Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 22. október 2016 Ævisagan í fimm hlutum Eins manns drasl er annars gull Á heimili Önnu Ringsted eiga nánast allir munir sér mikla og merkilega sögu. Anna, sem rak um árabil antíkverslunina Fríðu frænku, er samt ekki lengi að velja þá hluti sem tengjast mismunandi köflum lífsins hvað sterkustum böndum. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Ferðasaga bláu kaffikönnunnar „Mamma gaf mér þessa kaffikönnu þegar ég flutti til Reykjavíkur og byrjaði að búa,“ segir Anna sem er fædd og uppalin á Akureyri. „Á þeim tíma voru gamlir hlutir að komast í tísku svo ég fór að gramsa í geymslunni hennar og fann þessa könnu. Svo þegar ég hætti að safna bláum hlutum fór kannan inn í geymslu og var þar alveg þar til mamma flutti til Sval- barðseyrar. Þá eignaðist mamma skáp sem hana lang- aði að skreyta með gömlum munum svo ég bauðst til að lána henni bláu kaffikönnuna, en bara í láni. Svo þegar hún flutti í heldri manna blokk skilaði hún mér könnunni sem er aftur komin til mín. Ég helli ekki upp á í henni en hún er komin með sinn sess á heimil- inu og mér þykir afskaplega vænt um hana.“ Ferðaskúlptúr „Mágkona mín, Brynhildur Þorgeirsdóttir skúlptúristi, ákvað fyrir nokkrum árum, eftir að hafa verið með sýningu í Nýlistasafninu, að búa til ferðaskúlptúra. Verkin á sýningunni voru steypt eða úr gleri og ekk- ert sérstaklega meðfærileg, þung og ekki auðveld í flutningum. Svo hún gerði nokkur svona verk með hjörum svo hægt væri að leggja þau saman. Þennan skúlptúr legg ég bara saman og flyt eins og ekkert sé. Ég er ég búin að eiga hann lengi og þykir voðalega vænt um hann.“ Drasl verður gull „Einu sinni leigði ég í gömlu húsi við Njáls- götuna. Þar á háaloftinu var stútfullt af gömlu dóti sem eigandi hússins átti en enginn var að nota, en mig klæjaði auðvit- að í puttana að komast yfir dótið. Svo kom upp mölur í húsinu þannig að það þurfti að úða allt svo ég bauðst til að kaupa dótið en það var engin áhugi á því. En svo þegar ég kom heim úr vinnunni einn daginn voru ruslatunnurnar stútfullar af þessu dóti. Ég bara trompaðist og var alla nóttina að gramsa í tunnunum og tína inn dót. Þetta dót kom sér mjög vel fyrir mig því ég var nýbúin að opna Fríðu frænku við Ingólfsstræti og var mjög blönk. En ég geymdi þessa einu mynd, draumkennda mynd af konu sem spilar á gítar og horfir út á haf. Hún minnir á það að eins manns drasl er annars gull.“ Með demanta í vasanum „Það kom oft til mín kona niður í búð. Þetta var eldri kona af ríkum ættum sem hafði munað sinn fífil fegurri og var farin að borða dótið sitt, þ.e selja undan sér allskyns muni. Einn daginn kemur hún með hálsfesti sem lætur lítið yfir sér en hún segir hana hafa verið smíðaða úr 58 demöntum og hvíta- gulli í New York árið 1942. Hún vildi fá dálítið mikið fyrir hana en ég trúði þessu ekki alveg en sagðist munu skoða þetta og setti hana í vasann. Svo sagði gullsmiðurinn mér að jú, þetta væru 58 demantar en öðruvísi slípaðir en gengur og gerist í dag. Ég ákvað að kaupa festina en var svo feimin við hana að ég gekk alltaf með hana í vasanum til að byrja með. En ég nota hana í dag og hún er alveg guðdómlega falleg.“ Ást í ramma „Þegar ég byrjaði að kyssa manninn minn, sem er núna dáinn, þá ákváðum við að fara í þriggja mánaða ferðalag. Við lent- um í Lúxemborg og vorum nýkomin inn á hótel þegar Sveinn segist þurfa að skreppa aðeins út. Svo kemur hann til baka með þenn- an plastramma, hann var dálítið fyrir svona „kitsch“, með passa- mynd af sjálfum sér í. Mér þykir að sjálfsögðu mjög vænt um þennan ramma sem fyrir mér er algjör dýrgripur. Þetta var svo rómantískt og skemmtilegt.“ Verslanir á Laugavegi 182 og í Smáralind iMac 21” verð frá: 199.990 Verð áður frá: 229.990 27” verð frá: 319.990 Verð áður frá: 349.990 Lægra gengi = betra verð Allt að 15% lækkun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.