Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 22.10.2016, Page 2

Fréttatíminn - 22.10.2016, Page 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 22. október 2016 Launamál Eggert Skúli Jóhannes- son og Gunnar Bender, stofnend- ur Hjálparsamtaka bágstaddra barna, voru grunaðir um að reyna að svíkja fé út úr Ábyrgða- sjóði launa. Gunnar Bender krafðist þess að sjóðurinn borg- aði sér peninga vegna þess að Eggert skuldaði honum margra mánaða laun. Bæði skiptastjóri í þrotabúi Eggerts og Ábyrgða- sjóðurinn hafa nú hafnað kröfu Gunnars. Fréttatíminn fjallaði um peningasöfn- un Hjálparsamtaka bágstaddra barna fyrir nokkru og sagði frá því að nær ómögulegt hefði verið að rekja hverj- ir stæðu að baki söfnuninni. Hvergi komu nöfn ábyrgðarmanna samtak- anna fram en söfnunin átti að vera í þágu fátækra barna. Í ljós kom að Eggert Skúli og Gunn- ar Bender voru forsprakkar samtak- anna, en slóðin til þeirra var vel falin. Samstarf þeirra í hjálparstarfinu var athyglisvert því nokkru áður hafði Gunnar krafist þess að Ábyrgðasjóð- ur launa greiddi honum laun sem Eggert skuldaði honum. Eggert varð gjaldþrota í fyrra. Þegar launakröf- ur bárust í þrotabúið frá Gunnari, vöknuðu grunsemdir um að eitthvað óeðlilegt væri á seyði. Gunnar full- yrti að hann hefði unnið fyrir Eggert í langan tíma án þess að fá greitt fyrir. Gunnar krafðist þess að ábyrgðasjóð- urinn greiddi honum peningana sem Eggert skuldaði honum. Skiptastjóri í þrotabúi Eggerts sagði að farið yrði gaumgæfilega ofan í saumana á kröf- unum. Haldinn var sérstakur fund- Ábyrgðasjóður launa hefur hafnað launakröfum Gunnars Bender (til vinstri) vegna vangoldinna launa frá Eggert Skúli Jóhannessyni (til hægri). Mennirnir voru grunaðir um að reyna, með kröfunum, að svíkja fé úr sjóðnum. Læknisfræði Ríkissjónvarpið getur sýnt mynd sænska ríkis- sjónvarpsins um plastbarka- málið og ítalska skurðlækninn Paulo Macchiarini. Málið teygir sig til Íslands og er nú rannsak- að hér á landi. Sýning myndar- innar hér á landi hefur hingað til strandað á réttindamálum. Ríkissjónvarpið getur nú loksins sýnt heimildarmynd sænska ríkis- sjónvarpsins um plastbarkamálið svokallaða þar sem búið er að leysa úr réttindamálum sem hingað til hafa komið í veg fyrir að stöðin geti sýnt myndina. Þetta kemur fram í svari Skarphéðins Guðmundsson- ar, dagskrárstjóra RÚV. Skarphéð- inn segir að RÚV íhugi nú hvort það eigi að sýna umrædda sænska heimildarmynd um plastbarkamál- ið eða aðra heimildarmynd sem einnig fjallar um málið. Sænska myndin var gerð af starfs- manni sænska ríkissjónvarpsins, Bosse Lindqvist, og má segja að hún hafi orðið til þess að plastbarkamál- ið varð að stóru hneykslismáli sem teygir sig frá Svíþjóð til Íslands, Bandaríkjanna, Tyrklands og Rúss- lands, meðal annars. Eins og áður hefur komið fram í máli Skarp- héðins í fjölmiðlum gat RÚV ekki sýnt myndina fyrr á árinu vegna réttindamála. Breska ríkissjón- varpið BBC var fyrsta landið til að tryggja sér sýningarrétt á myndinni og verður fyrsti hluti hennar sýnd- ur í Bretlandi þann 25 október. Ísland spilar mikilvæga rullu í plastbarkamálinu sem snýst um aðgerðir sem ítalski skurðlækn- irinn Paulo Macchiarini gerði í Stokkhólmi á árunum 2011 og 2012. Fyrsti sjúklingurinn sem Macchi- arini græddi plastbarka í var Erít- reumaðurinn