Fréttatíminn - 03.09.2016, Side 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. september 2016
og síðan hafa þrír aðrir staðir ver-
ið opnaðir. Íslendingar virðast því
hafa tekið Dunkin Donuts opnum
örmum og hefur keðjan meira að
segja opnað stað í Reykjanesbæ.
En Dunkin Donuts er ekki fyrsti
skyndibitastaðurinn sem lífeyris-
sjóðir á Íslandi fjárfesta í. Í fyrra var
sömuleiðis greint frá því að fram-
takssjóðurinn EDDA, sem er í eigu
lífeyrissjóða eins og Lífeyrissjóðs
verslunarmanna og Gildis, hefði
keypt fjórðungshlut í Dominos-píts-
um á Íslandi, eða móðurfélags fyrir-
tækisins, Pizza-Pizza ehf. Nú í sum-
ar var hluti þessara bréfa í Dominos
á Íslandi seldur til Dominos í Bret-
landi sem hefur séð skynsemina í
því að fjárfesta í Dominos á Íslandi
með þessum hætti. Íslenskir lífeyr-
issjóðir eiga því óbeina eignarhluti
í að minnsta kosti tveimur banda-
rískum skyndibitakeðjum á Íslandi.
Fyrir hrun fór fjárfestirinn Magn-
ús Kristinsson í Vestmannaeyjum
flatt á því að kaupa Dominos á Ís-
landi fyrir allt of hátt verð og var
fyrirtækið tekið yfir af lánardrottn-
um þess í kjölfar hrunsins og lífeyr-
issjóðirnir á Íslandi fóru sömuleiðis
illa á alls kyns innlendum fjár-
festingum á árunum fyrir hrunið.
Staðan á Íslandi eftir hrun og
setningu gjaldeyrishafta hefur
verið sú að íslenskir lífeyrissjóðir
hafa verið neyddir til að fjárfesta
innanlands að mestu og hafa þeir
gert það bæði með fjárfestingum
í skráðum og óskráðum félögum.
Árið 2010 áttu lífeyrissjóðirnir 10
prósent allra skráðra hlutabréfa á
Íslandi, árið 2013 var talan komin
upp í 43 prósent og í mars í ár var
þessi tala komin upp í 50 prósent.
Svo eru það allar óskráðu og óbeinu
eignir sjóðanna í fyrirtækjum eins
og Dominos og Dunkin Donuts.
Er þetta einsdæmi í heiminum?
Árni Pétur Jónsson segir, aðspurður
um hvort hann þekki dæmi þess að
lífeyrissjóðir í öðrum löndum hafi
fjárfest í Dunkin Donuts, að hann sé
ekki með á hreinu. Dunkin Donuts
í Bandaríkjunum, Dunkin Donuts
International, er hins vegar risa-
stórt fyrirtæki, skráð á hlutabréfa-
markað þar í landi. „Ég veit ekkert
um það. Almennt séð er Dunkin
Donuts fyrirtæki sem er búið að
vera til mjög lengi [frá 1950]. Þeir
eiga mjög fáa útsölustaði sjálf-
ir. Langflestir staðirnir eru rekn-
ir eins og staðurinn okkar, þetta
eru „franchise“-staðir og reknir
af aðilum eins og okkur. Það gætu
hins vegar verið fagfjárfestar eða
lífeyrissjóðir á bak við fyrirtækið í
Bandaríkjunum. Víða í Evrópu eru
hins vegar mjög margir leyfishafar,
það er kannski einn leyfishafi með
Berlín og svo annar með einhverja
aðra borg. Þetta eru alls kyns aðilar
sem maður hittir á fundum á veg-
um Dunkin Donuts erlendis.“
Birgir Örn Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Dominos á Íslandi,
segir að hann viti ekki til þess að
lífeyrissjóðir í öðrum löndum hafi
fjárfest í Dominos. Hann segir hins
vegar að í Bandaríkjunum, Ástral-
íu og Bretlandi, meðal annars, sé
fyrirtækið skráð á markað og í eigu
fjölmargra fjárfesta. Birgir Örn segir
því að það kæmi honum virkilega á
óvart ef einhverjir lífeyrissjóðir séu
ekki líka á meðal fjárfesta Dominos
erlendis.
