Fréttatíminn - 27.08.2016, Síða 30
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
„Reynið að fá síðhærða að halda
hárinu saman með einhverju
móti.“ Foreldrar grunnskóla-
barna hafa fengið hinn árlega
póst um að lúsin sé kom-
in að kveða burt sum-
arið. Þar er tilkynnt
um að lúsin sé
orðin að faraldri í
skólum lands-
ins og að byrja
aftur í skólan-
um geti fylgt
aukinn kláði
í hársverði.
Sprottið hafa
upp umræð- ur á
samfélagsmiðlunum Twitter og
Facebook þar sem foreldrar ræða
hinn árlega lúsapóst og má þar til
dæmis sjá athugasemd frá Braga
Valdimar textasmiði um hvort ætti
ekki að setja skólaskyldu á þessar
blessuðu lýs. Einnig er rætt hvort
það eigi að setja
dagsekt á þá
foreldra sem
kemba ekki
börnin sín.
Lúsin er al-
gengust meðal
3-12 ára barna og
er mjög mikilvægt
að muna að lús og sóða-
skapur eiga lítið sem ekkert
sameiginlegt, lúsin ræðst á
fólk og horfir ekki á stöðu né
stétt. Einnig má minna á að lús-
in getur hvorki stokkið, flogið né
synt og smitast þá helst við lán á
derhúfum og þvíumlíku.
Kembingin getur orðið að fal-
legri fjölskyldustund þar sem fjöl-
skyldumeðlimir hittast, kemba,
segja sínar persónulegu lúsasögur
og allir fá hárþvott. Einnig geta
vinahópar hist og gert slíkt hið
sama og mögulega bætt við einum
lúsakokteil.
30 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 27. ágúst 2016
Caster Semenya frá Suður Afríku
varð ólympíumeistari í 800 metra
hlaupi kvenna á ólympíuleikunum í
Ríó. Árangurinn var bæði persónu-
legt og suður-afrískt met.
Sigurinn var öruggur en ljóst er
að Semenya er einn umdeildasti
frjálsíþróttamaður heims enda
mikið deilt um á sínum tíma hvort
hún væri karl eða kona. Vöðva-
bygging Semenya þykir svipa
til vöðvabyggingar karlmanns,
testosterónmagn í líkama henn-
ar er meira en í flestum konum.
Eiginleikar sem að margra mati
skilgreina hana líkamlega sem
intersex.
Áður var hún skikkuð í „kynja-
próf“ sökum þess hve yfirburða-
góð hún var og var henni gert
að taka inn hormón til að halda
testosteróninu innan „eðlilegra“
marka að mati íþróttasambands
IAAF. Í kjölfar þess að íþróttakonan
Dutee Chand kærði ákvörðun IAAF
um hormónainntöku til að halda
niðri testosteróni og vann málið
hætti Semenya hormónainntök-
unni fyrir ólympíuleikana.
Eftir sigur Semenya á
ólympíuleikunum má hins vegar
vera að henni verði bannað að
keppa aftur þar sem IAAF telur að
henni og öðrum intersex íþrótta-
mönnum eigi ekki að vera leyfi-
legt að keppa án þess að taka inn
hormón.
Semenya hefur neitað að koma
fram opinberlega og tjá sig um álit
IAAF en hafði ekki annara kosta
völ í vikunni þar sem sigurveg-
urum á ólympíuleikunum er gert
að tala við fjölmiðla eftir keppni.
Semenya sagði þar að líkami henn-
ar kæmi öðrum ekki við. „Nelson
Mandela sagði mér einu sinni að
íþróttum væri ætlað að sameina
fólk og það er það sem ég er að
reyna að gera.“
Hamingja er að
vera 25 ára og
yngja upp. Ham-
ingja er að vita
að enginn raun-
verulegur munur
er á því að vera sorgmædd og
glöð. Hamingja er samvisku-
bitið yfir því að vera geðveik og
ólétt og kenna pabbanum um
allt, líka bakverkinn og bjúg-
inn. Hamingja er 24 karata gull
iphone með Mother of Pearl
mynstri. Hamingja er að dæma
ekki óléttar konur sem reykja.
Hamingja er Versace.
