Fréttatíminn - 01.10.2016, Blaðsíða 31
FRÉTTATÍMINN
Í sund með Frankenstein
RIFF, alþjóðleg kvikmyndahátíð
í Reykjavík, stendur sem hæst og
á hverri hátíð nýtur sundbíóið í
Sundhöll Reykjavíkur nokkurra
vinsælda. Í kvöld umbreyt-
ist Sundhöllin í kastala Doktor
Frankenstein þegar sýnd verður
sígild mynd James Whale frá 1931
um metnaðarfulla lækninn og
auðvitað skrímslið hans ógurlega.
Að svamla um í myrkvaðri Sund-
höllinni hlýtur að virka vel með
myndinni.
Hvar? Sundhöll Reykjavíkur
Hvenær? Í kvöld kl. 20 og 22.
Hvað kostar? 2000 kr.
Lestrarhátíð sett
Lestrarhátíð í Bókmenntaborg
rúllar af stað í fimmta sinn. Í ár
heitir hátíðin Meira en 1000 orð
en hún er að þessu sinni tileinkuð
orðum og myndum. Skáldið Elías
Knörr og myndlistarkonan Elín
Edda afhjúpa verk sitt, Morgunsár-
ið er furðufugl, á Kaffibrennsl-
unni. Elías flytur samnefnt ljóð
og annað listamannapar Lestrar-
hátíðar (en þau eru nokkur) Ásta
Fanney Sigurðardóttir og Atli Sig-
þórsson (Kött Grá Pje) flytja gjörn-
ing. Söngfuglar Margrétar Pálma
syngja einnig nokkur íslensk lög
og Líf Magneudóttir, forseti borg-
arstjórnar, setur hátíðina. Allir
velkomnir.
Hvar? Við Kaffibrennsluna á
Laugavegi 21
Hvenær? Í dag kl. 11.
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins
til kaupa á nýjum tækjum til brjóstakrabbameinsleitar.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar
enn á ný með bleikum taxaljósum.
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili
árvekni átaks Krabbameinsfélagsins
í október og nóvember
Tökum bleikan
bíl!
Styrkjum starfsemi
Krabbameinsfélagsins
á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is
eða í App Store og Google Play
Sæktu þér Hreyfils appið
og pantaðu bleikan bíl.
SÆKTU APPIÐ
Farsælt
samstarf
frá 2007