Ekki er því hægt að fullyrða, mið-
að við fyrirliggjandi upplýsingar,
hvort það sé einsdæmi að lífeyris-
sjóðirnir íslensku kaupi hlutabréf í
fyrirtækjum eins og Dunkin Donu-
ts. Dunkin Donuts í Bandaríkjunum
er hins vegar risastjórt alþjóðlegt
fyrirtæki með tekjur upp á rúm-
lega 614 milljónir dollara, eða ríf-
lega 70 milljarða íslenskra króna,
samkvæmt ársreikningi þess fyrir
2015 og selur þetta fyrirtæki leyfi á
rekstri Dunkins Donuts út um allan
heim. Móðurfélag Dunkin Donuts á
Íslandi er hins vegar bara staðsett
og með rekstur á Íslandi. Áhætta
lífeyrissjóðanna sem fjárfesta í ís-
lenskum fyrirtækjum eins og Basko
ehf. og Dunkin Donuts er því bara
bundin við Ísland.
Heimsmet Íslendinga í innlendum
fjárfestingum
Í samtali við Fréttatímann segir
Hersir Sigurgeirsson, stærðfræðing-
ur og dósent í fjármálum við Há-
skóla Íslands, að staða innlendra
og erlendra eigna lífeyrissjóða
hafi ekki breyst mikið síðastliðið
ár. Hersir skrifaði skýrslu um fjár-
festingar lífeyrissjóðanna árið 2014,
ásamt Ásgeiri Jónssyni. Hann seg-
ir lífeyrissjóðina hafa haldið að sér
höndum í erlendum fjárfestingum
þrátt fyrir að þeir hafi fengið aukn-
ar heimildir til erlendra fjárfestinga
– samtals 80 milljarða króna – vegna
erfiðrar stöðu á mörkuðum. Hann
segir að 80 milljarðar séu svo lítill
hluti af 3000 milljarða eignum líf-
eyrissjóða að það þurfi miklu hærri
tölu til að breyta hlutfalli innlendra
og erlendra eigna þeirra verulega.
„Það þarf bara miklu meiri erlendra
fjárfestingu til að breyta þessu eitt-
hvað að ráði. Þessir 80 milljarðar
eru minna en þriðjungur af 10 pró-
sentum af eignum lífeyrissjóða.“
Í maí í fyrra sagði Hersir að ís-
lenskir lífeyrissjóðir ættu líklega
heimsmet í innlendum fjárfesting-
um:
„Ég held það sé alveg óhætt
að fullyrða að Ísland eigi þetta
heimsmet. Íslenska kerfið er eitt
það stærsta í heimi sem hlutfall af
landsframleiðslu, eða um 1,5xVLF
[Verg landsframleiðsla], og hlutfall
erlendra fjárfestinga er innan við
fjórðungur. Innlendar fjárfestingar
eru því um 115% af VLF. Aðeins Hol-
land er með stærra kerfi, 1,6x VLF,
og þar eru 40-50% erlendar eign-
ir svo innlendar fjárfestingar þar
eru innan við ein landsframleiðsla.
