Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 27.08.2016, Síða 38

Fréttatíminn - 27.08.2016, Síða 38
Unnið í samstarfi við Tækniskólann Endurmenntunarskóli Tækniskólans býður fjölda námskeiða þar sem sköpunargleðinni er veitt útrás. Þar á meðal er gítarsmíði, silfursmíði, olíumál- un, þrívíddarhönnun, útskurður í tré, eldsmíði, húsgagnaviðgerðir, bólstrun og saumanámskeið, svo fátt eitt sé nefnt. Hámarksfjöldi er á mörg þessara námskeiða og yfirleitt bókast hratt á nám- skeiðin og stundum komast færri að en vilja. Hér veita þrír kennar- ar Endurmenntunarskólans okkur innsýn í nokkur vinsæl námskeið. Nánari upplýsingar og skráning á www.tskoli.is/namskeid. Endurmenntunarskóli Tækniskólans hefur eitthvað fyrir alla Nemendur öðlast færni sem þá óraði aldrei fyrir Gítarsmíði er gríðarlega skemmti- legt námskeið hjá Endurmenntun- arskólanum sem hefur notið mikilla vinsælda. „Að sjá einhvern spila á gítar sem maður hefur sjálfur smíðað er eins og að sjá barnið sitt lyfta gulli á ólympíuleikunum,“ segir Gunnar Örn Sigurðsson gítarsmiður sem kennir fólki að smíða rafmagnsgít- ar frá grunni á námskeiði í Endur- menntunarskóla Tækniskólans. Gunnar er þekktur gítarsmiður og hefur smíðað gítara fyrir þekkta tónlistarmenn eins og Ómar Guð- jónsson, Sigurgeir Sigmundsson og fleiri. „Það er allskonar fólk sem kem- ur á þetta námskeið, sumir eru hljóðfæraleikarar sem vilja smíða eigið hljóðfæri en aðrir eru þarna því þeir hafa einlægan áhuga á að smíða fallega gripi. Það myndast oft mjög skemmtileg stemning á námskeiðinu því hópurinn er aldrei stór og umræður myndast oft um hljómsveitir og hljóðfæraleikara. Mér finnst þetta sjálfum gríðar- lega gaman að vera innan um alla þessa skemmtilegu og áhugasömu einstaklinga. Það eru jafnframt nokkrir nemendur sem hafa komið nokkrum sinnum á þetta nám- skeið og smíða nýtt hljóðfæri í hvert sinn,“ segir Gunnar. Á nám- skeiðinu er farið yfir hvernig gítar er smíðaður, skref fyrir skref þar til allir hafa lokið við að smíða gítar. „Það er mjög misjafnt hvernig fólk vinnur, sumir er afar vandvirkir og huga að hverju smáatriði á meðan aðrir eru tilbúnir að líta fram hjá smávægilegum mistökum. Það er misjafnt hvernig fólk vinnur og allir labba út með tilbúinn rafmagnsgít- ar í lok námskeiðs,“ segir Gunnar. Þegar gítar er handsmíðað- ur á þennan hátt kallar það fram ákveðinn karakter sem gerir hvern gítar einstakan. „Þeir eru aldrei eins.“ Við lok námskeiðs þegar nemendur standa stoltir með raf- mangsgítar í hendi segir Gunnar að þá komi stundum upp sú tilf- inning að fólk trúi varla að það hafi klárað verkið. „Mig óraði aldrei fyr- ir að þetta yrði svona, hafa sumir sagt,“ segir Gunnar. Námskeiðið í gítarsmíði hjá Endurmenntunarskólanum hef- ur notið mikilla vinsælda en þau eru haldin tvisvar á ári. Næsta námskeið hefst 22. september og stendur yfir til 5. desember. Kennt er á mánudögum og fimmtudög- um. Kennir fólki að smíða gítar Labba út með rafmagnsgítar í lokin Handsmíðuð hljóðfæri Gunnar Örn Sigurðsson gítarsmiður kennir fólki að smíða eigin rafmagnsgítar á námskeiði hjá Endurmenntunarskóla Tækniskólans. Myndir | Rut Hönnun og handverk Andlit/portrett Fatabreytingar Ferilmöppugerð „portfolio“ Innanhússhönnun Landslagsmálun Málað með spaða Mósaíknámskeið Olíumálun/litafræði Saumanámskeið Silfursmíði Skissuteikning Skrautskrift Steinaslípun Taulitun og tauþrykk Teikning Tískuteikning Víravirki Greinaskrif og hugmyndavinna Hagnýt skrif Skapandi hugsun Málmur og tré Bólstrun Eldsmíði Gítarsmíði Hannað og smíðað Húsgagnaviðgerðir Járnrennismíði Lesið í skóginn Málmsuða Trésmíði fyrir konur Útskurður í tré Undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf í: Rafvirkjun Rennismíði Vélvirkjun Skipstjórn – vélstjórn ARPA ratsjárnámskeið ECDIS Endurnýjun skipstjórnarréttinda Endurnýjun vélstjórnarréttinda GMDSS ROC og GOC Hásetafræðsla IMDG endurnýjun Skemmtibátanámskeið Smáskipanámskeið Smáskipavélavörður – vélgæsla SSO og CSO öryggisnámskeið Raftækni Arduino Rafeindatækni Tölvur og upplýsingatækni App fyrir Android AutoCAD Bæklingagerð í InDesign Forritun í C# HTML5 og CSS3 Illustrator Kvikmyndanámskeið Lightroom myndvinnsla Listræn tískuljósmyndun Ljósmyndanámskeið Maya Photoshop Revit Architecture SketchUp þrívíddarteikning Tölvuleikjagerð í þrívídd Umhverfi og útivist GPS staðsetningartæki og rötun Reiðhjólaviðgerðir Veðurfræði og útivist Námskeið sem hitta í mark Skráning og nánari upplýsingar: tskoli.is/namskeid | endurmenntun@tskoli.is | Sími 514 9602 facebook.com/endurmenntunarskolinn Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga. …menntun 6 | amk… LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 Að sjá ein- hvern spila á gítar sem maður hefur sjálfur smíðað er eins og að sjá barnið sitt lyfta gulli á ólympíuleikunum.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.