Fréttatíminn - 27.08.2016, Page 54
Flestir sólgnir í lambakjöt
með bernaise
Salatbarinn í Faxafeni fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og hefur orð á sér fyrir að vera eitt besta hlaðborðið í bænum.
Hlaðborðið nýtur mikilla vinsælda en þar er að finna staðgóðan heimilismat, sem öllum líkar, á hagstæðu verði.
Unnið í samstarfi við Salatbarinn
Salatbarinn býður daglega upp á heita rétti, salat, ferskan fisk, kjúklinga-rétti, pastarétti, heima-
lagðar súpur, grænmeti, brauð
og heilmargt fleira. Fastagestir
staðarins eru margir og flestir
á fimmtudögum og föstudögum
þegar lambalæri með bernaise
sósu er á boðstólum, sem er
vinsælasti réttur Salatbarsins.
Langflestir sem sækja staðinn
koma þangað í hádegishléinu til
að fá vel útilátinn og heitan mat í
hádeginu, en staðurinn er einnig
tilvalinn kvöldverðarstaður fyr-
ir fjölskyldur þar sem allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Sal-
atbarinn býður einnig upp á það
að velja mat í bakka sem „take-
-away“, sem er tilvalið fyrir þá
sem hafa ekki tök á því að elda
kvöldmat eða geta ekki borð-
að hádegismatinn á staðnum.
Verðið er afar hagstætt,
salatbar hlaðborð þar
sem heitur matur er
innifalinn kostar
2090 krónur á
mann, súpa- salat
og brauð hlaðborð
kostar 1690 krónur á
mann, súpa og brauð
hlaðborð kostar 1350
krónur á mann og „take-
-away“ hlaðborð er á 1960
krónur á mann. Verð fyrir börnin
er það sama fyrir öll hlaðborðin,
990 krónur fyrir börn á aldrinum
5 til 10 ára og 500 krónur fyrir
börn 3 til 4 ára. Boðið er upp á
heita rétti daglega, ferskan fisk,
kjúkling. Matseðill dagsins er
Útverðir íslensks
landbúnaðar
Kjaftæði, aðgangsharður krummi og samtal um íslensku sveitina.
Unnið í samstarfi við Erpsstaði
Hróður Kjaftæðis, íssins frá Rjómabúinu á Erpsstöð-um, hefur borist víða um heim en tilurð hans er
nánast hendingu háð. Sumir myndu
jafnvel segja að örlögin hafi gripið
inn í. Þorgrímur Einar Guðbjartsson
og Helga Elínborg Guðmundsdóttir
höfðu verið bændur á Erpsstöðum
í um 10 ár þegar miklar sviptingar í
íslenskum landbúnaði urðu til þess
að þau þurftu að taka ákvörðun um
framtíð sína sem bændur. Hjónin
koma bæði úr sveit og voru ekki
tilbúin til þess að flytja á malbikið
og gefa landbúnaðinn upp á bát-
inn. „Við sáum að við þurftum að
gera eitthvað. En við vildum vera í
sveitinni og vinna við landbúnað.
Við tókum því ákvörðun árið 2006
að byggja nýtt fjós,“ segir Þor-
grímur sem er menntaður mjólkur-
fræðingur og því hæg heimatökin
þegar hjónin ákváðu að þróa eigin
afurðir úr mjólkinni.
Útverðir íslensks
landbúnaðar
En á Erpsstöðum er gert fleira en
að mjólka kýr og búa til ís og osta.
Ferðaþjónustan, sem að einhverju
leyti hverfist um afurðirnar, hefur
vaxið og dafnað síðustu ár. „Okkur
langaði að prófa þetta, að fara út í
ferðaþjónustuna. Aðallega til þess
Matseðill dagsins
Hlaðborð frá 11.30-20.00
Fimmtudagur 25.08.16
Lambalæri bearnaise
Brúnaðar kartöflur
Pönnusteiktur fiskur
Kjúklingur í súrsætri sósu
Kartöflugratín
Rjómapasta með grænmeti
Sætar kartöflur og
rótargrænmeti
Brokkolísúpa og
mexico kjúklingasúpa
Salatbar, nýbökuð brauð og
pestó
Athugasemdir frá ánægðum
viðskiptavinum Salatbarsins á
Facebook síðu staðarins.
Stjörnugjöf: 4.2 af 5 mögulegum.
Dæmi um matseðil
dagsins:
Ánægðir viðskiptavinir:
Dýralíf Skepnurnar una sér vel á Erpsstöðum.
Blómleg framleiðsla Gestum á Erpsstöðum gefst tækifæri til að fylgjast með framleiðslu
afurða.
