Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 20164 MATARTÍMINN
Amerískt jólahlaðborð –
„Big buffet“
Reynsla og fagmennska einkennir Haust.
Unnið í samstarfi við Haust
Þrátt fyrir að vera rétt skriðinn yfir þrítugt hefur Jónas Oddur Björnsson öðlast afar yfirgrips-
mikla reynslu síðastliðin 10 árin í
kokkabransanum; jafnvel meiri en
margir kokkar sem fylla tvöfald-
an hans aldur. Síðan um síðustu
áramót hefur Jónas verið að þróa
veitingastaðinn Haust Restaur-
ant sem er staðsettur í hringiðu
eins líflegasta hverfis Reykjavík-
ur um þessar mundir á Fosshótel
Reykjavík við Höfðatorg, stærsta
hóteli landsins.
Yfirkokkur í Ölpunum 21 árs
Jónas bjó erlendis í tæp átta ár
og kom víða við. Reynsluna notar
Jónas í að þróa Haust Restaur-
ant í þær áttir sem hugurinn togar
hann hverju sinni og fagmennsk-
an sem hann öðlaðist á ferðum
sínum kemur sér afar vel í núver-
andi starfi. „Ég starfaði á Michelin
stöðum í Frakklandi og lengst af
í Danmörku. Ég prófaði að vinna
á ýmsum stöðum, var orðinn yfir-
kokkur í frönsku Ölpunum þegar
ég var 21 árs, vann fyrir Walt Dis-
ney og fór sem kokkur hringinn
í kringum jörðina á einkaflug-
vél. Þetta hefur verið ótrúlega
skemmtilegt og krefjandi ferli
með frábæru fólki.“
Ákváðu að fara alla leið
En að máli málanna. Jólahlaðborð
Haust Restaurant hefur verið
í þróun undanfarna mánuði og
hefur nú tekið á sig heildstæða
mynd; þemað verður amerískt
– alla leið. „Við vildum vera með
sérstöðu og ákváðum að fara
þessa leið. Það verður fylltur risa-
kalkúnn, gljáð jólaskinka, kanil/
epla sósa, grasker í karamellu,
sætar kartöflur með púðursykri
og sykurpúðum og eftirrétta-
hlaðborðið verður alger bomba,“
segir Jónas. Þau sem vilja fara
hefðbundnari leið þurfa þó ekk-
ert að óttast, flaggskip íslensks
jólamatar verða að sjálfsögðu líka
á staðnum. „Enda er ekki hlað-
borð nema það sé hangikjöt og
uppstúf.“
Gaman fyrir alla
Börnin fá vitanlega mikið fyrir
sinn snúð; fyrir þá verður að-
gengilegt sérhlaðborð með barn-
vænni mat, pítsu með jólaívafi,
kalkúnabollur, grænmetispinn-
ar og kleinuhringjabar þar sem
börnin geta skreytt sína eigin
kleinuhringi. Einnig verður sett
upp jólahús fyrir yngri kynslóðina
svo það er engin fyrirstaða að
koma með börnin, gaman fyr-
ir alla. Það er frítt fyrir 0-5 ára
og 50% afsláttur fyrir 6-12 ára.
Jólahlaðborðið er því tilvalið fyrir
fjölskylduna, hópa og alla aldurs-
hópa. Jólaskreytingar munu
minna á amerísk jól eins og þau
verða best, amerískir jólaslagarar
og frábær stemming.
Ameríska konseptið
að slá í gegn
Haust Restaurant hefur vakið
eftirtekt fyrir fallega hönnun og
góða hljóðvist. „Veitingastað-
urinn er mikið hólfaður svo þau
sem vilja vera í næði geta það án
vandkvæða og einnig er staður-
inn tilvalinn fyrir fyrirtækjahópa
eða aðra hópa sem vilja skemmti-
lega og öðruvísi upplifun þetta
árið.“ Nú þegar er farið að taka
við pöntunum á jólahlaðborðið og
virðist ameríska konseptið vera
að slá í gegn.
Borðapantanir í síma 5319020
milli 11 og 16. Einnig má senda
fyrirspurnir á netfangið
haust@haustrestaurant.is.
Haust býður upp á frábært há-
degisverðarhlaðborð sem er til-
valið fyrir hádegisfundi. Hægt er
að velja um fjölda girnilegra rétta
auk eftirrétta og kaffi fylgir með.
Verðið er aðeins 2950 krónur*.
Haust Restaurant er stolt Foss-
hótels Reykjavíkur en ekki má
gleyma Bjórgarðinum sem hefur
einnig verið afar vinsæll, ekki
síst meðal bjóráhugamanna og
þeirra sem vilja njóta gómsætra
smárétta og drykkja sem eru fram
bornir af fagmönnum.
Frá og með 21. nóvember mun
hádegisverðarhlaðborðið verða
með jólaívafi og kosta 3.950 á
mann.
Haust hádegisverðar
hlaðborð
Big buffet Jólahlaðborð að amerískum sið virðist vera að slá í gegn ef marka má ásókn í borð. Mynd | RutEftirréttahlaðborð Börnin slá ekki hendinni á móti slíkum kræsingum.Mynd | Rut
Kokkarnir Mikil reynsla og fagmennska
einkennir kokkalið Hausts . Mynd | Rut
Jónas Oddur Björnsson Þrátt fyrir ungan aldur hefur Jónas öðlast
yfirgripsmikla reynslu í kokkabransanum . Mynd | Rut