Fréttatíminn - 01.10.2016, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2016 3 GÓLFEFNI
Helga Guðrún Lárusdóttir er ný
flutt til Dalvíkur úr 101 Reykjavík
ásamt manni sínum, Árna Reyni
Óskarssyni, og syni þeirra, Lárusi
Henrý, þar sem þau eru að gera
upp gamalt hús ásamt tengdafor
eldrum hennar.
„Tengdaforeldrar mínir keyptu
hús hér sem við leigjum af þeim og
erum smátt og smátt að gera upp í
sameiningu,“ segir Helga. Allt gólf
efni í húsinu er þó nýlegt, nema
í einu herbergi. Þar ákváðu þau
að fara ansi djarfa leið og máluðu
parketið blátt með sérstakri gólf
málningu.
„Bláa gólfið í fataherberginu var
upprunalega mín hugmynd sem
ég hætti svo við af því að Árni tók
ekkert allt of vel í hana. Þegar ég
sagðist svo ætla að kaupa hvíta
gólfmálningu hafði honum snúist
hugur og ég lét ekki segja mér það
tvisvar,“ segir Helga og hlær.
„Upprunalega ætlaði ég að nota
skipalakk, en eftir að hafa fengið
ráð hjá starfsmanni Húsasmiðj
unnar í Holtagörðum ákvað ég
að fara að ráðum hans og kaupa
frekar gólf
málningu.
Skipalakk
ið, sem ég
hafði skoðað
á netinu,
virtist líka
frekar ein
hæft í lita
úrvali, en
hann sýndi
mér lita
spjald yfir gólfmálninguna sem var
svo stórt að ég fékk valkvíða bara
yfir bláu litunum. Ég sé því alls
ekki eftir að hafa leitað ráða hjá
fagfólki.“
Helga fékk svo lánaða pússvél
hjá vini sínum og pússaði létt yfir
gólfið áður en hún lét til skarar
skríða. Þá ryksugaði hún gólfið
nokkrum sinnum og veggina líka,
því pússvélin skildi eftir sig mikið
ryk. Að lokum skúraði hún gólfið
tvisvar með vatni og ediki, lét það
þorna og málaði tvær umferðir
með málningunni. „Ég er hæstá
nægð með útkomuna þó að her
bergið sé ekki enn alveg tilbúið.“
Málaði
parketið blátt
Helga Guðrún er nýflutt með fjölskyldu sinni
til Dalvíkur þar sem hún gerir upp gamalt hús í
samvinnu við tengdaforeldra sína. Hún fór ansi
djarfa leið þegar kom að því að breyta gólfi í einu
herberginu.
Helga Guðrún Lárusdóttir.
Fallegt Bláa parketið kemur einstaklega vel út.
Eftir pússun Helga pússaði parketið og
ryksugaði vel á eftir.
Skúrað Það síðasta sem hún gerði áður en
hún málaði var að skúra gólfið tvisvar með
vatni og ediki.
Tvær umferðir Helga málaði tvær umferðir
yfir gólfið með sérstakri gólfmálningu.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Byggingavöruverslun
Hentar á öll rými heimilins, 15 viðarútlit á lager.
Einstaklega einfalt
að leggja!
Vatnsþolið korkparket!