Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 01.10.2016, Side 31

Fréttatíminn - 01.10.2016, Side 31
FRÉTTATÍMINN Í sund með Frankenstein RIFF, alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, stendur sem hæst og á hverri hátíð nýtur sundbíóið í Sundhöll Reykjavíkur nokkurra vinsælda. Í kvöld umbreyt- ist Sundhöllin í kastala Doktor Frankenstein þegar sýnd verður sígild mynd James Whale frá 1931 um metnaðarfulla lækninn og auðvitað skrímslið hans ógurlega. Að svamla um í myrkvaðri Sund- höllinni hlýtur að virka vel með myndinni. Hvar? Sundhöll Reykjavíkur Hvenær? Í kvöld kl. 20 og 22. Hvað kostar? 2000 kr. Lestrarhátíð sett Lestrarhátíð í Bókmenntaborg rúllar af stað í fimmta sinn. Í ár heitir hátíðin Meira en 1000 orð en hún er að þessu sinni tileinkuð orðum og myndum. Skáldið Elías Knörr og myndlistarkonan Elín Edda afhjúpa verk sitt, Morgunsár- ið er furðufugl, á Kaffibrennsl- unni. Elías flytur samnefnt ljóð og annað listamannapar Lestrar- hátíðar (en þau eru nokkur) Ásta Fanney Sigurðardóttir og Atli Sig- þórsson (Kött Grá Pje) flytja gjörn- ing. Söngfuglar Margrétar Pálma syngja einnig nokkur íslensk lög og Líf Magneudóttir, forseti borg- arstjórnar, setur hátíðina. Allir velkomnir. Hvar? Við Kaffibrennsluna á Laugavegi 21 Hvenær? Í dag kl. 11. Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins til kaupa á nýjum tækjum til brjóstakrabbameinsleitar. Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum. Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl! „Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október. Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekni átaks Krabbameinsfélagsins í október og nóvember Tökum bleikan bíl! Styrkjum starfsemi Krabbameinsfélagsins á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play Sæktu þér Hreyfils appið og pantaðu bleikan bíl. SÆKTU APPIÐ Farsælt samstarf frá 2007

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.