Fréttatíminn - 01.10.2016, Page 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 1. október 2016
Lagkökur, vínarbrauð, rúnn-
stykki, graflax og allskyns sósur
og fínirí eru á víð og dreif um
gamla spónaplötu sem hefur ver-
ið plantað ofan á fjóra turna úr
málningardollum. Í hornsófa sitja
nokkrir málarar og ræða nýjasta
snjallsímann og reglulega er ýtt á
takkann á kaffivélinni. Klukkan
er að verða níu á föstudagsmorgni
og hér, í málarahorni Húsasmiðj-
unnar í Skútuvogi, eru málarar
að klára vikuna og taka púlsinn á
þjóðfélaginu. Að málarar, eða fag-
menn líkt og þeir kalla sig, hittist í
kaffi til að klára vikuna er áratuga
gömul hefð sem byrjaði með einni
vínarbrauðslengju í Hörpu. Það
er notaleg stemning í horninu og
greinilegt að fagmennirnir þekkj-
ast vel. Þeir eru sammála um að
ekki fyrirfinnist betra kaffihorn en
akkúrat þetta, fáir bjóði upp á kav-
íar í túbu líkt og gert er hér. Sums-
staðar, og við nefnum engin nöfn,
sé ennþá bara vínarbrauð í boði.
Brandararnir fljúga og gert er mik-
ið grín að hinum og þessum.
Fagmennirnir eru ánægðir með
haustið, með nýrri árstíð koma ný
verkefni og það er nóg að gera. Það
er uppsveifla og verkefnin hafa
ekki verið fleiri síðan fyrir hrun.
Mögulegt næsta hrun ber á góma
og sumir vilja meina að það séu
ekki nema tvö ár í það næsta, þessi
bóla geti ekki haldið áfram mikið
lengur. Hvað ætli bankarnir muni
gera við öll hótelin sem verið er
að mála þessa dagana, þegar allt
hrynur? Og hvað með bankana,
munu þeir þola næstu kreppu?
Og af hverju er ekki lengur hægt
að fara í banka og fá persónulega
þjónustu, af hverju þarf allt að ger-
ast á internetinu? Þegar klukkan
skríður yfir níu eru síðustu drop-
arnir teygaðir og fagmennirnir
halda út í daginn. | hh
Morgunstund Fagmannakaffi í vikulok
Guðmundur Már Ragnarsson, Guðbjörn Guðbjörnsson, Þórhallur Stefánsson
og Sverrir Pétur Pétursson. Adolf Adolfsson smyglaði sér úr píparadeildinni í
málarakaffið, í þýskum „lederhosen“ til að magna upp stemningu fyrir októberfest
Húsasmiðjunnar. Mynd | Rut
„Þetta er tíminn. Ég var að
leita að bílastæði rétt áðan
og sá þrjár manneskjur
með „mullett“, þ.e. sítt að
aftan. „Eightísið“ og diskóið
er komið og við ætlum að
taka þátt í því. Það er löngu
kominn tími á diskóið enda
frábær tími,“ segir Gunn-
steinn Helgi Maríuson sem
opnar ásamt félögum sínum
diskóbarinn Pablo í október.
„Þetta á að verða flottasti kokteil-
bar í sögu landsins með flottustu
kokteilbarþjónum landsins. Það
verður ekki bara diskó á fóninum
en það verður diskóþema bæði í
drykkjum, tónlist, innréttingum
og stemningu.“
Diskóbarinn verður á efstu
hæðinni í Veltusundi 1, þar sem
veitingastaðurinn Einar Ben var
áður til húsa, en á neðri hæðinni
ætla félagarnir að opna veitinga-
staðinn Burro. „Þar ætlum við að
bjóða upp á „modern-latin“ eld-
hús, með smárétti til að deila og
stóra aðalrétti í suður-amerískum
anda, og skemmtilega stemningu.
Það er gaman að segja frá því að
aðstoðaryfirkokkurinn á Nobu í
London, sem síðar opnaði Nobu
í Ástralíu, er að flytja til landsins
til að kokka fyrir okkur á Burro.
Staðurinn er hugsaður fyrir alla
sem elska góðan mat og suðræna
partí-stemningu.“ | hh
Gunnsteinn sá þrjár manneskjur með „mullett“ þegar hann leitaði að bílastæði.
