Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 6
Sif er flugumferðarstjóri í flugturninum á Keflavíkurflugvelli. Í daglegu starfi veitir hún tugum flugvéla
heimildir til flugtaks- og lendingar og starf hennar tryggir að flugumferð gangi hratt og örugglega fyrir
sig á flugvellinum. Þannig er Sif hluti af góðu ferðalagi fjölda farþega á hverjum degi.
Einar er arkitekt sem er á leið til Frakklands í vinnuferð. Hann er vanur því
að fá sér morgunverð á Keflavíkurflugvelli og treystir á að allt gangi
hratt og örugglega fyrir sig á flugvellinum.
16
-1
62
0
—
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
V I Ð E R U M H L U T I
A F G Ó Ð U F E R ÐA L AG I
Hjá Isavia starfar samhentur hópur starfsmanna. Markmið okkar er
að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra 30 milljóna farþega sem fara
um flugvelli og flugstjórnarsvæði okkar árlega. Okkar hlutverk er að
tryggja öryggi þeirra allra og gera för þeirra sem ánægjulegasta.
Við erum að vaxa og þurfum að fjölga í liðinu okkar til að bregðast við
sífelldri fjölgun farþega. Stefna okkar er að bjóða upp á gott og fjöl-
skylduvænt starfsumhverfi, öfluga fræðslu og þjálfun og við leggjum
áherslu á jákvæðan starfsanda innan fyrirtækisins.
Kynntu þér störfin sem standa til boða hjá Isavia og vertu með okkur
í því að vera hluti af góðu ferðalagi.
isavia.is/atvinna
facebook.com/isaviastorf
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 22. október 2016
Kostnaður vegna heilbrigðiskerfis-
ins árið 2015 var tæpir 200 millj-
arðar, þar af komu 160 milljarðar úr
ríkissjóði en afganginn greiddu not-
endur þjónustunnar sjálfir. 11% af
landsframleiðslu eru um 240 millj-
arðar og samkvæmt því vantar 40
milljarða upp á að heilbrigðiskerfið
sé nægilega fjármagnað, miðað við
hin Norðurlöndin.
Í umræðunni um ákall Kára hef-
ur verið deilt um hvort átt
hafi verið við að 11% eigi
að koma úr ríkissjóði,
eða hvort 11% eigi við
um heildarkostnað-
inn, sem sagt útgjöld
ríkissjóðs og greiðslur
einstaklinga samanlagt.
Ekkert OECD landanna ver
11% af landsframleiðslu úr rík-
issjóði til heilbrigðismála, og er því
verið að miða við heildarkostnað
heilbrigðiskerfisins en misjafnt er
eftir ríkjum hve stór hluti þess kem-
ur úr ríkissjóði. Af Norðurlöndun-
um er hlutfallið hæst í Svíþjóð, þar
sem ríkissjóður greiðir 89% kostn-
aðarins við heilbrigðiskerfið meðan
greiðsluþátttaka almennings er 11%.
Tveir flokkar svara ákalli Kára
– aðrir með óbreytt ástand
Einungis tveir flokkar, Píratar og VG, stefna
á að kostnaður heilbrigðiskerfisins nemi
11% af landsframleiðslu líkt og tæplega 90
þúsund Íslendingar ákölluðu undir forystu
Kára Stefánssonar. Aðrir flokkar miða við
krónutölu sem mun ekki nægja til þess að
hækka hlutfallið sem þessu nemur. Framlög
Sjálfstæðisflokks til heilbrigðismála munu
lækka á tímabilinu sem hlutfall af
landsframleiðslu, í um 8,1%, þrátt fyrir
yfirlýsingar um að flokkurinn ætli sér að
endurreisa heilbrigðiskerfið.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn
Hér er greiðsluþátttaka almennings
18%. Svíþjóð ver jafnframt hæsta
hlutfalli landsframleiðslu til heil-
brigðismála, 11,1%.
Aðeins einn flokkur, Björt fram-
tíð, gaf ekki upplýsingar um hversu
hárri upphæð flokkurinn hyggðist
verja til heilbrigðismála á næsta
kjörtímabili þegar Fréttatíminn
leitaði svara við því. Tveir flokkar,
VG og Píratar, eru beinlínis með 11%
markið á stefnuskrá sinni og ætla að
ná því í skrefum á næstu 4-5 árum.
Hinir flokkarnir, Sjálfstæðisflokk-
ur, Framsóknarflokkur, Samfylk-
ing og Viðreisn, stefna allir á að
KORTER Í
KOSNINGAR
Framlög:
Stefnt á 11% af landsfram-
leiðslu eftir 5 ár - í skrefum.
Hvaðan:
Gjald fyrir aðgang að auð-
lindum, bæta skattafram-
kvæmd og setja á auð-
legðarskatt.
Vinstri græn
Framlög:
11% af landsframleiðslu
Hvaðan:
Markaðsleiga fyrir afnot
af auðlindum og stöðvun
skattaundanskota.
Píratar