Noregur er einnig með stærra kerfi
ef olíusjóðurinn er tekinn með en
97% af honum er í erlendum eign-
um. Lífeyriskerfi annarra landa eru
innan við 115% í heildina svo ekkert
þeirra getur farið fram úr Íslandi.“
„Þessir 80 milljarðar eru
minna en þriðjungur af
10 prósentum af eignum
lífeyrissjóða.“
Lífeyrissjóðir í gjaldeyrishöftum
og kaupin á skyndibitastöðum
Litlar breytingar hafa orðið
á hlutfalli innlendra eigna
lífeyrissjóðanna á Íslandi
síðastliðið ár. Sjóðirnir
hafa ekki fullnýtt 80 millj-
arða króna erlendar fjár-
festingarheimildir og þó það
yrði gert myndi það varla
breyta hlutfalli innlendra og
erlendra eigna með róttæk-
um hætti. Íslenskir lífeyris-
sjóðir eiga nú óbeint hluta-
bréf í tveimur bandarískum
skyndibitastöðum á Íslandi
eftir að Dunkin Donuts var
selt í vikunni.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Bandaríski kleinuhringjastaðurinn
Dunkin Donuts á Íslandi er kominn
í meirihlutaeigu fjárfestingasjóðs,
Horns III, sem er meðal annars í
eigu íslenskra lífeyrissjóða eins og
greint hefur verið frá. Hlutur Horns
III í móðurfélagi Dunkin Donuts,
Basko ehf., verður 80 prósent í kjöl-
far viðskiptanna og Árni Pétur Jóns-
son, framkvæmdastjóri og hluthafi
í Basko ehf., segir að kaupverðið sé
trúnaðarmál. Basko ehf. á einnig
og rekur verslanakeðjurnar 10-11
og Iceland, auk innflutningsfyrir-
tækisins Imtex ehf. og hamborgara-
staðarins Bad Boys. Mikilvægustu
rekstrareiningarnar í viðskiptunum
eru 35 verslanir 10/11.
Ísland ofarlega á heimslistanum
Vegna gjaldeyrishaftanna síðast-
liðin ár hafa íslenskir lífeyrissjóð-
ir þurft að fjárfesta innanlands að
langmestu. Eignir íslenskra lífeyr-
issjóða nema um 3000 milljörðum
króna eða sem nemur um 150 pró-
sentum af þjóðarframleiðslu.
Um það bil 25 prósent af þess-
um eignum eru erlendar eign-
ir en samkvæmt tölum OECD frá
2014 þá var Ísland í fimmta sæti
á heimslistanum yfir minnstu er-
lendar eignir lífeyrissjóðakerfisins
í prósentum talið. Einungis lífeyr-
issjóðir í Japan, Ísrael, Tékklandi og
Mexíkó áttu minni erlendar eign-
ir en íslensku sjóðirnir. Erlendar
fjárfestingarheimildir lífeyrissjóð-
anna hafa hins vegar verið rýmk-
aðar lítillega og hefur Seðlabanki
Íslands veitt heimild til 80 milljarða
króna erlendra fjárfestinga þeirra í
skrefum. Lífeyrissjóðirnir hafa hins
vegar ekki nýtt þá heimild nema að
litlu leyti.
Fyrst Dominos og svo Dunkin
Donuts
Fáir hefðu sennilega getað ímynd-
að sér það Dunkin Donuts yrði í
meirihlutaeigu lífeyrissjóða og
annarra fagfjárfesta rúmu ári eft-
ir að staðirnir opnuðu á Íslandi.
Sagt var því í fjölmiðlum að löng
röð hefði myndast fyrir utan fyrsta
Dunkin Donuts staðinn á Laugavegi
þegar hann opnaði í ágúst í fyrra
Árni Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri
Basko ehf., veit ekki til þess að
lífeyrissjóðir í öðrum löndum hafi
fjárfest í Dunkin Donuts en segir að
móðurfyrirtækið í Bandaríkjunum
sé stórfyrirtæki skráð á markað og
að í hluthafahópnum séu örugglega
einhverjir lífeyrissjóðir.
Dunkin Donuts
bætist við Dominos
sem eitt af þeim
fyrirtækjum sem ís-
lenskir lífeyrissjóð-
ir eiga nú óbeinan
hlut í gegnum
fjárfestingarsjóð.
Kleinuhringjafyrir-
tækið er með fjóra
staði á Íslandi.
Upplýsingar í símum
845 1425 / 899 1295 eða á
tölvupósti info@iceline.is
Verð á mann í tvíbýli kr 622.000
Nánari ferðalýsing á
www.icelinetravel.com
Sydney, Brisbane, Fraser Island,
strandbærinn Noosa, þjóðgarðar og fl.
er meðal þess sem boðið verður upp á í þessari ferð.
Ástralía
18. nóv til 5. des 2016