Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 03.09.2016, Page 32

Fréttatíminn - 03.09.2016, Page 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. september 2016 Áföllin verða alltaf hluti af mér, eru bara gjafir sem mér hafa verið gefnar, þótt þau hafi truflað lífið líka,“ segir Elísabet Jökuls dóttir. Hún ætlar að fá að lofta út og viðra áföllin í gjörningi. Skreytti jólatréð með áföllum „Ég var á listahátíð í janúar á þessu ári, jólin nýafstaðin og þar var gamalt jólatré í horninu í eldhúsinu. Það var þarna kona frá Ísrael. Hún vildi endilega fara gefa öllum ljós í bænum þar sem við vorum. Ég uppgötvaði að ég var alltaf að horfa á þetta jólatré og ég fór og skreytti jólatréð með áföllunum. Áföllin urðu skraut á jólatréð. Þrjú stærstu áföllin Dauði föður míns, sem leiddi til minnar geðveiki, varð til þess að ég var lokuð inn á Kleppi. Svo var strákurinn minn tekinn frá mér út frá alkóhólisma. Það er ómögu­ legt að segja hvaða áföll eru þau stærstu en þetta áfall við að missa pabba minn er búið að stjórna lífi mínu í 40 ár. Bæði mér sem listamanni og rithöfundi og sem manneskju. Og sem konu í ástar­ samböndum. Ég hef alltaf verið að búa til sama sambandið aftur og aftur þegar ég hef orðin ástfangin og verð alltaf skotin í ein hverjum mönnum sem þýðir ekkert að vera skotin í. Ég var samt alltaf að skrifa um þetta, skrifa stórkost­ legar sögur um þetta. Svo fattaði ég það í sumar að þetta var bara áfallastreituröskun. Að missa soninn frá sér í neyslu Það er áfall sem ég hef aldrei getað tekist á við, reyni alltaf að þagga það niður, það var of sárt. Það hafa margar konur misst frá sér börn í neyslu, við höfum öll lent í alls konar áföllum og það er alltaf verið að halda því fram að það megi ekki tala um þetta nema inn á sálfræðistofum, í lokuðu herbergi og borga 16.000 krónur fyrir. Ég er búin að vera hjá geðlæknum og sálfræðing­ um í mörg ár en fattaði sjálf mitt „trauma“ í sumar. Ég sé til hvernig þetta verður, þetta verður bara flott, ég ætla ekki að fara rífa út úr mér hjartað og brytja það í búta. Ég reyna tækla áföllin á nýjan hátt. Núna eru áföll komin í Bæjar­ bíó, skilurðu. | hdó Elísabet Jökulsdóttir verður með gjörning í Bæjarbíói þar sem hún ræðir um áföll sín í lífinu. Mynd | Rut Orðin leið á dauða föður míns Elísabet Jökulsdóttir talar um 30 áföll, sem eru stór hluti af lífi hennar, í gjörningi í Bæjarbíói á sunnudagskvöld. Sýning Hildar Bjarnadóttur, Vistkerfi lita, saman stendur af verkum sem unnin eru úr litum plantna sem vaxa á landi hennar austur í Flóa. „Á sýningunni nota ég tvö litakerfi í verkin,“ segir Hildur. „Annars vegar manngerða akrýlliti og hins vegar jurtaliti sem ég bý til sjálf. Ég nota liti sem efnivið í verkum mínum og leiði hjá mér allar táknrænar hliðar sem þeim tengjast.“ Verkin á sýningunni eru ofin veggverk og silkidúkar í mörgum stærðum en Hildur lítur svo á að í lit verkanna búi upplýsingar um ástand náttúr­ unnar og umgengni mannsins um hana. „Ég lít á plönturnar sem ég nota til búa til jurtalitinn sem upp­ tökutæki. Plöturnar geyma mik­ ilvægar upplýsingar og uppruni litarins skiptir mig meira máli en útlit hans.“ Verkin eru unnin með lit úr plöntum sem finna má í landspildu í Gaulverjabæ, Þúfugörðum, þar sem Hildur hefur komið sér fyrir til að vinna að verkum sínum. Þarna vinnur mynd­ listarkonan liti úr plöntum á borð við blóðberg, hrúta­ berjalyng, þursa­ skegg, hálmgresi og mýrasóley, svo aðeins nokk­ ur grös jarðar sé nefnd. | gt Býr til liti úr plöntum Hönnunar og auglýsingastofan Döðlur flutti nýlega vinnuaðstöðu sína út á Granda. Áður var stofan við Laugaveginn en nú eru allir sáttir að vera komin í friðsæld við sjóinn. Vinnustofan er einstaklega vel heppnuð, enda hönnuðir á bak við hvert horn: „Við hönnuðum borðin, nokkra stóla. Svo erum við hrifnir af fagur­ bleikum litnum og svo eru það plönturnar. Gott að vera í svona opnu rými. Við finnum það eftir að hafa verið hérna í 3 mánuði að það léttir rosa­ lega á manni að komast hingað út á Granda. Ekkert ónæði, næstum því eins og að koma upp í sveit. Mjög sjarmerandi stemning. Mikið af skapandi fólki hérna í rýmunum í kring en svo er Sjófiskur ennþá hérna í horninu, að pakka fiski og senda út í heim. Þetta er ennþá með þeim hætti en það á örugglega eftir að breytast.“ Alls kyns efni er hannað hjá Döðlum, fatnaður, tímarit og nú nýlega hús: „Við vorum að hanna hús, við erum að klára það núna, í Hvalfirðinum, allt er gert hjá Döðlum; ef það þarf að hanna það þá getum við reynt,“ segir Benni, annar eigandi Daðla. Listamaðurinn Ólafur Elíasson er að flytja vinnu­ stofuna sína í Marshall­húsið við Grandann og fé­ lagarnir hjá Döðlum eru mjög spenntir fyrir komu hans: „Við munum bjóða Ólafi Elíassyni í kaffi, hann verður pottþétt mikið hérna hjá okkur að „brain­ storma“, honum er hér með formlega boðið í kaffi,“ segja vinirnir á Döðlum. | hdó Vinnustofan Döðlur vilja bjóða Ólafi Elíassyni í kaffi Hressir starfsmenn á Döðlum. Mynd | Rut Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.