Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 10
Verði úrslit kosninganna í takt við
kannanir má leiða líkur til þess að
næstu fjögur árin verði hér vinstri
stjórn undir forystu Pírata eða
Vinstri grænna. Báðir flokkarnir
hafa gefið það út að þeir hafi áhuga
á að mynda ríkisstjórn úr fyrrum
stjórnarandstöðuflokkunum enda
hafi þeir unnið mjög vel saman á
kjörtímabilinu. Þessir flokkar munu
hittast á sunnudaginn og ræða
möguleika á samstarfi að kosning-
um loknum. Með útspili sínu í vik-
unni, þegar Píratar buðu til þessara
viðræðna, tóku þeir sér stöðu sem
leiðandi afl í þessum hópi.
Ráðherrar ekki á þingi
Samþykkt stefna Pírata segir að
„Píratar skuli ekki eiga aðild að rík-
isstjórn þar sem ráðherrar sitji jafn-
framt sem þingmenn.“
Birgitta Jónsdóttir, kapteinn
Pírata, segir að ekki sé ólíklegt að
fagráðherrar verði ráðnir í ráðu-
neyti á borð við heilbrigðisráðu-
neytið en hins vegar sé ekki víst
hvaða ákvörðun verði tekin um
ráðuneytin sem eru mjög pólitísk,
svo sem innanríkisráðuneytið.
Hefðin gerir ráð fyrir því að forseti
Íslands veiti stærsta stjórnarand-
stöðuflokknum umboð til stjórnar-
myndunar, sé ríkisstjórn fallin. Til
þess að fá það umboð verða Píratar
að velja sér oddvita, sem formlega
fær umboðið frá forseta til þess að
fara fyrir stjórnarmyndunarvið-
ræðum. Sá oddviti yrði jafnframt
forsætisráðherraefni Pírata.
Strúktúr Pírata er hins vegar þess
eðlis að þótt Birgitta Jónsdóttir sé
kölluð kapteinn er hún ekki sjálf-
skipaður oddviti. Birgitta segir í
samtali við Fréttatímann að flokk-
urinn hafi enn ekki tekið ákvörðun
um hver myndi gegna þeirri stöðu,
Birgitta eða Smári McCarthy sem
hefur verið orðaður við hana, eða
jafnvel Einar Brynjólfsson. Þau þrjú
voru í viðræðunefnd flokksins sem
bauð hinum stjórnarandstöðuflokk-
unum og Viðreisn á sunnudaginn
til viðræðna um samstarf að lokn-
um kosningum. Píratar vilji helst
forðast að breyta flötum strúktúr
sínum og freista þess að þurfa ekki
að taka þessa ákvörðun, að sögn
Birgittu. Þau muni bíða álykta og sjá
hvernig fylgið sé að þróast í skoð-
anakönnunum til þess að sjá hvort
þau geti ekki hreinlega sloppið við
hana. Ef þau neyðist til að taka
ákvörðun um forsætisráðherraefni
verði tilkynnt um hana á fimmtu-
daginn í næstu viku.
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 22. október 2016
Mikil vinna að
vera í ríkisstjórn
Línur eru að skýrast í kosningunum og þótt fylgið sé nokkuð á flakki
benda skoðanakannanir eindregið til að þrír stærstu flokkarnir
verði Píratar, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn. Ríkisstjórnin
kolfellur og fylgi Sjálfstæðiflokksins nálgast nú 20 prósent. Í nýjustu
skoðanakönnun Félagsvísindstofnunar sem birt var í gær, föstudag,
kemur í ljós að Píratar eru stærsti flokkur landsins og að fylgi Vinstri
grænna er lítið minna en Sjálfstæðiflokks.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Vilja forðast að breyta strúktúr
Af orðum Birgittu má dæma að
flokkurinn sé ekkert sérlega ásæk-
inn í forsætisráðherrastólinn og því
aukast líkurnar á því að Píratar og
Vinstri græn, tveir stærstu stjórn-
arandstöðuflokkarnir, ákveði sín á
milli að Katrín Jakobsdóttir verði
forsætisráðherra. Það myndi jafn-
framt koma í veg fyrir að Píratar
þurfi að breyta strúktúr flokksins
og um leið grundvallarásýnd hans
enda hafa þeir margoft lýst því yfir
að barátta þeirra snúist ekki um
völd, heldur árangur. Muni þeir
tryggja að málefni Pírata nái fram
að ganga í nýrri ríkisstjórn er ekki
víst að þeir vilji vera í forsvari fyrir
hana. Þá er ljóst að Katrín Jakobs-
dóttir myndi stýra skútunni. Fátt
ber á milli í stefnumálum þessara
flokka og þeir hafa að sögn beggja
unnið vel saman á þingi. Báðir vilja
vinstri stjórn samsetta úr fyrr-
um stjórnarandstöðuflokkunum
en Vinstri græn hafa það umfram
Pírata að þau hafa reynslu af ríkis-
stjórnarsamstarfi.