Hamingjumolinn:
Kolfinna Nikulásdóttir, leikskáld
og Reykjavíkurdóttir
Aðrir keppendur hafa verið ósáttir við
þátttöku Semenya. Mynd | Telegraph
Gullverðlaunahafinn Cester Semenya
Verður svartri, intersex hlaupakonu bannað að keppa aftur?
Fyrir skömmu stóðu sam-
tökin Sól í Tógó fyrir nám-
skeiði með Stelpum rokka
í borginni Kpalimé. Þrjátíu
táningsstúlkur tóku þátt í
rokkbúðunum og eftir tvo
daga mátti heyra hljóma,
takt og söng óma um dali og
hæðir. Afraksturinn var fjór-
ar hljómsveitir sem fluttu
músík sína á lokatónleikum.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Einn aðstandenda ver-kefnisins var Áslaug Einarsdóttir, eða Áa, sem segir verkefnið hafa heppnast vel „Stelpurn-
ar höfðu fæstar spilað á hljóðfæri
en margar sungið í kirkjunni. Þær
byrjuðu strax að spila og syngja á
fullu. Ótrúlega skapandi, skemmti-
legar og hæfileikaríkar. Ein há-
grét þegar búðunum lauk og var
ákveðin að koma aftur að ári.“
Stúlkurnar höfðu orð á því að
þær væru öruggar í rokkbúðunum
og gott að starfa í kvennarými þar
sem þær gætu unnið óáreittar en
í Tógó er jafnrétti kynjanna ekki
komið langt á veg.
„Tónlistarkonurnar Mirlinda
Kuakuvi og Mother voru aðal-
skipuleggjendur búðanna og þær
fengu til liðs við sig níu tónlist-
arkonur sem eru meðlimir í eina
kvennabandi Tógó, Bella Bellow
Orchestra.“
Rokkbúðirnar í Tógó voru að
fyrirmynd verkefnisins Stelpur
rokka. Þær lærðu þannig á hljóð-
færi og spiluðu á lokatónleikum.
Áður en farið var til Tógó stóðu
skipuleggjendur fyrir hljóð-
færasöfnun á Íslandi og sendu gám
með hljóðfærum í búðirnar.
„Rokkbúðirnar gengu stórkost-
lega vel. Stelpurnar spiluðu allar
lag í lokin og svo hélt Bella Bell-
ow langa tónleika og stelpurnar
sungu, dönsuðu og voru í miklu
stuði. Á einhverjum tímapunkti
Stelpur rokka Tógó
Stelpurnar í Exoucia taka rokkhljóm-
sveitar-hoppið! En í búðunum mynd-
uðust fjórar hljómsveitir: Exoucia, Love
Voice, Les Lionees de Judea og Les
Caeurs de Anges.
fór rafmagnið af, ljós slokknuðu og
hljóðfæri þögnuðu en trommarinn
hélt áfram að spila og hélt partíinu
gangandi. Óþarfi að láta tímabund-
ið rafmagnsleysi slá sig út af
laginu,“ segir Áa, en verkefnið
verður endurtekið á næsta ári.
Lea mætti
klukkan 6 um
morguninn
fyrsta daginn,
hún er 13 ára og
býr í Kpalime.
Það kom í ljós í
rokk búðunum
að hún er bæði
ljóðskáld og með
frábæra rödd.
Esther byrjaði á trommunum en endað í söngnum.
Hún hágrét þegar búðunum lauk og er harðákveðin að
koma aftur að ári.
Hljómsveitaræfing: Vestur-afrískt popp og hipp hopp er í
uppáhaldi hjá stelpunum í Tógó. Asa frá Nigeríu stendur upp úr en
tógóískt tónlistarfólk, eins og Willi Baby og Toofan og hinn belgísk-
rúandísk ættaði Stromae, eru líka hátt skrifaðir, svo eitthvað
sé nefnt.
Spyr hvorki um stétt né stöðu.
Kembingin getur orðið að fallegri fjölskyldustund þar sem allir
deila sínum persónulegu lúsasögum. Mynd | Shutterstock
Lúsin mætt í skólann
Sérblað um
Heilsu móður
& barns
Þann 10. september
auglysingar@frettatiminn.is | 531 3300
kristijo@frettatiminn.is | 531 3307