Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 03.09.2016, Page 38

Fréttatíminn - 03.09.2016, Page 38
Alicia kýs að vera án farða Söngkonan Alicia Keys kemur allsstaðar fram án farða núna og hefur fengið mikið lof fyrir, en svo koma alltaf upp neikvæðar raddir líka. Þeir sem hafa sett út á þetta hjá söngkonunni vilja meina að Alicia sé „á móti“ förðunarvörum en Alicia hefur svarað því. Hún birti mynd af sér þar sem hún gefur fingurkoss og skrifar við hana: „Þið öll, þó ég kjósi að nota ekki farða þýðir það ekki að ég sé á móti förðunarvörum.“ Þegar Alicia tók ákvörðun um að hætta að farða sig, sagði hún meðal annars þetta: „Ég hafði áhyggjur í hvert skipti sem ég fór út úr húsi án farða. Hvað ef einhver vildi fá mynd af sér með mér? Hvað ef viðkom- andi myndi svo BIRTA myndina einhversstaðar?“ Hún segist hafa fund- ið frelsi eftir að hún hætti að spá svona mikið í þetta. Fær nálgunarbann á eltihrelli sinn Eltihrellir leikkonunnar Sharon Stone er að útskrifast af réttargeðdeild. Hann heitir Phillip Barnes og fékk Sharon nálgunarbann á manninn árið 2011 eftir að hann komst inn á landareign hennar í Hollywood. Hún seldi húsið stuttu seinna. Sharon, sem er þriggja barna móðir, hefur ekki fengið frið frá manninum þó hann hafi verið lokaður inni en hann hefur skrifað henni bréf með reglulegu millibili. Sharon hefur nú fengið nálgunarbann aftur á Phillip en hann verður látinn laus eftir um 4 mánuði. Hefur lagt mínipilsin á hilluna Nicole Richie hefur klæðst mörgum mínipilsum í gegn- um tíðina en hefur ekki mikið verið að klæðast þeim seinustu misseri. Þegar hún var spurð út í þetta sagði hún: „Ég er tæpir 155 sentimetrar á hæð svo ég á ekki að vera í mínipilsi. Það kemur betur út á hávöxnum.“ Nicole segir líka að hún vilji hafa fötin sín þægileg og þess vegna velur hún yfirleitt víðar buxur og ermalausan bol. Hún segist líka vera mikið fyrir að vera í samfestingum en ef hún er stödd heima við verði víðar íþróttabuxur fyrir valinu því þær séu svo notalegar. Það er alltaf hægt að treysta á að Madonna segi sína skoðun, sama hvert málefnið er. Hún hefur hingað til reyndar ekki tjáð sig mikið um frambjóð- endur í forsetakosningum Bandaríkjanna, en það kom að því. Í vikunni gaf hún út stuðningsyfirlýs- ingu við Hillary Clinton og sendi Donald Trump og sonum hans tóninn í leiðinni. „Hve mikill væskill þarftu að vera til að drepa þetta dýr þér til gamans? Spyrjið bara Dona- ld Trump yngri og bróðir hans, Eric,“ skrifaði hún um fræga mynd af sonum forsetaframbjóðand- ans þar sem þeir halda á dauðum hlébarða. „Enn ein ástæðan til að kjósa Hillary,“ bætti Madonna svo við. Myndin af þeim bræðrum var grafin upp eftir að kosningabarátta föður þeirra hófst og varði hann gjörðir þeirra. Hann líkti veiðum við golf, en sagðist reyndar sjálfur ekki stunda íþróttina eins og synir hans. Trump sagði jafnframt að synir hans elskuðu að veiða og væru stoltir meðlimir í NRA, hags- munasamtökum byssueigenda í Bandaríkjunum. Madonna styður Hillary Clinton Sendir Trump og sonum hans tóninn með því að birta mynd af þeim með dauðan hlébarða. Sendir tóninn Madonna birtir fræga mynd af sonum Trump sem vakti óhug hjá mörgum. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Tökur standa nú yfir á sjónvarpsþáttunum The Voice Ísland en sýningar hefjast í Sjón-varpi Símans þann 7. október næstkomandi. Þættirnir, sem eru framleiddir af Sagafilm, verða enn stærri í sniðum en þeir voru í fyrra og ekkert er til sparað í framleiðslunni. Sam- kvæmt heimildum amk verða börn þekktra einstaklinga áber- andi í keppendahópnum að þessu sinni. Þá munu þekktir söngvarar, sem hafa starfað við tónlist, vera í hópnum. Heimildir amk herma einnig að keppandi í hópnum hafi tekið þátt í The Voice erlendis og náð langt. Lofar mikilli dramatík Þórhallur Gunnarsson, aðalfram- leiðandi Sagafilm, vill lítið gefa upp um keppendahópinn þegar blaða- maður nær tali af honum, en segir hóp keppenda í ár mjög sterkan. „Ég fullyrði að þetta er sterkari sönghópur en í fyrra, með fullri virðingu fyrir þeim, enda voru þau mjög góð. Þarna erum við að sjá svakalega sterkan hóp.