Sívinsæll Salatbar Á Salatbarnum er daglega boðið upp á heita rétta, salat, ferskan fisk, kjúklingarétti, pastarétti og súpur
en á fimmtudögum og föstudögum er lambalæri með bernaise á boðstólum. Mynd | Rut
Mjög góður
matur og flottur
staður heimilislegur
og kósý, við eigum sko
eftir að koma aftur til
ykkar :)
Salatbarinn er
uppáhaldsstað-
urinn minn, hann er
neytendavænn, fer vel
í maga og tekur ekki
fúlgur úr buddunni.
Glæsilegt
úrval og allt
gómsætt, fers
kt
og gott!
að veita ferðamönnum tækifæri til
þess að komast í návígi við íslensk-
an landbúnað, hitta bændur og geta
átt við okkur samtal um það hvern-
ig lífið er í íslenskri sveit. Það var
raunar okkar helsta hvatning með
þessu. Að vera útvörður íslensks
landbúnaðar hér á Íslandi gagn-
vart erlendum ferðamönnum og
Íslendingum sem hafa ekki miklar
taugar eða tengingar við íslenska
sveit en langar að fræðast,“ segir
Þorgrímur og bætir við að gestir
ráði og beri ábyrgð á sinni heim-
sókn. Þeir þurfi að ákveða hvað þeir
vilji fá út úr heimsókninni. „Vilja þeir
tala við okkur eða bara vera í friði
og ró.“
Flóki aðgangsharður
Dýralífið er blómlegt á Erpsstöð-
um og margir sem koma eingöngu
til þess að komast í snertingu við
húsdýrin sem vappa frjálslega
um svæðið. Kisa sem gjarnan vill
láta klappa sér; fær að launum að
lepja dreggjarnar úr ísskálunum,
voffi sem þreytist ekki á að fylgja
gestum í hlað, grísirnir sem liggja
makindalega í stíunni og hænurnar
sem kæra sig kollótta þótt heimaln-
ingurinn Flóki sé að þvælast fyrir
þeim. Flóki er reyndar ekki lamb
heldur hrafn sem hefur gert sig
heimakominn á Erpsstöðum og er
ekkert að sýna á sér neitt fararsnið.
„Hann kom sem lítill ungi í vor og
við höfum fóstrað hann, með mis-
jöfnum árangri. Hann er ansi uppá-
tækjasamur og aðgangsharður. En
ef maður stendur hann að verki og
nær að skamma hann þá nær maður
til hans og hann sér að sér,“ segir
Þorgrímur sem fagnar að sjálfsögðu
fjölbreyttu dýralífinu á Erpsstöðum.
Rabarbaraísinn slær í gegn
En það er vissulega ísinn sem laðar
að og útlendingar koma margir inn
í búðina og spyrja hvort það sé hér
sem frægi ísinn er, „The Bullshit“.
Fjölmargar bragðtegundir hafa ver-
ið prófaðar á ísinn og þessa dagana
er rabarbaraísinn að slá í gegn með-
al útlendinga sem eru stórhrifnir en
Íslendingar síður; enda rabarbari ef
til vill álitinn heldur hversdagslegt
hráefni hér á landi. Jarðarberjaísinn
er líka að gera góða hluti. „Við hóf-
um samstarf við jarðarberjabændur
í Sólbyrgi á Kleppjárnsreykjum og
fórum í kjölfarið að gera jarðar-
berjaís sem hefur slegið í gegn.
Útlendingarnir eru dálítið „skeptísk-
ir“ á hann enda vanir skærrauðum
jarðarberjaís en við notum engin
aukaefni eða litarefni svo ísinn fær
fölbeikan lit,“ segir Þorgrímur sem
merkir greinilegan mun á smekk Ís-
lendinga og erlendra á ísnum.
Yfir sumarmánuðina er opið allan
daginn á Erpsstöðum en þegar
ekki er „high season“ er opið eftir
samkomulagi og alltaf hægt að hr-
ingja á undan sér og athuga hvort
hjónin séu laus í leiðsögn eða spjall.
Vörurnar frá Erpsstöðum eru
fáanlegar í Frú Laugu og
bændamarkaðnum Ljómalind í
Borgarnesi sem opinn er allan
ársins hring.
birtur á heimasíð-
unni salatbarinn.
is og á Facebook
síðu Salatbarsins.
Á Facebook
síðunni er jafn-
framt hægt að
lesa athugasemdir
frá gestum staðarins
sem keppast við að hrósa
honum fyrir góðan mat, hagstætt
verð og góða þjónustu. Mesti
annatíminn er í hádeginu en stað-
urinn er opin frá klukkan 11.30 til
20 á kvöldin
alla virka daga og milli klukkan
11.30 til 15.00 um helgar.
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 201610 MATARTÍMINN