Fréttatíminn - 01.10.2016, Blaðsíða 42
Að láta óþarfa áhyggjur, depurð
og leiða ná tökum á sér er hálfgerð
sóun á lífinu. Vissulega eru ýmsir
sjúkdómar sem valda slíku ástandi
og hér er ekki verið að gera lítið úr
þeim. En í daglegu amstri eigum
við það til að taka lífið of alvar-
lega og tapa gleðinni. Þá er gott að
hafa í huga að góð hreyfing getur
bætt skapið til muna. Það þarf ekki
nema stutta gönguferð til, eða smá
dansæfingu í stofunni heima.
Ef þú veist ekki hvernig best er
að bæta skapið með hreyfingu eða
breyttri hegðun þá geturðu sótt
smáforritið Happify í snjalltækið
þitt. Forritið á að hjálpa fólki að
finna leiðina í átt að hamingjusam-
ara lífi. Hljómar frekar ótrúlega en
forritið bendir þér á ýmis konar
leiki og afþreyingu sem eiga að
hafa jákvæð áhrif á andlega heilsu.
Og það sem meira er, það er þróað
af fagfólki með niðurstöður marg-
víslegra rannsókna að leiðarljósi.
Næst þegar þú finnur fyrir leiða
eða áhyggjurnar eru að taka yfir
líf þitt, prófaðu að sækja Happify,
gerðu nokkrar æfingar og sjáðu
hvort þér líður ekki betur. Forritið
er ókeypis fyrir bæði iPhone og
Android tæki.
Ef þú hefur ekki tíma til að fara í ræktina, finnst það óþægilegt, hefur ekki efni á því eða færð ekki barnapössun, er vel
hægt að gera æfingar heima við og
ná jafn góðum árangri. Það eina
sem þú þarft er þunn dýna, hand-
lóð, gúmmíteygjur og lítil trappa
eða skemill.
Heimaæfingar eru ekki bara fyr-
ir byrjendur, eins og margir halda,
enda er hægt að gera æfingar á
mismunandi erfiðleikastigum. En
best er að fara rólega af stað.
Eini gallinn við heimaæfingarn-
ar er sá að manni hættir til að fara
frekar í tölvuna eða setjast fyrir
framan sjónvarpið en að fara í
æfingagallann og sækja lóðin. Það
er auðvelt að svindla. Þess vegna
er mikilvægt að skrá æfingarnar
inn á dagatalið sitt og ekki hvika
frá þeim nema eitthvað komi upp
á. Gott er að hafa fastar æfingar
alltaf á sama tíma sólarhringsins,
kannski tvisvar til þrisvar í viku.
Jafnvel oftar. Ef þú heldur það út í
þrjár vikur þá er mjög líklegt að sú
hugsun, að sleppa æfingu, hætti að
hvarfla að þér.
Þá er gott að reyna að hafa æf-
ingarnar fjölbreyttar og ekki gera
alltaf þær alltaf í sömu röð. Það er
vissulega aðeins meira takmark-
andi að gera æfingar heima en í sal
fullum af líkamsræktartækjum, en
það þýðir ekki að þú þurfir að hafa
æfingarnar einhæfar.
Gættu þess að hita létt upp fyrir
hverja æfingu og gera teygjur í lok-
in. Alls ekki sleppa þessu. Það sem
þú gerir á æfingunni í dag eykur
bæði lið- og styrkleika á æfingunni
á morgun.
Finndu hamingjuna með Happify
Gleði, gleði Happify er þróað af fagfólki
sem veit hvernig best er að bæta andlega
heilsu.
Heimaæfingar skila
góðum árangri
Þú þarft hvorki að borga fúlgur fjár né fara út úr húsi til að
komast í form.
Beygðu þig með lóð
Hafðu lóð í báðum höndum,
beygðu þig fram og lyftu lóðunum
upp og niður.
Rasslyftur
Liggðu á dýnu og lyftu rassinum
upp 3x12.
Hér eru hugmyndir að nokkrum æfingum sem
auðvelt er að gera heima fyrir með einföldum búnaði.
Hnébeygjur
Gerðu 3x12 hnébeygjur með
lóð og fætur í sundur.
Teygjuganga
Gakktu til hliðar 3x12 með gúmmí-
teygju utan um fæturna. Slíkar
teygjur fást í flestum verslunum
sem selja líkamsræktarvörur.
Hnélyftur
Í þessari æfingu er hægt
að nota litla tröppu eða
skemil. Stígðu upp á tröpp-
una og lyftu hnjánum upp
3x12.
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu
Auðvitað er til smáforrit sem leiðbeinir okkur í átt að hamingjuríkara lífi.
Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur
örva brennslu og meltingu og eru
bjúglosandi. Sérstaklega er mælt
með vörunni til að hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
www.birkiaska.is
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
…heilsa 6 | amk… LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016