Fréttatíminn - 03.09.2016, Síða 40
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Leikritið er samið út frá viðtali sem
við tókum við
konu sem býr
fyrir norðan og
starfar þar sem
ræstitæknir. Ég
og María Reyn
dal, meðhöf
undur verksins
og leikstjóri,
höfðum heyrt
sögu þessarar
konu í gegnum
vinkonu Maríu
og fannst hún
svo mögnuð að
við ákváðum
að athuga hvort
við mættum
búa til leik
verk úr henni,“
segir Sólveig
Guðmunds
dóttir leikkona
sem frumsýn
ir leikverk
ið Sóley Rós
ræstitæknir
í Tjarnarbíói
þann 10. sept
ember næst
komandi.
En verkið er í raun saga um rædd
rar konu, sögð með hennar eigin
orðum. „Öll orðin, allur textinn í
verkinu er meira og minna beint
frá henni. Við höfum nánast ekki
bætt neinum textann við en unn
um dramatúrgíuna. Og þó sagan
sé hennar þá höfum við frelsi til
að túlka hana á sviðinu,“ útskýrir
Sólveig.
Upplifði missi á meðgöngu
Konan tók strax vel í að saga henn
ar yrði sögð í leikverki þegar Sól
veig og María höfðu samband við
hana. Sagan hafði legið þungt á
henni og hún vildi deila henni. „Í
okkar leikverki segir hún áhorf
endum sögu sína frá því hún eign
ast sitt fyrsta barn, 15 ára gömul.
Hún er bæði mamma og amma og
hefur lifað margt. Hún á börn með
nokkrum mismunandi mönnum
og frásögn hennar hverfist um
börnin og mennina í lífi hennar.
Svo lendir hún í því að missa barn
á meðgöngu og verkið fjallar að
miklu leyti um það hvernig fólk
vinnur úr sorginni og hvernig þessi
atburður hefur áhrif á hennar lífs
sýn og lífsspeki. Hún var flutt með
sjúkraflugi til Reykjavíkur og lögð
inn á Landspítalann og bæði upp
lifði hlustunar og samskiptaleysi
á spítalanum. Ég held að ástæðan
fyrir því að hún vilji deila sinni
sögu sé að hún vilji reyna að breyta
hlutum. Það er bæði margt mjög
fyndið og margt mjög sorglegt í
verkinu. En „Sóley Rós“ segir mjög
skemmtilega frá, hún kann að færa
í stílinn. Hún tekur áhorfandann
í ferðalag,“ segir Sólveig til að út
skýra um hvað leikritið fjallar.
Tengir við persónuna
Hún segir það hafa verið mjög
spennandi að setja sig í fótspor
þessarar konu. Upphaflega átti
verkið að vera einleikur, en þar
sem konan talar mjög mikið um
manninn sinn, og þetta er líka saga
hans að miklu leyti, var Sveinn
Ólafur Gunnarsson fenginn til að
túlka hann.
Aðspurð hvort hún tengi við
konuna að einhverju leyti, segist
Sólveig vissulega gera það. „Að
ganga með barn og eiga barn, það
auðvitað breytir manni. Konan
í leikverkinu upplifir líka mik
inn missi og gengur í gegnum
sorgarferli. Og sorgin er hluti af
lífinu. Hverskonar missi sem
fólk gengur í gegnum, hvort sem
það er ástvinamissir eða skilnaður
eða stórt áfall þá er alltaf eitthvert
sorgarferli sem þarf að ganga í
gegnum. Ég tengi við karakterinn á
þann hátt, sem manneskja.“
Alltaf unnið sjálfstætt
Sólveig lærði leiklist í London og
útskrifaðist árið 2002. Hún hefur
alla tíð starfað sjálfstætt sem leik
kona í fjölbreyttum verkefnum.
„Ég vinn í grasrótinni og hef haft
tækifæri til að búa til verkefni
sjálf. Sem er mjög skemmtilegt. Ég
hef meðal annars verið að vinna
í Hafnarfjarðarleikhúsinu, með
Óskabörnum ógæfunnar, GRAL,
Tíu fingrum og fleiri sjálfstæðum
leikhópum. Árið 2006 stofnaði ég
leikhópinn Kvenfélagið Garpur,
sem setur upp þetta verk. Markmið
leikhópsins var að skoða hlutverk
og hlutverkaleysi kvenna á sviði og
utan sviðs. Þessi sýning – Sóley Rós
ræstitæknir – rammar það ansi vel
inn. Hvaða búning við setjum líf
okkar í og hvernig við teiknum það
upp,“ segir Sólveig.
„Það er mjög spennandi og
hentar mér vel að starfa sjálfstætt.
Þá hefur maður líka tækifæri á að
skrifa verkið sem mann langar til
að vinna að og vera með putt
ana í heildarmyndinni, allt frá
fyrstu drögum að hugmynd og
þar til ljósin eru slökkt. Maður
er með allt hjartað í verkinu. Ég
er farin að skrifa meira og meira
upp á síðkastið og mér finnst það
mjög gaman.“
Ætlaði að verða læknir
Sólveig ætlaði reyndar aldrei í
leiklist heldur ætlaði hún alltaf
að verða læknir. „Ég fór í MR og
ætlaði mér alltaf í læknisfræði
eða hjúkrun. Ég kem nefnilega úr
læknafjölskyldu. Svo dróst ég inn í
Herranótt og heillaðist af orkunni
í leikhúsinu. Þessi samvinna, að
vera með og vinna með skemmti
legu fólki – ég fékk bara bakterí
una. Ég er samt alltaf að hugsa um
að ég verði nú að fara að gera eitt
hvað fullorðins. Þetta var nefnilega
aldrei eitthvað sem ég ætlaði að
gera. En lífið leiðir mann í allskon
ar áttir. Ég er mjög glöð í vinnunni
minni og ástríðufull fyrir leikhús
inu. Með hverri sýningu sem ég
vinn að hugsa ég alltaf að þetta sé
sýningin sem muni breyta heimin
um. Svo kemur næsta sýning og þá
er ég líka handviss um að sú sýn
ing muni breyta heiminum.“
Útilokar ekki hjúkrun
Þrátt fyrir það er eitthvað við
heilbrigðisgeirann sem heillar.
