Fréttatíminn - 27.08.2016, Side 34
…fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Gaman að tala við fleiri
en sjálfa sig eldhúsinu
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir er með mörg járn í eldinum að vanda, en hún er nú að leggja lokahönd á
nýja kökubók, á leið í tökur fyrir
Ísskápastríð, sem er nýr þáttur á
Stöð 2, ásamt því að vera að ljúka
síðasta ári í viðskiptafræði.
Fær hugmyndir í bakaríum
„Ég er bara að klára að baka og
Karl Peterson myndar fyrir mig,
svo kemur bókin út í október. Mig
hafði alltaf langað að gefa út bara
kökubók, þannig þetta er búið að
vera mjög skemmtilegt. Þetta er
mjög rjómalöguð og pastelbleik
kökubók,“ segir Eva Laufey og
hlær. Hún virðist vera óþrjótandi
uppspretta hugmynda að girni
legum kökum, en hún er dugleg
að leita sér innblásturs hvar sem
hún fer. „Mér finnst kökur svo
góðar – ef ég fer í bakarí, hvort
sem það er hér heima eða í út
löndum, þá fæ ég alltaf nýjar hug
myndir. Þegar ég fer til útlanda þá
fer ég alltaf í kökuhús eða bolla
kökubúðir til að fá innblástur og
borða. Ég er mikil kökukerling.
Og það er þess vegna sem ég er að
þessu. Mér sjálfri finnst svo gott að
borða kökur.“
Líka skemmtiþáttur
En um leið hún hefur lokið við
bókina fer hún í tökur á nýjum og
óhefðbundnum matreiðsluþætti,
sem kallast Ísskápastríð, sem
sýndur verður á Stöð 2 í vetur. En
þættinum mun hún stýra ásamt
hinum eina sanna Guðmundi
Benediktssyni, eða Gumma Ben,
eins og við þekkjum hann flest.
Munu þau fá til sín góða gesti sem
keppast við að elda úr hráefni sem
þeim er afhent.
„Þetta er svolítið annað en ég er
vön að gera. Ég er auðvitað búin
að gera nokkrar seríur þar sem ég
er sjálf í eldhúsinu, en mér finnst
þetta mjög spennandi. Það er
gaman að fá að vera með öðrum
þáttastjórnanda. Þá get ég talað
við einhvern annan en sjálfa mig.“
Í hverjum þætti verða tveir
keppendur, en þeir vita ekkert
hvað þeir eru að fara að elda.
„Keppendur velja sér einn ísskáp
af sex og þurfa að elda forrétt,
aðalrétt og eftirrétt úr hráefninu
sem er í þessum ísskápum. Þetta
er öðruvísi þáttur en hefur ver
ið gerður, allavega svo við
vitum til. Þetta er blanda
af Einn, tveir og elda,
Masterchef og fleiri
skemmtilegum þátt
um. Þetta er bæði
matreiðsluþáttur
og skemmtiþáttur,
þannig þeir sem hafa
ekki mikinn áhuga á
mat ættu líka að hafa
gaman af,“ segir hún.
Hugmyndin frá Loga
Keppnin er líka á milli Evu Lauf
eyjar og Gumma, en þau munu
hjálpa sitt hvorum keppandanum
í eldamennskunni hverju sinni.
„Við ætlum að reyna að byggja
þetta þannig upp að Gummi fái
þann sem færari er í eldhús
inu á meðan ég fæ þann sem
kann minna. Gummi segist að
minnsta kosti ekki vera vanur
í eldhúsinu, en svo er hann
kannski að blöffa og kemur
sterkur til leiks. Það getur því
allt gerst. Svo eru allskonar
tromp og tvist sem eiga eftir
að koma bæði áhorfendum
og keppendum á óvart,“
segir Eva Laufey, en hug
myndin að þáttunum kemur
frá sjónvarpsmanninum Loga
Bergmann.
Nóg að gera Eva Laufey situr
ekki auðum höndum, en í október
sendir hún frá sér nýja kökubók
og birtist aftur á skjánum í nýjum
matreiðsluþætti. Mynd | Ernir
Eyjólfssson
Eva Laufey stýrir óhefðbundnum matreiðslu þætti
á Stöð 2 ásamt Gumma Ben. Þá er hún að leggja
lokahönd á nýja pastelbleika kökubók.
Er Burt Reynold’s kominn
með Parkison’s?