Kominn tími á diskó Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Flakkið á mér var dálítið mikið og ég hef verið með puttana í mörgu,“ segir Virginia Gillard, leikkona, leiðbeinandi
og trúðasérfræðingur sem nú býr
í Hafnarfirði. „Ég fluttist reyndar
til Ástralíu frá Bretlandi fimm ára
gömul. Foreldrar mínir eru frá
Bretlandi og Frakklandi og þangað
lá leiðin aftur í frekara leiklist-
arnám þegar ég varð fullorðin. Í
París fór ég í frægan trúðaskóla
hjá Philippe Gaulier og það var
mikil upplifun. Áður hafði ég verið
í hefðbundinni leiklist en í París
opnaðist heill heimur. Í trúða-
heiminum hitti ég allt í einu fullt
af fólki sem var alveg eins og ég,“
segir Virgina og rifjar upp að sem
barn hafi hún hrifist að klassískum
gamanmyndaleikurum á borð við
Charlie Chaplin, Gög og Gokke og
Lucille Ball. Hún hafi því lengi vilj-
að kveikja hlátur og gleði. „Það er
aldrei nóg af því í lífi fólks,“ bætir
hún við.
„Að vera trúður hjálpar manni
að sjá sjálfan sig opinn og ber-
skjaldaðan fyrir umheiminum og
trúðanámið og trúðanefið hafa
dugað mér víða. Ég vann til dæmis
sem trúðalæknir í Skotlandi á heil-
brigðisstofnunum í Edinborg. Það
var gaman og gefandi að færa bros
og hlátur inn í veröld heilabilaðra
sjúklinga og langveikra barna,
en líka erfitt. Eftir að ég eignaðist
börn sjálf reyndist þetta æ erf-
iðara,“ segir Virginia.
Virginia fluttist til Íslands fyrir
fjórum árum, elti hingað ástina,
eins og margir. Eftir það fór hún í
meiri mæli út í skapandi skrif. Hún
tekur þátt í Ós Pressunni, sem er
fjölmála skáldafélag hér á Ís-
landi. „Við í Ós Pressunni sjá-
um fyrir okkur að það sé
pláss fyrir texta frá
fólki
sem er á jöðrunum í íslensku sam-
félagi og skrifa á ýmsum tungu-
málum um málefni sem eru ekki
endilega algeng hér á landi. Það
ætti að gera íslenskan bók-
mennta- og textaheim fjöll-
breyttari.“
Virginia segist nálgast skrifin
á myndrænan hátt og það
hvetur hún líka aðra til
að gera þegar hún leiðir
hópa í skapandi skrifum.
„Þetta er aldrei langt frá
leikhúsinu. Ég nota liti,
teikningar, hreyfingar og reyni að
nálgast textann í gegnum leikinn.“
Virginia ætlar í dag, laugardag,
að leiða söguhring kvenna sem
er samstarf Borgarbókasafns-
ins og W.O.M.A.N. samtakanna
á Íslandi. Þar er þema hausts-
ins lífssögur, þvert á tungumál,
menningarheima, kynslóðir og
tjáningarform. Ólíkar konur koma
saman í Borgarbókasafninu í
Menningarhúsinu Spönginni og
Virginia leiðir samtal kvennanna
sem að vilja skiptast á sögum og
skyggnast inn í heim hver annarr-
ar. Þátttaka er ókeypis og mæting
kl. 12.30 í dag.
Aldrei nóg af
hlátri og gleði
Virginia Gillard er menntaður trúður og starfaði á árum áður sem
trúðslæknir með heilabiluðum og langveikum börnum í Skotlandi. Nú
leiðir hún hóp kvenna sem koma úr ólíkum áttum til að skiptast á sögum,
segja frá reynslu og fræðast um ólíka menningu. Þetta leiðir Virginia fram
með myndrænni og lifandi framsetningu.
Virginia í gervi dr. Pavlovu,
sem heimsótti langveik börn í
Skotlandi.
Að vera trúður hjálpar manni að sjá sjálfan sig opinn og berskjaldaðan fyrir um-
heiminum, segir Virginia Gillard. Mynd | Rut
Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • facebook.com/okkarbakari
FLOTTU
AFMÆLISTERTURNAR
FÁST HJÁ OKKUR
Skoðið
úrvalið á
okkarbakari.is