Fréttatíminn - 01.10.2016, Qupperneq 52
Grátt Grái liturinn á veggjunum er hlýlegur og stóra veggklukkan fer ekki framhjá neinum.
Með parketvegg í svefnherberginu
Fjóla Katrín Steinsdóttir sálfræðingur tók svefnherbergið í íbúð sinni í gegn á dögunum. Fyrir var herbergið látlaust en eftir
breytingar er það gjörbreytt. Parketlagður veggur fyrir ofan hjónarúmið setur mestan svip á herbergið.
S
vefnherbergið var afskap-
lega einfalt og látlaust fyr-
ir breytingar og vantaði
einhvern karakter í það.
Okkur langaði að breyta
eitthvað til en okkar fyrsta pæling
var í rauninni bara stærra rúm –
sem við svo fundum í Betra Bak. En
svo þekkjum við snillinginn Arnar
Gauta og hann var með fullt af góð-
um hugmyndum og þannig byrj-
uðu framkvæmdirnar,“ segir Fjóla
Katrín Steinsdóttir sálfræðingur.
Fjóla og maður hennar, Jón
Gunnar Geirdal, eigandi
Lemon, tóku svefn-
herbergið sitt í gegn
á dögunum. Þau í
raun gerbreyttu
herberginu með
hjálp Arnars Gauta
Sverrissonar, hins
landskunna fagur-
kera.
Parketlagður
veggur vekur sérstaka
athygli eftir breytingarn-
ar. Um er að ræða plastparket úr
Ikea með fallegum grásprengdum
lit. Veggirnir voru svo málaðir í grá-
um tóni í stíl og fyrir vikið mynd-
ast mjög hlýleg stemning í svefnher-
berginu. Fjóla Katrín er hæstánægð
með útkomuna.
„Eins og með flest allt sem Arn-
ar Gauti stingur upp á í slíkum
breytingum þá heillast maður strax
og hugmyndin um parketlagða
vegginn heillaði okkur. Útkoman er
æðisleg, herbergið er mun hlýlegra
og toppurinn auðvitað þetta
himneska rúm,“ segir hún.
Fjóla segir að þau Jón
hafi langað í rúm-
gafl og sú hugmynd
hafi síðan þróast
yfir í parketlagða
vegginn.
„Eftir verslun-
arleiðangur í hina
frábæru Húsgagna-
höll var bíllinn fylltur
af fallegum hlutum sem
hver og einn setur svo
sannarlega mikinn svip á herberg-
ið. Það er afar þægilegt að finna allt
á einum stað líka sem okkur þótti
mikill munur. En okkur langaði líka
í rúmgafl og þannig fæddist þessi
hugmynd með parketlagða vegginn
sem rammar inn rýmið og gerir það
hlýlegt. Restin púslaðist svo út frá
því – grái liturinn á veggina, ljósin
flottu, svarti stiginn og kollurinn
sem náttborð, klukkan stóra og aðrir
smáhlutir eins og krossaveggurinn,
hrafnarnir og fleira.“
Eruð þið dugleg að breyta heimil-
inu? Eru frekari framkvæmdir á dag-
skránni eða var þetta lokapunkturinn
yfir i-ið?
„Við erum sæmilega breytinga-
-glöð á heimilinu og fyrirhugaðar
eru framkvæmdir á baðherbergi,
stofu og endurröðun á mublum,
listaverkum og smáhlutum. Íbúð-
in er ekki stór en við erum sífellt
að leita eftir leiðum til að stórri fjöl-
skyldu líði sem best í notalegu rými,“
segir Fjóla Katrín Steinsdóttir.
Gjörbreytt svefnherbergi
Fjóla Katrín og Jón Gunnar
fengu Arnar Gauta Sverrisson
til að hjálpa sér við að endur-
nýja svefnherbergið. Þau eru
hæstánægð með útkomuna
og sérstaklega parketlagða
vegginn. Myndir | Rut
Frumlegt Kollurinn er náttborð öðrum
megin og hinum megin gegnir stiginn sama
hlutverki.
Flott Ýmsir smáhlutir setja svip sinn á
herbergið.
Hlýleg stemning Parketlagði veggurinn rammar inn rýmið og gerir það hlýlegt.
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 20164 GÓLFEFNI
„Útkoman
er æðisleg,
herbergið
mun hlýlegra
og
toppurinn auð
vitað
þetta himnesk
a
rúm“