Katrín er fremur öruggur val-
kostur sem forsætisráðherraefni
nýrrar ríkisstjórnar. Almenningi
líkar vel við hana og hefur hún
margoft komið út sem sigurvegari
í könnunum um vinsælasta stjórn-
málamanninn. Með því hefur hún
þegar forskot á marga sem gegnt
hafa embættinu til þessa. Hún
býr yfir mörgum sömu kostum og
Hillary Clinton, hún er frambæri-
leg, greind, vel lesin og mætir ávallt
vel undirbúin til leiks. Það hefur
hins vegar aldrei reynt almennilega
á forystuhæfileika hennar enda hef-
ur hún aðeins gegnt formannsemb-
ættinu í þrjú ár og flokkurinn allan
þann tíma verið í stjórnarandstöðu.
Hún þótti jafnframt fremur ósýni-
leg á þingi á köflum þótt hún hafi
orðið ögn meira áberandi undir lok
þings og tekið sér stöðu sem tals-
maður minnihlutans eftir að Sam-
fylkingin komst í óefni vegna for-
mannsslags og innanbúðardeilna.
Það sem Katrín hefur hins vegar
fram yfir Hillary er að hún er óum-
deild, sem sýndi sig meðal annars í
því að um langa hríð var hún orðuð
við forsetaembættið og nokkuð stór
hreyfing myndaðist sem hvatti hana
til framboðs.
Nýir vindar blása
Katrín hefur mikið til sloppið við
gagnrýni. Nýir vindar hafa hins
vegar blásið að undanförnu og hef-
ur hún þurft að svara fyrir þrjú stór
mál sem hún tók þátt í ákvörðun
um – og þykja orka tvímælis, ekki
síst í ljósi áherslumála flokksins sem
hún er í forystu fyrir. Þessi mál eru
olíuleit á Drekasvæðinu, sem hún
og Steingrímur J. Sigfússon ákváðu
í sameiningu að veita leyfi til í berri
andstöðu við stefnu flokksins í um-
hverfismálum, stóriðja á Bakka sem
flokkurinn samþykkti þvert á um-
hverfissjónarmið, og aðgerðaleysi
í búvörusamningum þar sem flokk-
urinn sat hjá í atkvæðagreiðslu á
þinginu þrátt fyrir mikla almenna
óánægju með samningana meðal
almennings og gagnrýni flokksins
á þá.
Þá er seint hægt að telja Vinstri
græn til kerfisbreytingaflokks sem
vill horfa til framtíðar í stefnumót-
un fyrir samfélagið. Flokkurinn
vill nýta þriðjung kvótans í byggða-
skyni í stað þess að hámarka tekjur
þjóðarinnar af fiskveiðiauðlindinni
og hefur lagt fram hugmyndir um
stofnun samfélagsbanka í eigu ríkis-
ins þrátt fyrir að tilraunir á borð við
Sparisjóðina og Íbúðalánasjóð hafi
sýnt sig að gangi ekki upp.
Afstöðuleysi í búvörusamningi
Ég ber þessi atriði undir Katrínu og
spyr fyrst hvernig hún geti varið af-
stöðuleysi Vinstri grænna í bú-
Forseti Íslands veitir stærsta stjórnar-
andstöðuflokknum umboð til stjórnar-
myndunar, sé ríkisstjórn fallin. Til þess
að fá það umboð verða Píratar að velja
sér oddvita, sem formlega fær um-
boðið frá forseta til þess að fara fyrir
stjórnarmyndunarviðræðum. Píratar
hafa ekki valið enn á milli Smára
MaCarthy og Birgittu Jónsdóttur.
Mynd | Hari
„Við erum ekki flokkur
sem ásælist völd. Það
er mikil vinna að vera í
ríkisstjórn og við munum
ekki fara í ríkisstjórn
bara til þess að vera í
stjórn heldur yrði það að
vera út frá þeirri skýru
sýn sem við höfum reynt
að leggja áherslu á fyrir
þessar kosningar. Við
eigum mesta samleið
með núverandi stjórnar-
andstöðuflokkum og við
höfum unnið vel saman á
þinginu.“
OrkupOkinn
Allt sem
þú þArft
HOll
Og góð
OrkA