Fréttatíminn - 27.08.2016, Side 61
Blómstrandi fjölskyldufyrirtæki
í hjarta Suðurlands
Hráefni úr nærumhverfinu.
Unnið í samstarfi við Hótel Laka
Hótel Laki er staðsett um 5 kílómetra suður af Kirkubæjarklaustri, í hjarta Suðurlands.
Sögu hótelsins má rekja allt til
ársins 1973 þegar hjónin Hörður
Davíðsson og Salóme Ragnars-
dóttir hófu að reka ferðaþjónustu
á svæðinu. Þau eiga og reka stað-
inn enn þann dag í dag, ásamt
Evu Björk, dóttur sinni, og eigin-
manni hennar, Þorsteini Kristins-
syni. Hótelið er fjölskyldufyrir-
tæki þar sem allir ganga í þau
störf sem sinna þarf. „Foreldrar
mínir byrjuðu með tvö herbergi og
mamma bauð upp á „smörrebr-
öd“, þetta var óskaplega heimilis-
legt. Við erum með elstu ferða-
þjónustunum á landinu og með
fyrstu ferðaþjónustunum sem
fengu vínveitingaleyfi. Það var
skemmtilegt að fylgjast með því
þegar pabbi var að skenkja gest-
um barmafullt glas af koníaki við
mikla kátínu,“ segir Eva Björk sem
hefur lifað og hrærst í rekstrinum
frá unga aldri. „Við hjónin höfum
svo byggt þetta upp með foreldr-
um mínum, þetta er svo dálítið
eins og barnið okkar. Við erum öll
á haus í þessu þó að við séum líka
að vasast í ýmsu öðru,“ segir Eva
og bætir við að börnin þeirra sex
hafa á einhverjum tímapunkti ver-
ið viðriðin reksturinn. „Ég hef náð
að dreifa þeim ansi jafnt um hót-
elið, í þrif, eldhús að þjóna eða í
móttökuna!“ Fljótlega eftir opnun
fóru hjónin að bæta við smáhýs-
um við gistinguna og árið 2005
hófst bygging hótelbyggingarinn-
ar. Í dag eru starfræktar 88 gisti-
einingar.
Margir munnar að metta
Veitingastaðurinn á Hóteli Laka
hefur vaxið og dafnað síðustu ár
og nú er lagt upp með að vera
með hráefni beint frá býli. „Við
erum með bónda sem skaffar
okkur nautakjöt og lambakjöt og
það er handverkssláturhús hérna
í sveitinni líka. Þetta er orðið eins
og við viljum hafa það, hangið eft-
ir okkar þörfum og svo framvegis.
Við erum komin með mjög góða
vöru og mjög gott hráefni sem er
ekki keyrt landshorna á milli. Við
erum líka með klausturbleikju á
matseðlinum sem er alin hérna
í vötnunum okkar,“ segir Eva og
er þá ótalinn rófnabóndinn sem
skaffar ferskar íslenskar rófur.
„Við nýtum allt sem við mögu-
lega getum í kringum okkur. Við
óskum svo bara eftir fleiri græn-
metisbændum í nágrenninu! Hér
fara í gegn 150 manns svo það
eru margir munnar að
metta.“
Hótel Laki er þátt-
takandi í matar-
tengdri ferðaþjón-
ustu eða „foodtrail“.
„Gestir í sveitarfé-
laginu geta fengið af-
hent kort af hreppn-
um þar sem allir þeir
sem bjóða upp á
afurðir úr héraði eru
sérmerktir inn á með
upplýsingar um sína
sérstöðu, segir Eva.
Frá Laka er einnig
farið í dagslangar skoðunarferðir í
allar áttir, Skaftafell, Landmanna-
laugar, Laka, Eldgjá og Jökulsár-
lón, svo dæmi séu tekin.
Hótelið er opið allan ársins hr-
ing, jól, áramót og páska og eru
hátíðisdagarnir alltaf fullbókaðir.
Á veturna breytist stemmningin
töluvert, þá lokast hálendið og
fólk ferðast öðruvísi. „Þá er fólk
mikið að pæla norðurljósum. Við
erum með glerskála uppi á þaki
hjá okkur sem er mjög notalegt,
fólk fær teppi og heitt kakó og við
erum með þjónustu á nóttunni,
til að mynda norðurljósavakn-
ingu fyrir gestina okkar. Þetta er
kjörinn staður fyrir norðurljósa-
skoðun, hér er engin ljósmengun.“
Í nágrenni Hótel Laka
er hægt að fræðast,
veiða, skoða og ganga
Öskulagsbyrgi
Þar er hægt að lesa gossögu
landsins þúsund ár aftur í tímann
og finna öskulög úr flestum eld-
stöðvum landsins. Kötlu, Heklu,
Öræfajökli og Eldgjá.
Vatnið Víkurflóð
Staðbundin bleikja, urriði ásamt
ál. Stærð fiska er allt frá smáfiski
upp í 5-6 punda fiska.
Fuglarnir á flóðinu
Við Víkurflóð er heilmikið fugla-
líf, bæði varpfugla og farfugla.
Fuglaskoðunarhúsið við Víkurflóð
er einn ákjósanlegasti staðurinn
til að fylgjast með fuglalífi hér um
slóðir.
Bjarnagarður
Hér í sveit hefur verið stundaður
búskapur síðan landnám hófst,
hér eru ýmsar fornar menjar þess.
Bjarnagarður er ein þeirra. Falleg herbergi Nú eru 88 gistieiningar starfræktar á Hóteli Laka.
Hótelið
Hafist var
handa við
að byggja
nýja hótelið
árið 2005.
Norðurljós Ljósmengun er engin á Hótel Laka. Gestir geta pantað norðurljósavakningu og
notið sjónarspilsins með teppi og kakóbolla í hendi.
Setustofan Útsýnið er fallegt á Hóteli Laka.
Gamli tíminn Árið 1973 var pláss
fyrir fjóra í gistingu og boðið var
upp á „smörrebröd“. Mikið vatn
hefur runnið til sjávar síðan.
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 17 MATARTÍMINN