 27.08.2016, Page 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 27. ágúst 2016 GOTT UM HELGINA Glæðingamessa Hljómsveitin Eva vinnur nú að Glæðingamessu sem fram- in verður í Fríkirkjunni, í dag, laugardaginn 27. ágúst. Þar ætla þær að glæða kulnaðar sálir lífi. Hljómsveitin Eva ætlar sér að ávarpa þetta alvarlega mál- efni sem við þurfum að horfast í augu við sem samfélag. „Við ætlum að bjarga heiminum undan dugnaðinum og við telj- um okkur vera með lausnina. Við þurfum að vera miklu lat- ari. Þetta er svo „beisikk“. Við erum öll föst í hamstrahjólinu, við framleiðum allt of mikið, svo mikið að við erum að kaf- færa jörðinni okkar, við vinn- um svo mikið að við erum öll að brenna út, missa tengslin og týna okkur sjálfum. Nú þurfum við bara að hafa hugrekki til þess að stoppa hjólið. Við þurf- um að slaka á og leggja okkur á daginn, gera ekkert og stefna bara að því almennt í lífinu að vera sirka 60%.“ Þó þetta fari fram í Fríkirkj- unni þá er þessi samkoma þver- -menningarleg og þver-trúarleg og allir hjartanlega velkomnir og ókeypis inn. Hvar? Fríkirkjan Hvenær? 27. ágúst kl. 19 Hvað kostar? Frítt Rokkhátíð æskunnar Ritvélar sem spila músík Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar munu halda tónleika á Græna hattinum í kvöld. Hljómsveitin er annáluð fyrir lifandi flutning á lög- um og textum Jónasar og sumir vilja meina að þau séu hvergi betri en einmitt á Græna hattinum og oftar en ekki komast færri að en vilja. Hvar? Græna hattinum, Akureyri Hvenær? Í kvöld klukkan 22 Hvað kostar? 3900 kr. Góð og „júník“ stemning á Nasa Skálmöld heldur tónleika á NASA í kvöld. Sveitin hefur ekki spilað í þessu glæsilega húsi um árabil og eftirvæntingin vitanlega mikil því Nasa er eitt skemmti- legasta tónleikahús veraldar. Hvort þetta verður í síðasta skipti sem Skálmöld hljómar í húsinu skal ósagt látið en óhætt er að lofa afskaplega góðri og „júník“ stemningu. Hvar? Nasa Hvenær? Í kvöld klukkan 22 Hvað kostar? 3900 kr. Sóley í Mengi Sóley er komin langt á veg með nýja plötu sem spenntir tónlistarunn- endur fá að heyra í snemma á næsta ári. Hún mun fagna gerð plötunnar með góðum vinahópi í Mengi á Laugardagskvöld. Hvar? Mengi Hvenær? Laugardaginn 27. ágúst klukkan 19 Hvað kostar? 2000 kr. Á sunnudag mun verða haldin í fyrsta skipti Rokkhátíð æsk- unnar. Hátíðin verður haldin á Kex Hostel um munu margar hljómsveitir stíga sín fyrstu skref í átt að frægð og frama. Þar má nefna hljómsveitirnar Hush Hush og Meistara dauð- ans. Raftónlistamaðurinn Futurgrapher leyfir gestum og gangandi að læra á raftónlist- ar græjurnar sínar og tónlist- arkonan Hildur tekur nokkur lög. Skemmtunin er á vegum Stelpna rokka og Heimilislegra sunnudaga. Salka Snæbrá Hrannarsdótt- ir, 13 ára, fór í annað skiptið í Rokkbúðirnar Stelpur rokka nú í sumar. Þar lærði hún rokk- sögu, sjálfsvörn og hvernig for- réttindi okkar liggja í samfé- laginu. Salka spilar á trommur í hljómsveitinni Hush Hush sem kemur fram á sunnudag ásamt Örnu, Emmu, Hertu og Völu. Hljómsveitin hefur verið star- frækt í mánuð eða alveg síðan þær kynntust í Rokkbúðun- um. Þær ætla að taka lagið sitt Óskrifaðar reglur samfélags- ins en megininntak textans er ef einhver reynir að meiða mann þá er það ekki manni að kenna, það skiptir ekki máli hvar þú átt heima eða hverju þú klæðist. Mikilvægt er að undirbúa sig vel fyrir tónleika og hafa þær stöllur undirbúið sig með því að spila síendurtekið þemalag frægustu kvikmyndar níunda áratugarins, Titanic, lagið My heart will go on, til að komast í rétta gírinn. Salka er mjög meðvituð um að hljómsveit þeirra vinkvenna eigi mikla möguleika á að verða fræg, enda frábær hljómsveit. Hvar? Kex Hostel Hvenær? Sunnudaginn 28. ágúst klukkan 13 Hvað kostar? Frítt inn ÁTTU RÖDD AÐ LJÁ OKKUR? Karlakór Reykjavíkur ætlar að bæta við sig söngmönnum nú í haust og þá fara fram raddpróf fyrir þá sem hafa áhuga á að slást í hópinn. Við prófum raddsvið og tónheyrn og finnst það kostur ef þú býrð yfir kunnáttu í tónlist og nótnalestri. Það er þó alls ekki skilyrði. Ef þú hefur áhuga á að koma í raddpróf skaltu senda okkur línu á netfangið kor@kkor.is fyrir 10. september næstkomandi og við höfum samband við þig um hæl. Frekari upplýsingar má fá í síma 856-7229. VETRARSTARFIÐ Starfsár Karlakórs Reykjavíkur einkennast af tveimur hápunktum. Annars vegar eru það aðventutónleikar í Hallgrímskirkju um miðjan desember, sem alltaf eru vel sóttir enda fastur liður í jólaundirbúningi fjölmargra landsmanna. Eftir áramót hefst undirbúningur fyrir vortónleika í Langholtskirkju sem fara fram í lok apríl. Á þeim tónleikum er uppskera vetrarstarfsins lögð fram og að þeim loknum gleðjast kórmenn og makar þeirra yfir liðnum vetri og fagna vorkomu. Til viðbótar við þessa föstu liði er starfið kryddað með með alls kyns viðburðum á vegum ýmissa aðila. Karlakór Reykjavíkur var stofnaður 1926 og hefur starfað samfleytt síðan. Kórinn býður upp á krefjandi og skemmtileg viðfangsefni í tónlist og skemmtilegt félagsstarf í góðum félagsskap. Söngferðir til útlanda eru farnar reglulega auk þess sem byggðir landsins eru heimsóttar til tónleikahalds. frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.