Fréttatíminn - 03.09.2016, Síða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. september 2016
Endur fyrir löngu,
kannski fyrir 150
þúsund árum,
birtist homo
sapiens á
sjónarsviðinu.
Í fyrstu skar
hann sig ekki
mikið úr hópi
annarra mann-
tegunda sem
þá voru uppi.
Steini var lamið í
stein, eldur logaði
við fætur sofandi fólks
og matar var leitað. En
fyrir um 70 þúsund árum
breyttist eitthvað í heilabúi
þessarar nýju tegundar.
Helgi Hrafn Guðmundsson
ritstjorn@frettatiminn
Nokkur þúsund árum
síðar hafði hann
lagt plánetuna
undir sig, kom-
ið sér efst í
fæðukeðjuna
og útrýmt
fjölda dýra-
tegunda –
þar á meðal
öllum öðrum
manntegund-
um. „The rest is
history“ ef marka
má bókina Sapiens
eftir sagnfræðinginn Yu-
val Noah Harari, sem nú selst eins og
heitar lummur um allan heim.
Menn – það er að segja ýmsar
tegundir mannsins – hafa verið til
í um það bil 2,5 milljónir ára. Nán-
C. Mann hefur til dæmis uppnefnt
Harari „Reddit-notanda fræða-
heimsins“ og vísar þar í vefsíðuna
reddit.com þar sem einfeldnings-
legar bollaleggingar um söguna líta
stundum dagsins ljós. En þó þessir
annmarkar séu á bókinni að sumu
leyti, er hún einkar hjálpleg til
glöggvunar á stærstu spurningun-
um. Hún fær flesta til að líta örlítið
í kringum sig og átta sig á hversu
brenglaður veruleiki og saga manns-
ins er í raun og veru. Texti bókar-
innar er strangt til tekið líkari heim-
spekilegri pælingu en sagnfræðilegu
stórvirki. Það er mikilvægt að sagan
sé okkur öllum aðgengileg og það er
því ekki úr vegi að líta á eitt og ann-
að úr bókinni.
Þrjár byltingar
Saga mannsins skiptist í þrjár stór-
ar byltingar að mati Hararis. Mann-
kynssagan hófst í raun með „vits-
munalegu byltingunni“ fyrir um
50-70 þúsund árum, svo kom „land-
búnaðarbyltingin“ fyrir um 12 þús-
und árum sem færði manninn upp
á enn hærra plan. Næstu árþús-
undin fóru í að sameina allt mann-
kynið og leggja undir okkur gervalla
plánetuna. Og loks var það „vísinda-
byltingin“ fyrir um 500 árum síð-
an sem hefur gert okkur að óstöðv-
andi og stórhættulegri dýrategund.
En við munum, samkvæmt spám
Hararis, hverfa á næstu öldum. Við
munum ekki deyja út (ekki nema
að stórslys verði), heldur uppfæra
líkama okkar með líftækni svo að á
endanum muni homo sapiens fræði-
lega ekki lengur vera til.
Ímyndun lykill alls
Í þessari upptalningu var vitsmuna-
lega byltingin líklega sú merkileg-
asta. Erfðafræðileg stökkbreyting
breytti heilastarfsemi mannsins og
gerði honum kleift að nota tungumál
á nýjan hátt. Maðurinn gat nú notað
ímyndunaraflið til að fá stóra hópa
til að vinna saman. Hvað er átt við
með því? Jú, með því að risastórir
hópar manna trúa sömu skálduðu
sögunni – til dæmis um guði, pen-
inga, þjóðsöngva, stjórnarskrá,
verslunarmannahelgar, skrímsli,
Pokemon Go og himnaríki – vinna
þeir saman að sama markmiði.
Talið er að „slúður“ um náungann
og lygar hafi verið fyrsti vísirinn
að þessari byltingu. Það væri herfi-
legt kaos og rugl að hafa tíu þúsund
simpansa á Péturstorgi í Róm, en tíu
þúsund homo sapiens á Péturstorgi
halda saman útimessu. Skáldskapur-
inn – hlutir sem eru hvergi til í efn-
isheiminum – límir þá saman. „Það
eru engir guðir í alheiminum, engar
þjóðir, engir peningar, engin mann-
réttindi, engin lög og ekkert réttlæti
utan við hina hefðbundnu ímyndun
mannvera,“ skrifar Harari.
