Fréttatíminn - 03.09.2016, Side 50
Frábærar lausnir
fyrir rými af
öllum stærðum
Allt frá hönnun að fullbúnu baðherbergi.
Unnið í samstarfi við Byko
Gylfi Sigurpálsson veit meira en margur ann-ar, jafnvel flestir, þegar kemur að hreinlætis-
tækjum á baðherbergið og miðlar
þeirri reynslu til viðskiptavina
Byko í breiddinni, Hólf og gólf. Við
spurðum Gylfa út í nýjungar í þeim
bransa. „Í klósettunum eru það
þessi vegghengdu klósett með
innbyggðum kassa sem eru lang-
mest tekin í dag. Verðin eru orðin
þannig að það er jafnvel ódýrara en
klósett á gólf. Fyrir nokkrum árum
síðan kom Villeroy og Boch síðan
með keramik plus sem er þessi tvö-
faldi glerungur á skálunum sem er
brenndur tvisvar. Þá tollir síður við
það og þetta auðveldar þrif,“ segir
Gylfi.
Önnur nýjung í klósettum kom
í fyrra sem auðveldar einnig þrif
mjög mikið og það eru svokallað-
ar „rimless“ klósettskálar. „Þá er
kanturinn sem vatnið kemur undan
tekinn burt og vatnið spýtist í stað-
inn úr bakinu á skálinni. Villeroy og
Boch fundu upp á þessu og nú eru
allir aðrir farnir að hanna þannig
skálar.“
Baðkör og sturtubotnar eru ým-
ist úr emeleruðu stáli eða akríl og
er úrvalið yfirgripsmikið í Byko.
Hins vegar hafa sturtur sem sett-
ar eru beint á gólf orðið sífellt
vinsælli. „Eftir að öll þessi góðu
undirefni komu í flísalögnum, þá er
fólk farið að nota sturtur meira og
beint á gólf, það er betra upp á þrif
og einnig þannig að fólk þarf ekki
að stíga upp á eða yfir kant, það er
bara labbað inn eins og í sundlaug-
unum. Þá kemur gler út frá veggn-
um sem festist annað hvort í loftið
eða út í vegg. Þetta er líka yfirleitt
ódýrara þegar uppi er staðið. “
Grohe hefur verið leiðandi í
tækninýjungum og ein af þeim er
það sem kallað er „Cold start“.
„Þegar þú skrúfar frá krananum,
lyftir upp arminum í miðjunni, þá
kemur aldrei heitt vatn, það þarf
alltaf að draga arminn til vinstri til
að hann fari að draga heita vatnið.
Þetta sparar mikið – þó að heita
vatnið sé vissulega dýrara erlendis
þá kostar það líka hérna heima.“
Grohe er einnig með það sem kall-
ast Cool touch en þá hitna ekki
bað- og sturtutæki sem getur dreg-
ið úr því að fólk brenni sig við að
snerta heita krana og blöndunar-
tæki.
Fólk er farið að taka í meira mæli
innbyggð sturtutæki, þau eru ekki
ný af nálinni en eru dýrari svo salan
dróst saman í kringum hrun. Nú
er sala á slíkum tækjum að aukast
enda stílhreint að hafa einungis
blöndunartækin sýnileg.
Á byko.is er hægt að sjá úrval
hreinlætistækja og innréttinga
auk þess sem hægt er að fara
beint inn á síður birgja til þess að
kynna sér úrvalið enn betur.
Ásta Sigurðardóttir er stílisti
í Byko og hefur komið að því að
hanna og skipuleggja fjölda bað-
herbergja. „Við erum með gott
skipulag og góðar lausnir, bæði í
kringum innréttingar og sturtu-
lausnir og almennt skipulag
baðherbergisins. Við erum með
lausnir frá a-ö, alveg frá hönnun til
lokaútgáfu,“ segir Ásta. Hún segir
fólk almennt leita að sem mestu
geymsluplássi fyrir baðherbergið,
sama hver stærðin sé og hægt sé
að finna mjög góðar lausnir fyrir
minni baðherbergi þrátt fyrir lítið
rými. „Hægt er að fá grynnri ein-
ingar sem sparar mikið pláss og
eins þynnri gerð af klósettkassa.
Efri skápar gefa líka mikið rými.“
Ásta bendir á að speglaskápar
séu mjög sniðugir, ekki síst í minni
rými þar sem nýta þarf hvern fer-
metra sem allra best. Bæði er hægt
að kaupa speglaskápa en eins
hannar Ásta slíka skápa. „Spegla-
skáparnir sem við erum með eru
ekki sérstaklega stórir þannig
að ég hef pantað skápa sem ég
hef síðan sett spegil á. Þetta hef
ég gert í mörgum litum og öllum
stærðum.“
Val á flísum á baðherbergið getur
verið mikill höfuðverkur. Ásta ráð-
leggur fólki ljósar flísar, ekki síst á
minni rýmin. „Við erum með mikið
af ljósum flísum í bæði gráum og
beis tónum með hreyfingu í. Þegar
litirnir eru alveg hreinir má varla
detta hár á gólfið, þá sést það.
Fólk gerir líka mikið af því að taka
gólfflísarnar upp á vegginn, jafnvel
í annarri stærð. Það hentar vel í
minni rýmin,“ segir Ásta.
Margir eru farnir að taka gler í
stað sturtuklefa og það er einmitt
tilvalið fyrir minni rými þar sem
hægt er að stjórna stærð sturtunn-
ar að miklu leyti. „Það ljær rýminu
léttara yfirbragð að vera með gler.
Við erum með glært gler og sand-
blásið gler í sérpöntunum en það
er líka sniðugt að setja sandblásna
filmu á glerið, ef fólk vill ekki hafa
glerið glært,“ segir Ásta og leggur
áherslu á að umgengni við glerið
skipti öllu máli. „Það þarf að skola
glerið með köldu vatni eftir hvert
skipti og ekki er verra að hafa
sköfu líka, þá helst glerið fínt og
það myndast ekki þessi ský sem
smjúga inn í glerið og festast.“
Hvað lýsingu varðar er vinsælt
þessa dagana að vera með lýsingu
í speglinum eða svokallað ledljós
bak við. „Þessi lýsing er eingöngu
hugsuð sem stemningslýsing en
vinnulýsing er best ef hún kem-
ur frá hliðunum. Einnig er gott að
hafa fallega lampa fyrir ofan spegla
og svo þarf loftljósið að vera IP 44
sem er rakavarinn staðall.“
Plöntur geta gefið baðherberginu
mikla hlýju og þrífast vel í rakanum.
Ásta mælir þó ekki með að hrúga
skrautmunum og prjáli inn á bað-
herbergi og allra síst á lítil baðher-
bergi. „Bæði er meira að þrífa og
svo er mun hreinlegra að hafa sem
minnst uppi á borðum.“
…heimili & hönnun kynning 14 | amk… LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Stílisti Ásta ráðleggur fólki allt frá hönnun
að fullbúnu baðherbergi.
Nýjasta tækni Gylfi Sigurpálsson veit allt
um nýjustu tækni í hreinlætistækjum.
Notalegt Plöntur geta gefið
hlýlegt yfirbragð en best er
að vera með sem minnst uppi á borðum.
Frábær lausn Skúffur sem þessar geta
rúmað alla smáhlutina sem fólk er gjarnan í
miklum vandræðum með.
Stílhreint Sturtugler er frábær lausn, ekki síst í lítil rými,
en passa skal að skola glerið alltaf með köldu vatni
eftir notkun til að halda því glæru sem lengst. Myndir | Rut