Fréttatíminn - 03.09.2016, Page 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. september 2016
Dýr Ástralíu hurfu
Jörðin fann strax fyrir þessari vits-
munalegu byltingu því hún hafði í
för með sér vistfræðilegt stórslys frá
byrjun. Maðurinn komst til Ástral-
íu fyrir um 46 þúsund árum síðan
og kom þar að ósnortinni náttúru.
Líffræðingar hafa tímasett gríðar-
legt útrýmingarskeið dýrategunda
í Ástralíu við sama tímapunkt. Gríp-
um niður í bókina: „Sjórinn skol-
aði strax burt fyrsta fótsporinu sem
maður steig á ástralskri strönd. En
þegar landnemarnir herjuðu inn í
landið skildu þeir eftir öðruvísi fót-
spor sem aldrei verður afmáð. Þegar
þeir héldu áfram fundu þeir furðu-
legan heim með óþekktum verum
eins og 200 kílóa, tveggja metra háa
kengúru og pokadýrsljón á stærð við
tígrisdýr, sem var stærsta rándýr álf-
unnar. Risastórir kóalabirnir – alls
engir krúttlegir bangsar – hömuð-
ust í trjánum og ófleygir fuglar, tvö-
falt stærri en strútar, voru á spretti
um slétturnar. Skriðdýr í drekalíki
og fimm metra langar slöngur lið-
uðust um lággróðurinn. [...] Eftir
örfá árþúsund voru nær allir þessir
risar horfnir. Af þeim 24 áströlsku
dýrategundum sem voru 50 kíló eða
þyngri urðu 23 útdauða.“ Þegar for-
feður okkar fóru yfir Beringssund-
ið og til Ameríku gerðist það sama.
Um 70% allra stórra dýra dó út á
nokkrum öldum eftir komu manns-
ins.
Landbúnaðarbyltingin mistök?
Homo sapiens lagði undir sig plánet-
una á stuttum tíma og þá tók við
landbúnaðarbyltingin. Harari hef-
ur skemmtilega sýn á hana. Homo
sapiens voru nánast alla sögu sína
á jörðu veiðimenn og safnarar. Þau
200 ár sem nokkuð margir einstak-
lingar tegundarinnar hafa unnið
sem verkamenn eða skrifstofumenn
í borgaralegu samfélagi, eða þau 10
þúsund ár á undan þar sem nánast
allir homo sapiens unnu á ökrum
eða sem hirðingjar, eru því aðeins
eitt augnablik í samanburði við þau
150-200 þúsund ár sem skepnan hef-
ur verið uppi. Harari bendir á nýj-
ar rannsóknir í þróunarsálfræði. Sú
fræðigrein byggir á að félagslegir
og hugrænir eiginleikar mannsins
séu afleiðing aðlögunar í gegnum
söguna og hafi því mótast fyrst og
fremst á tímabilinu okkar sem veiði-
menn og safnarar. Þess vegna eru
þarfir manna í dag enn mótaðar af
líferni þessara forfeðra okkar. Það
Leið okkur betur á steinöld?
megi útskýra vanlíðan, streitu og
ýmsa sálræna og líkamlega kvilla
sem nútímamaðurinn þjáist af í hinu
samt háþróaða samfélagi þar sem
lífskjör hafa aldrei verið betri.
„Hvers vegna hámar fólk í sig mat
með alltof miklum hitaeiningum
sem er óhollt fyrir það? Samfélög
nútímans þjást vegna offituvanda-
mála. Við skiljum ekkert hvers vegna
við sækjum í sætasta og feitasta mat-
inn sem hugsast getur, nema ef við
skoðum fæðu veiðimannanna og
safnaranna, forfeðra okkar,“ skrif-
ar Harari. „Í skógunum sem þeir
bjuggu var hitaeiningaríkur matur
af mjög skornum skammti eins og
fæða almennt var þá. Fyrir um 30
þúsund árum voru þroskaðir ávextir
einu sætindin sem safnari rakst á. Ef
steinaldarkona fann fíkjur í skógin-
um var langsniðugast að háma þær
allar í sig í einu áður en brjálaðir ba-
víanar mættu á svæðið. Sú eðlisá-
vísun að háma í sig slíka fæðu festist
þannig í sessi í genum okkar.“
Einhæft og vansælt
Eftir landbúnaðarbyltinguna varð
fæða mannsins mun fábreyttari en
áður. Í Asíu voru nú nánast einung-
is hrísgrjón étin og í Miðausturlönd-
um hveiti. „Fæða veiðimanna og
safnara var mun betri. Enda er það
ekki skrýtið – það hafði verið fæða
mannsins í hundruð þúsunda ára og
líkaminn hafði aðlagast.“ Auk þess
breyttist lífsstíll manna gífurlega,
þeir þjöppuðust saman á landbún-
aðarsvæðum og lífið varð einhæfara.