Andemariam Beyene sem var búsettur á Íslandi en hann dó tveimur og hálfu ári eftir að- gerðina vegna þess að plastbarkinn virkaði aldrei sem skyldi. Margar af helstu reglum læknisfræðinnar voru brotnar í málinu og var ekki búið að reyna aðgerðarformið á dýrum áður en það var prófað á Andemariam. Háskóli Íslands og Landspít- ali rannsaka nú meðferð Andem- ariams á Íslandi en læknir hans var Tómas Guðbjartsson. | ifv RÚV getur loksins sýnt mynd um plastbarkamálið Ríkissjónvarpið getur loksins sýnt myndina um plastbarkamálið og Paulo Macchiarini þar sem Ísland og Landspítalinn spila stóra rullu. Hluthafar Skinneyjar fengu 600 milljóna arð Sjávarútvegur Útgerðarfélag- ið á Höfn í Hornafirði skilaði 1600 milljóna króna hagnaði í fyrra. Arðurinn var rúmum 150 milljónum krónum hærri en veiðigjöld félagsins. Hluthafar útgerðarfélagsins Skinn- eyjar-Þinganess fengu greiddar 600 milljónir króna í arð út úr fyrirtæk- inu í fyrra. Þetta kemur fram í árs- reikningi útgerðarinnar sem nýlega var skilað til ársreikningaskrár. Arðgreiðslur til hluthafa nema því 1200 milljónum króna síðastliðin tvö ár. Fyrirtækið er að stærstu leyti í eigu fjölskyldu Halldórs Ás- grímssonar heitins, fyrrverandi for- manns Framsóknarflokksins. Tekjur útgerðarinnar námu 9.6 milljörðum króna og hagnaður fé- lagsins nam rúmlega 1600 milljón- um króna í fyrra. Þá hækkaði eig- ið fé útgerðarinnar, eignir mínus skuldir, úr rúmum 11 milljörðum króna og upp í rúmlega 12 milljarða króna. Þannig má segja að ávinn- ingur hluthafa Skinneyjar á rekstri fyrirtækisins hafi numið 1.6 millj- örðum króna í fyrra. Skinney-Þinganes er sjöunda stærsta útgerð landsins, miðað við kvótastöðu, og borgaði félagið 448 milljónir króna í veiðigjöld í fyrra. Arðgreiðslan út úr fyrirtækinu var því rúmlega 150 milljónum króna hærri en veiðigjöldin sem fyrir- tækið greiddi. Þegar horft er arð- greiðslu og hækkun eiginfjár var sú upphæð rúmum milljarði hærri en veiðigjöld fyrirtækisins. | ifv Kröfum Gunnars Bender hafnað Ríkisstjórnir: Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar: Hægri stjórn: Sjálfstæðisflokkur, Framsókn, Viðreisn: 26 þingmenn Hægri miðjustjórn: Sjálfstæðisflokkur, Framsókn, Viðreisn, Björt framtíð: 30 þingmenn Sjálfstæðisflokkur, Framsókn, Viðreisn, Björt framtíð, Samfylking: 34 þingmenn Miðjustjórn: Píratar, Samfylking, Björt framtíð, Viðreisn 30 þingmenn Yfir miðjuna: Sjálfstæðisflokkur, Framsókn, VG 33 þingmenn Vinstri miðjustjórn: VG, Píratar, Samfylking, Björt framtíð 37 þingmenn Vinstri stjórn: VG, Samfylking 17 þingmenn Kemur til greina að gefa eftir forsætisráðherrann Stjórnmál Píratar stefna að því að tilkynna á fimmtudaginn hver fer með stjórnarmynd- unarumboð fyrir hönd Pírata. Auk Birgittu Jónsdóttir koma Smári McCarthy til greina og Einar Brynjólfsson. Flokkurinn er stærstur, samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar viku fyrir kosningar. