Fréttatíminn - 03.09.2016, Blaðsíða 42
Orri Stefánsson og Björk Filipsdóttir búa fallegu parhúsi í Lindunum í Kópa-vogi. Fyrr á þessu
ári ákváðu þau að gera algerlega
upp baðherbergið hjá sér og var
það gert upp frá grunni. „Öllu
var skóflað út, skipulaginu breytt
aðeins og allt endurnýjað,“ segir
Orri. Eftir töluverða umhugsun og
bollaleggingar ákváðu hjónin að
tala við Baðlínuna sem sérhæfir sig
í allsherjar breytingum á baðher-
bergjum. Það hentaði þeim þegar
upp var staðið mjög vel og voru
þægindin þar efst á baugi. „Við
völdum innréttingu og tæki, borð-
plötu og flísar, en vorum að öðru
leyti ekki að hræra mikið í þessu
sjálf. Þetta er mjög þægilegt upp
á að það að gera að það þarf ekki
alltaf að vera að hringja í múrara,
rafvirkjann eða píparann og svo
framvegis. Maður losnar við allt
þetta kvabb, það þarf þá allavega
bara að kvabba í einum aðila ef
það þarf að kvabba eitthvað!”
Alls tóku framkvæmdirnar um
4 vikur og segir Orri almenna
ánægju ríkja með útkomuna. „Mér
fannst þetta allt í lagi áður en
Björk var nú ekki aldeilis á því – og
hún fékk „náttúrlega“ að ráða, svo
sér maður muninn þegar þetta er
allt klárt og gerir sér grein fyrir að
þetta var algerlega komið á tíma,“
Segir Orri og hlær.
Frábærlega
vel heppnað
baðherbergi í
Kópavoginum
Hlýlegir litir og notaleg lýsing.
Ljósaspegillinn er sérsmíðaður hjá
Glerborg.
Björk Filipsdóttir, Orri Stefánsson og
hundurinn Geisli.
Fyrir breytingar. Baðherbergið var komið
á tíma og vantaði meira skápapláss og
meiri þægindi.
Handklæðaofninn, sturtutækið, niðurfall-
ið, vaskurinn, salernið og blöndunartæk-
in eru frá Tengi.
Innréttingarnar
eru frá Ikea, en
borðplatan er
sérsmíðuð hjá
Fanntófelli.
Bæði hreinlegt og þægilegt er að fella
hólf inn í vegginn fyrir sápur og sjampó.
Flísarnar og mósaík flísamotturnar eru úr Concept Beige línunni frá Rango.
Sturtuglerið og festingarnar eru frá Glerborg.
…heimili & hönnun 6 | amk… LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Fanntófell ehf. | Bíldshöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
· Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré.
· Mikið úrval efna, áferða og lita.
· Framleiðum eftir óskum hvers og eins.
· Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði.
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.