Vinir leikarans Burt Reynold’s hafa áhyggjur
af heilsu hans. Burt er orðinn 80 ára gamall
og vinur hans sagði RadarOnline að hann
sýndi mörg einkenni Parkison’s sjúkdóms-
ins. Hann segir Burt vera skjálfhentan, með
enginn svipbrigði og stífan í líkamanum. „Hann
kemst stundum ekki upp úr sófanum heima hjá
sér en neitar að láta sérfræðing skoða sig af hættu við
slæmar fréttir,“ segir þessi heimildarmaður. Fjölmiðlafulltrúi Burt gerði lítið
úr þessum fréttum og sagði: „Burt hefur nýlokið tökum á nýrri mynd og
hefur ekki verið jafn hamingjusamur árum saman.“ Heimildarmaður slúð-
urvefsins segir að Burt eyði flestum dögum heima hjá sér, einn, en hann er
tvífráskilinn.
Katy Perry fer til sálfræðings til að vera
venjuleg
Katy Perry sagði frá því í útvarpsviðtali á þriðjudag
að hún færi til sálfræðings reglulega til að halda
sér „venjulegri“ í þessum erfiða tónlistar bransa.
Katy segir að meðferðin hjá sálfræðingnum hafi
hjálpað sér við að halda jafnvægi í þessu öllu
og líða vel. Hún er komin aftur í stúdíó tökur
eftir 3 ára frí frá tónlistinni og er í sjóðheitu
ástarsambandi við leikarann Orlando Bloom.
Katy segist eiga erfitt með að semja kynþokka-
full lög. Hún segist samt hafa náð að koma lagi
á blað um daginn sem fjallar um kynlíf. „Ég stunda
ennþá kynlíf og ég vil semja lög um alla mína lífs-
reynslu,“ sagði þessi flotta söngkona í viðtalinu.
Gwen og Blake að fara að
gifta sig
Gwen Stefani og Blake Shelton eru mjög
ástfangin, eins og flestir hafa tekið eft-
ir. Þau hafa nú í hyggju að gifta sig um
jólin og munu væntanlega hafa athöfn-
ina á búgarði Blake í Oklahoma. Sam-
kvæmt Life & Style hafa Gwen og Blake
meira að segja hafist handa við gesta-
listann og eru nokkrir af Voice þjálfur-
unum á þeim. Einnig hefur því verið fleygt
að Gwen sé að hanna sinn eigin brúðarkjól sem
verði beinhvítur og vljósblár. Það er alveg spurn- ing hvað
er að marka þessar fréttir en við vitum allavega að þau virðast yfir sig
ástfangin. Það kom reyndar í slúðurblöðum fyrir stuttu að Gwen hafi
ekki verið hrifin af því að hafa Miley Cyrus með Blake Shelton í The
Voice. Hún á að hafa sagt við unga trippið, hana Miley, að halda sig frá
Blake, enda er hún alræmdur daðrari.
Blæs á orðróm um brjóstastækkun
Kylie Jenner bauð fylgjendum á twitter að koma og sannreyna hvort brjóstin væru ekta.
Ósatt Kylie Jenner neitar
því alfarið að hafa farið
í brjóstastækkun.
Mynd | Getty
Orðrómur komst á kreik í vikunni
að Kylie Jenner hefði farið brjósta
stækkun. Og var sá orðrómur svo
sannarlega ekki gripinn úr lausu
lofti enda birti hún myndir af sér
á snapchat þar sem hún virtist
óvenju brjóstgóð. Hafði hún þá
ekki birst á snapchat í svolítinn
tíma, en hún sagði skýringuna
vera að hún hefði fengið matareitr
un og verið veik.
Töluverð umræða skapaðist um
brjóstin góðu á twitter, þar sem
margir létu sitt ekki eftir liggja.
Kylie hafði varla við að svara, en
hún reyndi þó hvað hún gat.
Fyrst ætlaði hún að tækla þetta
með einu orði: „Aldrei.“ Sem átti
þá væntanlega að þýða að hún
myndi aldrei fara í slíka aðgerð. En
það dugði ekki til að draga úr um
talinu. Enda líklega fáir sem trúðu
þessari fullyrðingu.
Hún gekk því skrefinu lengra og
varð aðeins persónulegri: „Það er
bara þessi tími mánaðarins. Þau
munu skreppa saman aftur og þá
verð ég leið.“ Kylie á væntanlega
við að hún sé á blæðingum og því
hafi brjóstin tútnað út. Þegar í ljós
kom að þessi skýring dugði ekki til
að róa umræðuna á twitter bauð
raunveruleikastjarnan fólki upp á
að koma og snerta brjóstin, til að
ganga úr skugga um að þau væru
ekta. Hvort einhver hafi látið slag
standa er ekki vitað.
5 uppáhaldsstaðir Evu Laufeyjar
Ítalía Sushi Samba
17 sortir
Snaps Brauð & Co
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt,
fyrir flottar konur