Fréttatíminn - 03.09.2016, Síða 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. september 2016
Kastljóshópurinn hittist daglega
og ræðir mikilvægustu hluti sam
félagsins ásamt því að spekúlera í
vondu kaffi.
„Við mætum yfirleitt klukkan 9
og fundum klukkan 10. Þá förum
við yfir hvað er í gangi, þáttinn í
gærkvöldi og verkefnin sem liggja
fyrir. Baldvin er oft með eftir
hermur, hann er mikill snilling
ur, sérstaklega í gömlum stjórn
málamönnum. Hann er búinn að
mastera Jónas frá Hriflu. Hann
er vanur að taka eina eða tvær á
meðan við fáum okkur kaffi og ger
um okkur klár fyrir daginn,“ segir
Helgi Seljan, á léttu nótunum, um
samstarfsfélaga, sinn Baldvin Þór
Bergsson.
Vinsælt er að safnast saman hjá
kaffivél Ríkisútvarpsins þar sem
nammi liggur á borðum og sam
starfsmenn ræða daginn. Helgi
er fastur á því að það vanti verra
kaffi hjá RÚV: „Kaffið upp í RÚV
hefur skánað mjög mikið. Kaffi
vélar á vinnustöðum eru eins og
buxnaskálmar. Útvíðar buxur eru
voða töff í smá tíma, svo verða þær
ógeðslega hallærislegar. Kaffivél
arnar eru voðalega mikið þannig á
vinnustöðum, eins töff og þær eru
í byrjun þá fær maður ógeð af kaff
inu eftir smá stund. Ég er alltaf að
bíða eftir að þetta kaffisnobb fari
út í það að menn veiti því athygli
hvað vel vont kaffi getur verið
gott. Semí soðið. Vel vont kaffi er
eiginlega það besta sem til er. Mér
finnst kaffið hérna ekki nógu vont,
ég væri til í að hafa svona staðnaða
kaffikönnu sem er smám saman
búin að sjóða allan daginn.“ | hdó
Morgunstundin: Kastljós og vont kaffiKaffið á RÚV mætti vera verra, segir Helgi Seljan. Mynd | Rut
Kvennlandsliðið í fótbolta
er að undirbúa sig þessa
dagana fyrir tvo seinustu
leiki undankeppni EM.
Mikilvægt er að halda sig
við hefðirnar rétt fyrir leiki
og verða skotkeppni og lög
Stuðmanna reglulegir gestir
á æfingu stelpnanna.
Hallbera Guðný Gísladóttir, fyrir
liði landsliðsins, segir okkur frá
hefðum og undirbúningi fyrir
lokaleikina núna í september.
Hvernig undirbúið þið ykkur?
„Við undirbúum okkur í að gull
tryggja okkur þetta sæti, það
kemur ekkert annað til
greina en sigur. Það er
þægilegra að vera hérna
heima, þá getur maður
bara mætt á æfingu og
þarf ekki að mæta
upp á hótel fyrr
en degi fyrr, að
eins frjálslegra.
Það er alltaf
eins daginn
fyrir leik þá er
keppni, eldri á
móti yngri, þar
ráðast líka úr
slitin, sú keppni
er búin að vera
alla undan
keppnina.“
Eru einhverjar hefðir fyrir leiki?
„Við vöknum snemma og förum á
létta æfingu, rútínan er alltaf eins.
Við tökum smá rúnt í rútunni,
förum alltaf aðeins lengri rúnt en
við þurfum, við erum það nálægt
Laugardagsvelli, þannig við tökum
alltaf einn rúnt og hlustum á tón
list. Oftast eitthvað íslenskt, Stuð
menn eru klassík.“
Hvorum leiknum ertu spennt-
ari fyrir, gegn Slóveníu eða
Skotlandi?
„Í Slóveníu leiknum getum við
gulltryggt þetta, það er auðvitað
mjög spennandi. Svo er gulrótin
við Skotaleikinn að fara í geng
um riðillinn ósigraðar og helst
með núll mörk fengin á okkur,
það væri frábært. Það er mjög
spennandi. Við ætlum að sjá
hvort við getum gert eitt
hvað í því og reynt að fá
fólk á völlinn.“ | hdó
Gulltryggja sæti
og hlusta á Stuðmenn
Hallbera Guðný
Gísladóttir
landsliðsfyrirliði.
Mynd | Rut.
Íslendingar
elska salt & súrt
Topp tíu listinn
Spælt egg
Súkkulaðidýr
Þristur
Krítar
Tíglar
Gúmmíkarlar
Súkkulaðihnappar
1. Svartur klatti
Í efsta sæti nammibarsins í Hag
kaup trónir hinn sívinsæli klatti.
Þessi lungamjúki saltlakkrísmoli
er fyrir löngu orðin klassískur í
hugum margra enda verið fluttur
inn við stöðugar vinsældir frá því
snemma á níunda áratugnum.
Það er ammóníum sem gefur
þessum mola sitt sérstaka bragð,
bragð sem margir tengja við
hóstasaft. Ekki hefur verið stað
fest hvaða snillingi datt upphaf
lega í hug að blanda ammóníum
við lakkrís en farið var að fjölda
framleiða mjúkan saltlakkrís og
saltlakkrís brjóstsykur á Norður
löndunum og í Hollandi á þriðja
áratug síðustu aldar. Saltlakkrís
bragð er alls ekki allra þó klatt
inn tróni efst á vinsældalista
Íslendinga. Reyndin er sú að lang
flestum, sem hafa ekki alið bragð
laukana í NorðurEvrópu, finnst
saltlakkrís hálfgerður viðbjóður
og það getur verið flókið mál að
finna saltlakkrísbragð á fjarlægari
menningarsvæðum.
2. Bleikur klatti
Fast á hæla klattans kemur súri
bróðir hans, bleiki klattinn. Þessi
moli er mjúkur eins og bróðir
inn en er súrari en sítróna á
bragðið, enda búinn til líkt og
annað súrt nammi úr blöndu af
sykri og sítrónusýru. Íslendingar
eru greinilega fyrir afgerandi
bragð því gallsúrt nammi á borð
við bleika klattann er heldur ekki
allra þó súra bragðið sé samt mun
útbreiddara en saltlakkrísbragðið.
3. Súr flaska
Þriðja sætið vermir annar súr
moli með keim af Hubba Bubba
tyggjóbragði. Það er bleikbláa
hlaupflaskan, vanalega kölluð
súra flaskan. Súra tyggjóbragðs
flaskan er með annað einkenni
sem Íslendingar virðast vera mjög
hrifnir af og það er að hún freyðir
örlítið á tungunni, líkt og gömlu
góðu gospillurnar.
Á toppi vinsældalista nammibarsins trónir
lungamjúkur og bragðsterkur moli. Hann hefur
fylgt kynslóðum Íslendinga í gegnum súrt og sætt
frá því snemma á níunda áratugnum.
Restina af sætindunum skipa
molar sem óhætt er að kalla
klassíska. Hið alþjóðlega gúmmí
spælegg sem hægt er að nálgast
næstum hvar sem er í heiminum,
gúmmíkarlarnir sem næstum
öllum líkar við og svo séríslenskir
molar sem virðast aldrei fara úr
tísku; tígullinn, krítin, súkkulaði
dýrin, súkkulaðihnapparnir
og þristurinn. | hh