Fréttatíminn - 30.09.2016, Síða 1
SMÁRALIND
FYLGSTU MEÐ OKKUR
Í BEINNI Á FACEBOOK
Í DAG KL. 15 OG ÞÚ
GÆTIR UNNIÐ
10.000 KR.
GJAFABRÉF.
/commaiceland
Flugliðar WOW air, flug-
freyjur og flugþjónar, þurfa
að taka til í flugvélum
félagsins á áfangastöðum,
en það hefur mælst illa fyrir
hjá starfsfólki, sem þarf
að sinna langri og strangri
vinnu í fluginu sjálfu. Flug-
menn þurfa ekki að taka
þátt í tiltektinni.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
„Það hefur verið kvartað undan
þessu við okkur og við höfum því
mótmælt þessu formlega við WOW
air,“ segir Sturla Óskar Bragason,
varaformaður Flugfreyjufélags Ís-
lands, en flugliðar WOW air hafa
kvartað vegna þess að þeir eru
látnir taka til í flugvélum félagsins
á áfangastöðum.
Að sögn Sturlu er það ekki í
verkahring flugliða að taka til í flug-
vélunum eftir millilandaflug, held-
ur ræstitækna, og bendir hann á að
önnur flugfélög kaupi þjónustu af
fyrirtækjum á áfangastað. Þannig
sé þessi tilhögun óhefðbundin og
líklega tilkomin vegna sparnaðar.
Flugliðum var tilkynnt um
ákvörðun flugfélagsins með sól-
arhringsfyrirvara í lok ágúst, að
sögn Sturlu Óskars, og mæltist hug-
myndin illa fyrir. Í kjölfarið fékk fé-
lagið kvartanir inn á sitt borð sem
það hafa brugðist við.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs-
ingafulltrúi WOW Air, staðfestir
að flugliðar sinni tiltekt í vélunum,
en mótmælir því að um þrif sé að
ræða.
Í skriflegu svari Svanhvítar seg-
ir: „WOW air er lággjaldaflugfélag
og eins og flest önnur lággjalda-
flugfélög höfum við það verklag á
nokkrum áfangastöðum okkar að
flugliðar krossi sætisbelti, taki rusl
úr sætisvösum og skipti um rusla-
poka í vögnum og tunnum inni á
salernum og eldhúsum þar sem
þess er þörf. Ekki undir neinum
kringumstæðum er farið fram á að
flugliðar þrífi flugvélar félagsins.
Það þarf reyndar ekki að leita
út fyrir landsteinana til að finna
sambærilegt verklag hér á landi
því félagsmenn í FFÍ sem starfa hjá
Flugfélagi Íslands viðhafa svipað
verklag.“
Aðspurður segir Sturla að það
sé rétt að Flugfélag Íslands geri
það sama, en þó eingöngu í innan-
landsflugi. „Það er allt annars eðl-
is,“ útskýrir hann. Sturla segir aftur
á móti að þegar Flugfélag Íslands
flýgur til útlanda, kaupi það þjón-
ustu ræstitækna.
„Þetta er því ekki sambærilegt,“
segir hann.
Þegar Svanhvít var spurð hvort
flugmenn þyrftu þá einnig að taka
þátt í tiltektinni, líkt og flugfreyj-
ur og -þjónar, svaraði Svanhvít:
„Starfsstöð flugmanna er ekki í far-
þegarými.“
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
59. tölublað
7. árgangur
Föstudagur 30.09.2016
Sverrir Guðnason verður Björn Borg
Ekki eins góður, en næstum því 34 16
Efast um gagnsemi
sanngirnisbóta
Kaþólski biskupinn
í Landakoti 4
10
KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur
Hausttilboð á
Phantom 4.
Frá 199.990 kr.
iStore Kringlunni er
viðurkenndur sölu- og
dreifingaraðili DJI á Íslandi
TOBBA
MARÍNÓS
HÆTT
Í SYKRINUM
RÆÐST GEGN
GLANSMYNDUM
SAMFÉLAGSMIÐLA
FÖSTUDAGUR
30.09.16
Mynd | Hari
ANNA
ÞORSTEINS
SÉRBLAÐ UM
RÁÐSTEFNUR
& HÓPEFLI
BRITNEY SPEARS
ELDIST VEL
FJÖGURRA MANNA
FJÖLSKYLDA
SVAF ÚTI Í GARÐI
Í NÆTURFROSTI
Mynd | Hari
Börn og
sérfræðingar
sammála
um framtíð
skólans
30
VONDU KERFIN:
heilbrigðisKERFIÐ
Einkastofur vaxa en
spítalinn hrörnar
Þorpið brást
llítilmagnanum
Sagan á bak við
ódæðisverkið í Eyjum
Flugliðar WOW air ósáttir
við að taka til í flugvélunum