Eina tegundin sem vinnur saman
Við ráðum lögum og lofum á plánet-
unni vegna þess að við erum eina
tegundin sem getur stundað sveigj-
anlegt samstarf á stórum skala.
Sumar skepnur, eins og býflugur
og maurar, geta unnið þúsund-
um saman en aldrei sveigjanlega.
„Býflugur geta ekki steypt drottn-
ingunni af stóli og komið á komm-
únísku þjóðfélagi,“ skrifar Harari.
Önnur dýr, eins og simpansar og
górillur, geta stundað sveigjanlegt
og náið samstarf með nánustu fjöl-
skyldumeðlimum sínum en aldrei
með stórum hópum. Menn eru
eina tegundin sem sameinar þetta
tvennt. Við stundum sveigjanlegt
samstarf þúsundum og milljónum
saman – og það með ókunnugu
fólki.
Homo sapiens hefur verið uppi í um 150 þúsund ár. Mynd | Getty
Homo sapiens
sigraði heiminn
með ímyndun
að vopni
Bók Hararis fjallar um alla mannkyns-
söguna á frumlegan hátt. Hún kom
fyrst út í Ísrael árið 2011 en selst nú eins
og heitar lummur víða um heiminn.
Yuval Noah Harari
segir eitthvað hafa
breyst í heilabúi
mannsins fyrir um
70 þúsund árum.
ast í allan þann tíma, eða þar til fyr-
ir um tíu til tuttugu þúsund árum,
voru ávallt margar tegundir manna
uppi á sama tíma á jörðinni. Fyrir
um 50-70 þúsund árum bjuggu til
dæmis neanderthalsmenn í Evrópu,
homo erectus á ýmsum stöðum
í Asíu og homo sapiens, forfeður
okkar, í Austur-Afríku. Fram að því
höfðu tegundirnar deilt plánetunni
án þess að rekast neitt sérstaklega
á. Homo sapiens var, rétt eins og
hinar tegundir mannsins, enginn
merkilegur áhrifavaldur á jörðinni,
heldur aðeins af ein af nokkrum
tegundum dýra sem lifðu og nærð-
ust í vistkerfum heimsins, rétt eins
og marglytta, æðarfugl, háhyrning-
ur eða simpansi.
Af hverju bara við?
Í dag er maðurinn óvanur því að
hugsa um sig sem eina tegund innan
ættkvíslar annarra manntegunda.
En þegar við hugsum betur um það,
finnst okkur skrýtið að nokkrar ólík-
ar tegundir séu til af til dæmis bjarn-
dýrum – skógarbjörn, svartbjörn og
ísbjörn? Fyrir um 50 þúsund árum
gerðist eitthvað því þá varð ein
þessara manntegunda, tegundin
okkar, skyndilega gífurlega uppi-
vöðslusöm og breytti ásýnd jarðar
til frambúðar. Fjöldi dýrategunda
dó út og þar með taldar allar aðrar
manntegundir. En hvað gerðist? Og
hvernig hefur líf tegundarinnar okk-
ar verið síðan þá?
400 blaðsíður um alla söguna
Þetta er hin gífurlega stóra mynd
sem ísraelski sagnfræðingurinn Yu-
val Noah Harari dregur upp í bók-
inni Sapiens sem út kom í heima-
landi hans árið 2011 og hefur síðan
verið þýdd á yfir 30 tungumál.
Í henni veltir hann fyrir sér
stærstu spurningunum um titil-
tegundina og áhrif hennar á jörðina.
Þó að vísindin og gögnin á bak við
flestar staðreyndir bókarinnar séu
ekki frá Harari sjálfum komin, er
hið stóra samhengi mannsins bæði
í nútíma og mörg hundruð þúsund
ára fortíð hans dregið upp á aðgengi-
legan og nýstárlegan hátt. Þessi saga
er þó auðvitað sögð á sannkölluðu
hundavaði, enda er bókin ekki nema
um 400 blaðsíður að lengd.
Einföldun eða frábær hugvekja?
Harari hefur verið gagnrýndur fyrir
einföldun á sumum flóknum atburð-
um og breytingum í sögu mannsins.
Bandaríski blaðamaðurinn Charles