Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 54
Frygðaraukandi
og ljúffengur
gleðigjafi
LoveChock súkkulaðið er gott fyrir kroppinn.
Unnið í samstarfi við Kaja Organic
Kaja Organic opnaði nýver-ið verslun við Óðinstorg þar sem hægt er að kaupa lífrænt hráefni af öllu tagi
og þurrvörur eftir vigt í eigin ílát.
Meðal vinsælustu varanna hjá Kaja
Organic er LoveChock súkkulaðið
sem er söluhæsta hrásúkkulaðið
í Evrópu. Karen Emilía Jónsdótt-
ir – Kaja – segir súkkulaðið vera
allra meina bót. „Kakóbaunirnar
eru ekki ristaðar sem veldur því að
efnin haldast öll hrein í súkkulað-
inu. Kakóbaunin er ofurfæða og er
mjög rík af magnesíum. Fyrir utan
það inniheldur hún mikið magn af
gleði- og ánægjugjafa; sambæri-
legum þeim og er notað í Viagra,“
segir Kaja og þrætir ekki fyrir að
súkkulaðið gæti mögulega verið
frygðaraukandi.
LoveChock súkkulaðið er
sykurlaust en notaður er kókos-
blómanektar til þess að fá sætuna
og þar sem hann er notaður hrár
haldast steinefnin í honum. Um-
búðirnar eru unnar úr sellulósa
sem er efni unnið úr trjákvoðu og
brotnar niður náttúrulega á þrem-
ur mánuðum. Merki LoveChock
er af ástarguði sem vísar í virkni
þess; meiri ást og meiri gleði.
Einkunnarorðin eru „hér inni er
hamingja“.
Súkkulaðið fæst í mörgum
gerðum; með möndlum og fíkjum,
hreint með kakónibbum, gojiberj-
um og appelsínu, chili og kirsu-
berjum og mórberjum og vanillu
og pecan og maca. Einnig eru
svokallaður LoveRocks sem eru
súkkulaðihúðaðar möndlur, mór-
ber, hesluhnetur og fleira góðgæti.
Ásamt því að fást í Kaju Organic
fæst LoveChock súkkulaðið í
heilsuverslunum og Hagkaupum.
15 bestu veitinga-
staðir landsins
Sænska veitingahúsabiblían The White Guide kemur út um mánaða-
mótin. The White Guide hefur komið út síðan 2005 og hefur vaxið og
stækkað með hverju árinu. Síðustu ár hafa íslenskir veitingastaðir verið
teknir fyrir og í ár komast 15 veitingastaðir á listann.
Þessir fimmtán bestu veitingastaðir landsins, samkvæmt The White
Guide, eru Austur-Indiafjélagið, Dill, Fiskfélagið, Fiskmarkaðurinn,
Gallery Restaurant á Hótel Holti, Grillið, Grillmarkaðurinn, Kol, Lava
restaurant í Grindavík, Matur og drykkur, Norðaustur Sushi & Bar á
Seyðisfirði, Rub 23 á Akureyri, Slippurinn í Vestmannaeyjum, Snaps og
Vox.
Listinn verður aðgengilegur hinn 31. október og þá kemur í ljós hverj-
ir af þessum stöðum teljast þeir allra bestu.
Veisla Maturinn á Kol svíkur ekki og staðurinn þykir einn af 15 bestu veitingastöðum landsins.
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 201610 MATARTÍMINN
Verið alltaf velkomin í Kolaportið!
OPIÐ ALLA LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA FRÁ KL. 11–17
TROÐIÐ
AF SPENNANDI
KOMPUDÓTI,
ÖLLU MÖGULEGU
OG ÓMÖGULEGU
OG GIRNILEGUM
MAT
Komdu og upplifðu þessa einstöku Kolaports stemningu!
Kolaportið
er umkringt af
bílastæðahúsum:
• VESTURGATA
Mjóstræti
• KOLAPORTIÐ
Kalkofnsvegur 1
• RÁÐHÚSIÐ
Tjarnargata 11
• TRAÐARKOT
Hverfisgata 20
Ertu
búinn
að prófa
Kaffi
Port
á nýja
staðnum
?
Frygðaraukandi LoveChock súkkulaðið er mest selda hrásúkkulaðið í Evrópu.Mynd | Rut
Virta matartímaritið Saveur fjallar um íslenska matar-menningu í nýjasta tölublaðinu. Blaða-
maðurinn Shane Mitchell fór vítt
og breitt um Ísland og kynnti sér
íslenska matarmenningu. Mitchell
heillaðist af matarsenunni og segir
að aldrei hafi verið betri tími til að
„borða sér leið“ gegnum Ísland;
illa lyktandi hákarl sé á undan-
haldi. Mitchell var afar hrifin af
íslenska hráefninu og talaði sér-
staklega um það hversu framúr-
stefnulegir íslenskir kokkar eru
í notkun á íslensku hráefni, t.d.
hvönninni; Ragnar Eiríksson á
Dill þurrkar laufin og notar sem
krydd og Gísli Matthías Auðunsson
á Mat og drykk pikklar fræin og
notar eins og kapers. Ragnar hefur
einnig lagt hvannarrót í vodkabað
og ætlar að bíða í ár og sjá hvað
gerist – spennandi. Önnur hráefni
sem Mitchell skoðaði og fræddist
gaumgæfilega um eru krækiber,
skyr, þari, þorskur – eða öllu held-
ur þorskhausar og lamb. Lesa má
þessa fróðlegu grein í heild sinni á
saveur.com.
Gísli Matthías Shane Mitchell, blaðamaður á Saveur, var hrifinn af því hvernig Gísli
Matthías notar hvönn, þara og þorskhausa.
Íslensk matar-
sena í Saveur
Erkifjendur
mætast í
sama
molanum
Segja má að karamellan og lakkrísinn
hafi att kappi að undanförnu í vinsæld-
um – hver nýjungin á fætur annarri hefur
sprottið upp þar sem þessi brögð eru í
forgrunni. En erkifjendurnir mætast nú á
miðri leið í nýjum sælgætismola frá Nóa
Síríusi; Lakkrís – karamelluperlur – að sjálfsögðu súkkulaðihúðaðar.
Við giskum á að molinn verði afar vinsæll meðal þeirra sem þjást af val-
kvíða.