Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 22. október 2016 Hrafnhildi fannst ekki erfitt að velja föt á mömmu sína þar sem þær eru með mjög líkan fatasmekk. Að mati Hrafnhild- ar klæðir Lilja sig mjög litríkt og kvenlega og hún myndi ekki vilja breyta neinu í klæðavali mömmu sinnar: „Ég valdi kjól því hann er svo litríkur því mamma er lista- kona og vinnur oft með liti. Sein- ast þegar hún var að vinna með svona liti þá var hún að vinna með svona litapallettu í náttúrunni og þess vegna valdi ég þennan kjól því hann minnti mig pínu á það. Síðan valdi ég blóm í hárið því hún minnir mig svo mikið á blóm því hún er svo mikið yndi. Ég hafði hana á tásunum því hún er algert náttúrubarn.“ „Ég var mjög ánægð með fötin sem hún valdi, hún þekkir mig náttúrulega manna best. Mér fannst þetta bara mjög fallega valið hjá henni. Þetta var semsagt kjóll sem ég keypti í Finnlandi eftir finnskan hönnuð. Hún vill ekki að ég gangi í fötum sem hafa verið gerð með barnaþrælkun þar sem hún er voða upptekin af því líka, rosalega upplýstur einstak- lingur. Þetta er algerlega föt sem ég hafði valið sjálf,“ segir Lilja um fötin sem Hrafnhildur valdi. | hdó Hrafnhildur valdi fötin á Lilju, mömmu sína. Mynd | Hari Börnin velja fötin Hvernig myndu mamma og pabbi fara út úr húsi ef börnin fengju að ráða? Fréttatíminn lagði verkefnið fyrir mæðgurnar Lilju Birgisdóttur og Hrafnhildi Steindórsdóttur en sú síðarnefnda valdi föt á mömmu sína og útskýrði valið. Ég var mjög ánægð með fötin sem hún valdi, hún þekkir mig náttúrulega manna best Heita samlokan: Herramanns­ matur eftir skólann Heit samloka getur verið herra- mannsmatur ef rétt er farið að og býður hún upp á endalausa möguleika. Vinsælt er að skella einni í grillið þegar komið er heim úr skólanum og náði Fréttatíminn tali af samloku- gerðarmeistara sem vill deila leyniuppskrift sinni. Þorvaldur Hörður Villysson, 8 ára, fær sér oft heita samloku þegar hann kemur heim úr skólanum. Lykilinn að mati Þorvalds er að hafa samlokuna einfalda: „Besta samlokan er bara með osti og kok- teilssósu. Einni sneið af osti, sós- una inn í samlokuna og ekkert að drekka og helst að nota venjulegt heimilisbrauð.“ Ef þú mættir velja hvað sem er í heiminum sem álegg og hvaða brauð sem er, hvað myndir þú setja á samlokuna? „Ost og kannski kokteilsósu, það er besta samlokan.“ | hdó Samloka með ost og kokteilsósu er best. Mynd | Rut Sólveig (fyrir miðju) ásamt sigurvegurum keppninnar í fyrra. Ætlar að verja Waacking-titilinn Stærsta street danseinvígi ársins í kvöld. „Ég er að fara að keppa í Waack- ing-stílnum,“ segir Sólveig Ólafs- dóttir, sitjandi meistari hins árlega street dans-einvígis sem fram fer í kvöld. Um er að ræða stærstu street dansviku ársins sem endar með ein- víginu í kvöld. Dans Brynju Péturs heldur hátíðina. „Waacking er stíll sem kemur upprunlega frá New York þegar samkynhneigðir karlmenn hittust á klúbbunum og voru í kvenlegum hlutverkum,“ segir Sólveig. „Það er dansað við funky diskótónlist þar sem mikið er í gangi. Tónlist, spenna, drama. Wa- acking skiptist í þrjá hluta: Hraðar handahreyfingar, kvenlegar og sterkar pósur og síðan hvernig maður ber sig, svipbrigðin.“ „Einvígið er svaka spennandi en keppendur í hverjum flokki koma saman og síðan er diskótónlistin spiluð. Nafn hvers keppanda er síðan kallað og þeir dansa í 30 til 40 sekúndur. Þá eru valdir fjórir sem komast áfram, þeir keppa tveir sín á milli í undanúrslitum og í úrslitum keppa tveir bestu. Tvisvar sinnum í 30 eða 40 sek- úndur.“ Hún segir danssamfélagið fara stækkandi. „Þetta er stækkandi en lítið samfélag. Maður er oftast að keppa á móti hálfgerðum systrum sínum.“ Sólveig ætlar að keppa í kvöld, bæði í Waacking dansi og Dancehall. „Það verður mikil gleði en líka spennufall í kvöld.“ Áhugasamir eru hvattir til að mæta og horfa. | bg Spoex, samtök psoriasis- og exemsjúklinga boða til fyrirlestrarraðar og vörukynninga á Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 38, 105 Reykjavík, næstkomandi þriðjudag 25. október kl. 17:00 -19:30 Aðgangur er ókeypis Dagskrá Dr. Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir kynnir niðurstöður doktorsrannsóknar sinnar þar sem hún bar saman áhrif meðferðar í Bláa lóninu við hefðbundna UVB ljósameðferð. Aníta Sif Elídóttir næringarfræðingur allar um umbúðalæsi, hollustu- merkingar og skyldu fyrirtækja til að tilgreina næringarlýsingu á estum forpökkuðum matvælum. Dr. Evgenía Mikaelsdóttir verkefnisstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu heldur erindi um rannsókn á erfðafræði psoriasis. Fræðslumyndbönd UngSpoex sem gerð voru fyrir sjúkdómana psoriasis í húð og liðum og exem verða frumsýnd á milli fyrirlestra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.