„Ég gæti stundum alveg hugsað
mér að fara í hjúkrun. Ég er líka
alltaf öðru hvoru að leika sjúkling
í munnlegum læknaprófum, þar
sem verið er að kenna læknum að
taka sögu og hlusta á sjúklinga, og
á hverju ári hugsa ég með mér að
ég ætti bara að skella mér í lækn
isfræði. En læknanemarnir verða
yngri og yngri með hverju árinu,
svo ég er kannski orðin of sein,“
segir hún kímin. En framtíðin mun
leiða það í ljós hvort hún láti slag
standa. Framundan hjá henni eru
að minnsta kosti þrjár leiksýn
ingar, en leiksýningin Who is the
daddy? með leikhópnum Pörupilt
um, sem hún er hluti af, verður
líka sýnd í Tjarnarbíói í haust.
Þá stendur til að sýna aftur leik
ritið Illsku eftir Eirík Örn Norð
dahl, sem Óskabörn ógæfunnar
settu á svið í Borgarleikhúsinu í
apríl 2016. „Illska var sett á plan
aftur því það losnaði óvænt pláss
í Borgarleikhúsinu en sú sýning
er algjört dúndur. Bæði falleg
og spennandi ástarsaga en líka
mikil ádeila.“
Í fjarbúð með eiginmanninum
Um þessar mundir er Sólveig nán
ast að vinna allan sólarhringinn,
en það er sem betur fer ekki alltaf
þannig. Hún reynir að passa sig
að taka frí inn á milli. Á sumrin
starfar hún svo á allt öðrum vett
vangi. „Ég er leiðsögumaður uppi
í Þríhnúkagíg. Það er hálfgert frí
fyrir mig. Ég er úti í náttúrunni
og í fríi frá leikhúsinu. Það er al
veg magnað að fara ofan í þennan
helli. Þetta er eins og að fara inn í
álfahöll. Fyrst þegar ég fór þarna
ofan í og var að labba með fólkið
til baka, þá fann ég að fólk var
svolítið breytt. Og ég hugsaði að
þetta er væri nákvæmlega eins og
þegar maður sér gott leikhús, það
breytir manni.
En vinnan mín í leikhúsinu er
auðvitað líka áhugamálið mitt,“
segir Sólveig sem reynir að nota
frítímann sinn með fjölskyldunni,
en hún á tvær dætur,
þriggja og sex ára, með manni
sínum. „Hann er skoskur og býr
erlendis, þannig hann er á tveimur
stöðum. En ég á góða fjölskyldu
sem stígur inn í þetta með okkur.
Ég er líka með góða barnapíu og
stelpurnar koma stundum með
mér í vinnuna,“ segir Sólveig um
það hvernig hún lætur hlutina
ganga upp þrátt fyrir að vinna
stundum myrkranna á milli. Með
eiginmanninn í Skotlandi. Hún
segir fjarbúðarfyrirkomulagið
henta þeim hjónum vel, og hún
þekkir varla neitt annað. Hann
er leikstjóri þannig þau hafa líka
mikinn skilning á vinnutörnum
hvors annars.
Komin í garðrækt
Þrátt fyrir að leiklistin sé aðalá
hugamál Sólveigar á hún sér önn
ur áhugamál sem hún reynir að
sinna. Hún byrjaði til að mynda
nýlega að stunda sjósund og er
komin einkaþjálfun með huggu
legum hópi kvenna. „Mér finnst
svo leiðinlegt að fara í líkamsrækt
og þurfti smá spark í rassinn. Svo
flutti ég reyndar nýlega og er kom
in með góðan garð þar sem ég er
að rækta ýmislegt. Ég keypti mér
meira að segja stóra og þykka bók
um garðrækt. Það er eiginlega
helsta áhugamálið mitt um þess
ar mundir.“ Sólveig segir kostinn
við það áhugamál einmitt vera að
hún geti stundað það heima við og
fjölskyldan getur tekið þátt. „Þetta
er reyndar allt svolítið í klessu hjá
mér ennþá, en ég er með kartöflur,
gulrætur og jarðarber og eitthvert
kál,“ segir hún hlæjandi.
Að ganga með barn og
eiga barn breytir manni
Sólveig frumsýnir leikverkið Sóley Rós ræstitæknir um næstu helgi. Verkið
er saga raunverulegrar konu sem býr fyrir norðan og allur textinn í verkinu
kemur frá henni. Sólveig segist tengjast karakternum á margan hátt,
þá sérstaklega sem manneskja.
Ætlaði að verða
læknir Sólveig
útilokar ekki að
hún muni láta slag
standa og læra
hjúkrun, eða jafnvel
læknisfræði í fram-
tíðinni.
…viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
mánudaginn 5. september, kl. 18 og þriðjudaginn 6. september, kl. 18
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17
Ó
lafur Elíasson
Forsýning á verkunum laugardag til þriðjudags
Léttar veitingar frá kl. 17.30
100. listmunauppboð
Gallerís Foldar
Það er mjög
spennandi
og hentar mér vel
að starfa sjálfstætt.
Þá hefur maður líka
tækifæri á að skrifa
verkið sem mann
langar til að vinna að.