Fréttatíminn - 03.09.2016, Blaðsíða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. september 2016
liþíum DL2032 batterí var líklega í
200 kílómetra fjarlægð.
Þyrftum við í alvöru að skilja bíl-
inn eftir og bíða eftir vikulegu flugi
frá Gjögri í bæinn?
Rafgeymirinn var grandskoðaður.
Öryggin voru endurnýjuð. EKA kóð-
ar voru reyndir.
Á fimmta tímanum var Gulli far-
inn að finna verulega til með okk-
ur og hreinlega skipaði okkur að
taka risajeppann sinn til afnota yfir
daginn, komast að lauginni þar sem
vegurinn endar og slaka bara vel á.
Hann hét því að við myndum finna
út úr bílaveseninu í sameiningu
eftir sundferðina. Lífsreyndu sjó-
mennirnir komu aftur á vettvang.
Þeir höfðu keyrt um sveitina í leit að
bilunargreiningartölvu og rennt yfir
leiðavísi Land Rover á netinu. Þeir
minntu okkur aftur á að það væri
ekki til betri staður í veröldinni til
að stranda á, tilfinning sem við vor-
um farnar að finna sterklega fyrir
eftir alla hjálpsemina. Flug heim á
þriðjudeginum var hætt að hljóma
illa, ekkert að því að kynnast þessu
samfélagi örlítið betur. Heimamenn
töluðu um sól og blíðu í kortunum
og svo heyrðum við einhvern minn-
ast á partí í Kaupfélaginu.
Eftir sundsprett við eitt fallegasta
útsýni landsins uppgötvaði sund-
laugarvörðurinn og fyrrverandi
fjárbóndinn Davíð að í bíllyklin-
um hans væri alveg eins batterí og
í okkar lykli. Við keyrðum til baka
á bílnum hans Gulla, jafn fullar
eftirvæntingar og restin af samfé-
laginu við Norðurfjörð, íslenski Land
Rover-klúbburinn, breski hjálp-
arsími bílaframleiðandans og fjöl-
skyldumeðlimir í Reykjavík. Og viti
menn, bíllinn hrökk í gang.
Þar sem löngu var útséð með fjall-
göngu og hvalaskoðun bauð Gulli
okkur heim í Steinstún þar sem
helstu bjargvættir okkar úr bílaæv-
intýrinu voru samankomnir. Kvöldið
var ungt og vinirnir í Norðurfirði
ákváðu að grilla saman. Kvíðinn
fyrir vetrarkuldanum var farinn að
læðast aftan að þeim og síðustu sól-
argeislarnir skyldu nýttir til fulls. Að
auki var okkur boðið í „klára kútinn
partí“ þar sem kaffihúsinu við kaup-
félagið hafði verið lokað fyrir vetur-
inn án þess að síðustu dreggjarnar
væru kláraðar.
Hafnarstýran Elín Agla var með
lyklavöld að kaffihúsinu og þangað
streymdu fleiri bændur úr sveitinni.
Bílavesenið hafði spurst út og
enginn ætlaði að missa af hittingi
við höfnina. Við heyrðum fleiri sög-
ur af svæðinu, sumar góðar, aðrar
ljúfsárar. Það er ekkert grín að fara
með börnin sín í skólann á vélsleða
í niðamyrkri, að vera innilokaður í
nokkra mánuði á ári því Vegagerðin
vill ekki moka fyrir nokkrar hræður.
Að fá rétt svo nóg rafmagn til að geta
lifað en ekki nóg fyrir lúxus á borð
við frystikistu undir vetrarforðann
eða nýja þvottavél. Gjaldið fyrir að
elska landið sitt og vilja búa við ræt-
urnar er dýrkeypt.
Fólkið á Ströndum er náið og
stendur saman. Samfélagið er eins
og ein stór fjölskylda og gestum er
tekið opnum örmum. Eins og Elín
Agla sagði okkur þá kom hún þangað
tómhent fyrir nokkrum árum með
hugmyndir um að setjast að í fá-
mennustu sveit landsins og bjóst allt
eins við því að missa jafnvægið. En
í stað þess að detta á rassinn þá tók
samfélagið hana í fangið. Það sama
tók á móti okkur þegar batteríið dó.
Í stað þess að verða strandaglópar á
Ströndum kynntumst við mögnuðu
samfélagi fólks sem stendur saman,
sama hvað. Eins og sjóararnir sögðu,
þá er gott að vera strand á Strönd-
um.
Liþíumbatteríið margfræga, DL2032.
Gulli sá um dæluna í "klára kútinn partíinu".
Þessa mynd tók
skálavörðurinn
Arnaldur af
ferðalöngum
fyrir brottför í
bæinn, reynsl-
unni ríkari.
Stemning í Steinstúni.
Úr Krossneslaug er hægt að njóta óviðjafnanlegs útsýnis.
Flug heim á
þriðjudegin-
um var hætt að
hljóma illa, ekkert
að því að kynnast
þessu samfélagi
örlítið betur.
Heimamenn
töluðu um sól og
blíðu í kortunum
og svo heyrðum
við einhvern
minnast á partí í
Kaupfélaginu.
Margskipt gler:
49.900 kr.
Fullt verð: 94.900 kr
SÍMI 5 700 900
KRINGLUNNI 2. HÆÐ
HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
SELESTE
umgjörð á: 1 kr.við kaup á glerjum
ÖLL GLERIN KOMA MEÐ RISPU-,
GLAMPA- OG MÓÐUVÖRN OG ÞYNNTU PLASTI.
Sérblað um
Vetrarferðir
auglysingar@frettatiminn.is | 531 3300
Þann 16. september