Í staðinn fyrir að þeytast um skóga,
hóla og hæðir í leit að mat fór allt líf
fram á ökrum, þar sem sama iðjan
var stunduð dag eftir dag. Þetta telur
Harari að hafi dregið mikið úr lífs-
gæðum mannsins sem bjó við þessa
lífshætti fram á okkar daga.
Iðnaðarbúskapur versti glæpurinn
Landbúnaðarbyltingin hafði ekki
einungis áhrif á manninn sjálfan,
hún hefur auðvitað einnig breytt
dýralífi jarðar. Það hefur svo enn
aukist eftir tilkomu vísindabyltingar-
innar fyrir um 500 árum þegar
mannkynið er orðið alltumlykjandi
á plánetunni. Í dag er meirihluti
allra stórra dýra á jörðu húsdýr,
sem flest eru fórnarlömb landbún-
aðariðnaðar, slátrunar á risastórum
skala. Þetta telur Harari einn versta
glæp mannkynsins. Því að á sama
hátt og þróunarsálfræði útskýrir
hvers vegna menn eru mótaðir af
langri sögu sinni, gildir það sama
um dýrin. Nautgripir eru til dæm-
is félagslegar verur sem mótuðust
í gegnum árþúsundin. Þegar þeir
lifa í villtri náttúrunni þurfa þeir að
nota félagslegar athafnir til að vaxa
og dafna, nærast og fjölga sér. Þessi
dýr þjást því mikið í landbúnaði nú-
tímans þar sem ungviðið er til dæm-
is oftar en ekki aðskilið frá öðrum
skepnum og ýmsar aðrar hömlur
eru lagðar á dýrin.
Verðum við næst guðir?
Síðustu kaflar Sapiens líkjast frekar
skrifum vísindaskáldsöguhöfundar-
ins Arthurs C. Clarke. Hann telur
að með líftækni og öðrum háþró-
uðum vísindum munu næstu ald-
ir einkennast af tilraunum manns-
ins til að „uppfæra“ líkama sína. Þá
muni næsta byltingin hefjast þar
sem menn breytast í nokkurs konar
„guði“. Það er líklega hollast að velta
því fyrir sér því saga mannsins hef-
ur hingað til verið með ólíkindum.
Annars er bent á bókina sjálfa, Sapi-
ens eftir Yuval Noah Harari.
Fáðu Opn heyrnartæki til prufu í 7 daga.
Tímapantanir í síma 568 6880.
www.heyrnartaekni.is
Fullkomnustu heyrnartækin frá Oticon
Prófaðu nýju Opn
heyrnartækin í 7 daga
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Nýtt heyrnartæki.
Sannað að auðveldi
heilanum að heyra.
með BrainHearing™ tækni
Heilinn vinnur á ótrúlegum hraða við að greina úr hljóðum. Nú getur þú fengið heyrnartæki
sem heldur í við hann! Nýju Opn heyrnartækin frá Oticon búa yfir BrainHearing™ tækni
sem vinnur úr hljóði á ofurhraða. Rannsóknir hafa sýnt að með Opn heyrnartækjum batnar
talskilningur um 30%*, áreynsla við hlustun minnkar um 20%* og þú manst um 20% meira
af samtölum þínum**. Opn heyrnartækin létta á álagi við að heyra og auðvelda þér að fylgja
samræðum í krefjandi hljóðumhverfi.
* Borið saman við Alta2 Pro heyrnartæki. | ** Ávinningur einstaklinga getur verið breytilegur og er háður tæki sem hefur verið notað.