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Smári MaCarthy, oddviti Pírata í Suðurkjördæmi segir að hugsanlegt sé að spurningunni um hver verður forsætisráðherra, verði svarað fyrir þennan tíma. Til dæmis um helgina í viðræðum Pírata við stjórnarand- stöðuflokkana en þeir hittast á Litlu Lækjarbrekku á sunnudag til að ræða samstarf eftir kosningar. Smári segir að Píratar muni láta málefnin ráða og það komi vel til greina að gefa forsætisráðuneytið eftir ef það muni tryggja framgang málefnanna. Hann neitar því ekki að þar komi Katrín Jakobs- dóttir, formaður Vinstri grænna, helst til greina, bæði vegna sterkrar stöðu VG og mikilla persónu- legra vinsælda hennar langt út fyrir raðir eig- in flokksmanna. Smári útilokaði ekki að niður- staða viðræðna helgar- innar gæti því orðið sú að Píratar þyrftu ekki að tilnefna forsætisráð- herraefni sitt. Katrín Jakobsdóttir segir að ekki sé farið að ræða verka- skiptingu innan slíkrar stjórnar. „Ég ímynda mér að slíkt komi ekki til umræðu fyrr en að loknum kosn- ingum.“ „Ég hef fulla trú á því að það verði vinstri stjórn. Ég tel það kost að það séu f leiri en tveir f lokk- ar við borðið og við náum breiðri samstöðu um málin. Við erum auðvitað mjög ánægð með niður- stöður könnunarinnar. Við höfum alltaf verið mjög afdráttarlaus um að stjórnarandstaðan ætti að sam- mælast um að mynda ríkisstjórn að loknum kosningum.“ Birgitta Jónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík norður, segist mjög glöð yfir niðurstöðum könnunarinnar og því trausti sem þeim sé sýnt. Staðan í raunheimum sé hinsvegar önnur, þar sé flokkurinn með fimm prósenta fylgi. Verði niðurstöður kosninga á pari við niðurstöður Félagsvísindastofnunar sé það hinsvegar stórsigur. Hún seg- ist bjartsýn á að það verði hægt að mynda ríkisstjórn hratt og vel eftir kosn- ingar ef skýrar línur liggi fyrir. Flokk- arnir séu sam- mála um að setja nýja stjórnar- sk rá á oddinn, það verð- ir lagað til í ur í Ábyrgðasjóði launa til að skoða kröfurnar. Grunsemdir höfðu kvikn- að um að mennirnir væru í slagtogi að reyna að svíkja fé út úr sjóðnum. Kallaði sjóðurinn því eftir frekari gögnum um málið. Samkvæmt upp- lýsingum frá sjóðnum voru gögnin ófullnægjandi. Bæði skiptastjóri í þrotabúi Eggerts og ábyrgðasjóður- inn ákváðu í kjölfarið að hafna launa- kröfum Gunnars Bender. | þt heilbrigðiskerfinu og sjávarútvegs- málunum en eftir sé að semja um nákvæmari útfærslu á landbúnað- arkerfi og sjávarútvegskerfi. Birgitta segir ekki tímabært að ræða ráð- herrastóla. Píratar vilji þó vænt- anlega ekki að ráðherrar sitji á þingi og þeir sem sitji í ríkis- stjórn fyrir flokkinn séu þá ekki á þingi á meðan. Þá verði jafnvel kallaðir fagráð- herrar í einstök ráðuneyti. Sú krafa verði þó ekki gerð til annarra flokka.“ Birgitta segir líklegt að ráðherrar Pírata sitji ekki á þingi og jafnvel verði kallaðir til fagráð- herrar utan úr bæ. Katrín Jakobsdóttir segist hafa fulla trú á vinstri stjórn eftir kosningar. Landbúnaður Ekki boðið í samráðshópinn „Ákvörðun Gunnars Braga kemur okkur ekki mikið á óvart miðað við afstöðu ráðherrans sem hefur fundist gagnrýni okkar og rökstuðning- ur um frjálsræði í landbúnaði óþægileg,“ segir Ólafur Þ. Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, en félagið á ekki sæti í sam- ráðshópi um endurskoðun búvörusamninga. Gunnar Bragi Sveinsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, sem skipar samráðshópinn sem samanstendur af Alþýðusambandi Íslands, BSRB, Bændasamtökum Íslands, Neytendasamtökunum, Samtökum afurðastöðva og Samtökum atvinnulífsins. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Nýjar vörur í hverri viku

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.