Fréttatíminn - 27.08.2016, Side 41
Forbrydelsen
Þessir þættir eru alveg hreint frá-
bærir og héldu mér límdum við
sjónvarpsskjáinn á sunnudags-
kvöldum þegar þeir voru sýndir
á RÚV. Lögreglukonan Sara Lund
er með eftirminnilegri karakterum
sem sést hafa í sjónvarpi. Norrænt
sakamálastöff í heimsklassa.
West Wing
Fyrir stjórnmálanördin eru þessir
þættir meiriháttar veisla. Sjö seríur
og þættirnir klukkustundarlangir.
Blaðafulltrúinn C.J. Cregg og að-
stoðarstarfsmannastjóri forsetans,
Josh Lyman, eru í miklu uppáhaldi.
Ófærð
Það var magnað að upplifa stemn-
inguna sem myndaðist í þjóð-
félaginu í vetur þegar þættirnir
voru sýndir. Menningarviðburður
í sjónvarpi sem stóð í margar vik-
ur. Íslenskir hæfileikar í bland við
íslenskt umhverfi er öflug blanda.
Ólafur Darri er frábær leikari og
svo sýndi vinkona mín úr borg-
armálunum, Ilmur Kristjánsdóttir,
hvað hún er öflug leikkona í hlut-
verki lögreglukonunnar Hinriku.
Seinfeld
Tímalausir og í raun alltaf góðir.
Það tók mig reyndar smá tíma að
komast upp á lagið en þættirn-
ir eru hamingjubomba. Hvers-
dagslegir hlutir geta verið mein-
fyndnir.
Stranger Things
Nýir þættir sem ég mæli með. Við
tókum okkur þrjú kvöld í að klára
þá á Netflix. Ég er ekki mikið fyrir
að horfa á efni um eitthvað yfir-
náttúrulegt og fríkað en það er
eitthvað við þessa þætti. Umgjörð,
tónlist og fleira í anda þess tíma
sem þeir eiga að gerast.
Uppáhalds
sjónvarpsþættirnir
Amk fékk Magnús Má Guð-
mundsson, borgarfulltrúa og
frambjóðanda í flokksvali Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík, til að
segja frá uppáhalds sjónvarp-
sþáttunum sínum.
Magnað að upplifa stemninguna í kringum Ófærð
Fyrir alla aðdáendur
Adele
RÚV Adele: Live at the BBC
laugardagur klukkan 12.35.
Þáttur sem enginn aðdáandi
söngkonunnar Adele ætti að
missa af. Söngkonan flytur bæði
gömul lög og ný, segir frá fortíð
sinni og ferlinum ásamt því að slá
á létta strengi með aðdáendum.
Draugalegur
spennutryllir
Stöð 2 The Gallows laugar-
dagur klukka 23.40.
Spennandi kvikmynd frá ár-
inu 2015 sem segir frá nokkrum
unglingum í framhaldsskóla sem
ákveða að heiðra minningu nem-
anda sem féll frá á voveiflegan
hátt 20 árum áður í miðri leiksýn-
ingu sem ber nafnið The Gall-
ows. Til að minnast hans ákveða
unglingarnir að setja leikritið upp
aftur og eru á kafi í þeirri vinnu
þegar þeim verður ljóst að eitt-
hvað er ekki eins og það á að
vera.
Hin ráðvillta
Susanna
Netflix Girl, Interrupted.
Virkilega vönduð og áhugaverð
mynd með leikkonunum Angelina
Jolie og Winona Ryder í aðal-
hlutverkum. Susanna hefur átt
erfitt uppdráttar og er lögð inn
á geðspítalann Claymore eftir að
hún gerir tilraun til sjálfsmorðs.
Spítalinn er fullur af áhugaverðum
persónum sem Susanna kynn-
ist smátt og smátt og áttar sig á
að hún á meira sameiginlegt með
þeim en hún hélt í fyrstu.
Innritun er hafin. Kynntu þér málin
á vefnum okkar www.skatarnir.is
…sjónvarp9 | amk… LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016