“ Þá lofar Þórhallur einnig mikilli dramatík í þáttunum. „Þegar fjölskyldurn- ar koma með er mikið grátið. Stundum eru gleðitár, en líka mik- ill harmur. Það verður nötrandi spenna, enda eru þetta erfiðar aðstæður, að fá aðeins eitt tæki- færi til að syngja fyrir þjálfarana. Dramatíkin er meiri en í fyrra. Það er eins og fólk hafi sett meiri pressu á sig. Sumir standa auðvitað full- komlega undir henni á meðan aðrir eiga erfiðara með að standast þessa brjáluðu pressu. Svo eru kannski frábærir söngvarar sem eiga ekki sinn besta dag.“ Flottasta sviðsmynd á Íslandi Pálmi Guðmundsson, forstöðu- maður ljósvakamiðla Símans, tek- ur í sama streng og Þórhallur hvað umgjörð og styrkleika keppenda varðar. „Við fengum 80 glæsilega keppendur til að taka þátt í ár, en í fyrra voru þeir 60. Við erum að fara að búa til 12 þætti, en þeir voru 10 í fyrra. Í þessari seríu er það svo þannig að á vissum tímapunkti mega þjálfarar fara að stela kepp- endum hver frá öðrum. Þá mun sviðsmyndin taka breytingum eftir því sem líður á og stærsta útgáfan verður í lokaþáttunum. Ég vil meina að það sé búið að búa til flottustu sviðsmynd og flottustu umgjörð um íslenska þáttaröð frá upphafi.“ Þjálfarar í þáttunum eru Unn- steinn Manuel Stefánsson, Svala Björgvinsdóttir, Salka Sól Eyfeld og Helgi Björnsson. Þá kemur úr- valslið aðstoðarþjálfara einnig við sögu, en það eru þau Ragnhildur Gísladóttir, Högni Egilsson, Logi Pedro Stefánsson, Selma Björns- dóttir og Arnar Freyr Frostason. Aðstoðarþjálfararnir vinna með keppendum og hjálpa þeim á milli upptökusetta, skipuleggja lagaval og útsetningar,“ útskýrir Pálmi. Þættirnir The Voice verða sýndir í opinni dagskrá í Sjónvarpi Sím- ans en verða aðgengilegir fyrr fyr- ir þá sem eru með Heimilispakka Símans. Glæsileg umgjörð Það verður mikið grátið í þáttunum The Voice, enda fá keppendur aðeins eitt tækifæri til að heilla þjálfarana upp úr skónum. Þekktir söngvarar í keppendahópi The Voice Ísland Sýningar á þáttunum The Voice hefjast í Sjónvarpi Símans í október. Börn frægra eru áberandi í hópnum og aðstoðarþjálfararnir eru ekki af verri endanum. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 íkið á myndir og verð á Facebook Verð 11.900 kr. 3 litir: blátt, grátt, svart. Stærð 36 - 46 - rennilás neðst á skálm Verð 15.900 kr. 5 litir: gallablátt, svart, hvítt, blátt, ljóssand. Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur su arfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Gallab xur Kíkið á myndir og verð á Facebook Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur suma fatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 ið á myndir og verð á Facebook Verð 11.900 kr. 3 l tir: blátt, grátt, svart. Stærð 36 - 46 - rennilás neðst á skálm Verð 15.900 kr. 5 litir: gallablátt, svart, hvítt, blátt, ljóssand. Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka da a k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur su arfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Gallab xur Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur sumarfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 íkið á myndir og verð á Facebook Verð 11.900 kr. 3 litir: blátt, grátt, svart. Stærð 36 - 46 - rennilás neðst á skálm Verð 15.900 kr. 5 litir: gallablátt, svart, hvítt, blátt, ljóssand. Stærð 34 - 48 Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga k l. 11–18 Opið laugardaga kl. 11-15 Flottur su arfatnaður Kvarterma peysa á 12.900 kr. 3 litir Stærð 36 - 52 Buxur á 15.900 kr. 5 litir Stærð 34 - 48 Gallab xur Leggi gsbuxur - verð 6.500 kr. - 5 litir: svart, brúnt, blátt, grátt, hermannagrænt - stærð 36 - 48 - háar í mittið - stretch …fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.