Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 22.10.2016, Qupperneq 7

Fréttatíminn - 22.10.2016, Qupperneq 7
Sif er flugumferðarstjóri í flugturninum á Keflavíkurflugvelli. Í daglegu starfi veitir hún tugum flugvéla heimildir til flugtaks- og lendingar og starf hennar tryggir að flugumferð gangi hratt og örugglega fyrir sig á flugvellinum. Þannig er Sif hluti af góðu ferðalagi fjölda farþega á hverjum degi. Einar er arkitekt sem er á leið til Frakklands í vinnuferð. Hann er vanur því að fá sér morgunverð á Keflavíkurflugvelli og treystir á að allt gangi hratt og örugglega fyrir sig á flugvellinum. 16 -1 62 0 — H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA V I Ð E R U M H L U T I A F G Ó Ð U F E R ÐA L AG I Hjá Isavia starfar samhentur hópur starfsmanna. Markmið okkar er að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra 30 milljóna farþega sem fara um flugvelli og flugstjórnarsvæði okkar árlega. Okkar hlutverk er að tryggja öryggi þeirra allra og gera för þeirra sem ánægjulegasta. Við erum að vaxa og þurfum að fjölga í liðinu okkar til að bregðast við sífelldri fjölgun farþega. Stefna okkar er að bjóða upp á gott og fjöl- skylduvænt starfsumhverfi, öfluga fræðslu og þjálfun og við leggjum áherslu á jákvæðan starfsanda innan fyrirtækisins. Kynntu þér störfin sem standa til boða hjá Isavia og vertu með okkur í því að vera hluti af góðu ferðalagi. isavia.is/atvinna facebook.com/isaviastorf | 7FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 22. október 2016 eftir 5 ár verði útgjöld til heilbrigð- ismála í kringum 240-260 milljarða – sem er í kringum 11% markið mið- að við árið 2016 en talsvert frá því árið 2020. Misjafnt er þó hve stórt hlutfall þeirrar upphæðar kemur úr vasa sjúklinga. Ríkisstjórnarf lokkarnir, Sjálf- stæðisf lokkur og Framsóknar- flokkur, hafa sent frá sér fimm ára áætlun í ríkisfjármálum. Þar kem- ur fram að útgjöld ríkisins til heil- brigðismála aukist úr 160 milljörð- um á tímabilinu í 200 milljarða í lok kjörtímabilsins árið 2020. Sjálfstæðisflokkurinn stefnir ekki að því að draga frekar úr greiðslu- þátttöku sjúklinga, að því er fram kemur í svörum þeirra, enda hefur flokkurinn nýverið beitt sér fyrir, og Alþingi samþykkt, nýjum lögum um sjúkratryggingar þar sem fjár- munir eru einfaldlega færðir til en heildargreiðsluþátttaka sjúklinga er sú sama og áður. Hins vegar segir í stefnuskrá flokksins að draga eigi úr kostnaði á einstaklinga. Engin innspýting Sjálfstæðismanna Ef hlutfall greiðsluþátttöku helst svipuð og nú má gera ráð fyrir að heildarkostnaður heilbrigðiskerf- isins undir stjórn Sjálfstæðisflokks fari í um 243 milljarða árið 2020 sem er nánast sama upphæð og 11% af landsframleiðslu 2016. Ef horft er til vaxtar landsframleiðslu á kjör- tímabilinu er samanburðurinn ekki jafn hagkvæmur. Samkvæmt þjóð- hagsspá Hagstofunnar um þróun landsframleiðslu munu 11% nema tæpum 260 milljörðum árið 2016 og hækka í um 290 milljarða í lok kjör- tímabilsins, árið 2020. Ef við gerum ráð fyrir því að hlutfall greiðsluþátt- töku sjúklinga verði áfram hið sama hjá Sjálfstæðisflokknum munu út- gjöld til heilbrigðismála nema 237 milljörðum árið 2020, sem er 53 milljörðum undir 11% markinu. Það er í raun sama prósentutala og nú, 8,9% af landsframleiðslu og því engin innspýting eins og flokkurinn hefur talað um. Samfylking og Viðreisn segjast ætla að bæta um betur og auka ár- leg útgjöld ríkissjóðs um 13-20 millj- arða á ári umfram 5 ára áætlun rík- isstjórnarinnar, útgjöld ríkissjóðs verði 220-260 milljarðar árið Framlög: Fjárframlög til heilbrigð- ismála samkvæmt 5 ára áætlun ríkisstjórnarinnar (úr 160 milljörðum 2016 í 200 milljarða árið 2020) Hvaðan: Með því að viðhalda stöð- ugleika verður útgjaldasvig- rúm m.a. vegna skuldaniður- greiðslu ríkissjóðs. Sjálfstæðisflokkur Kára Stefánssyni tókst að fylkja þjóðinni á bak við ákall sitt um endurreisn heilbrigðiskerfisins og safnaði tæplega 90 þús- und undirskriftum sem er fordæmalaust. Hann hefur verið mjög harðorður í gagnrýni sinni á stjórnvöld undanfarinna ára, hvort sem um ræðir hægri eða vinstri stjórn, og segir ríkisstjórnir síðasta aldarfjórðungs hafa brugðist þjóðinni. Hann bend- ir á að heilbrigðiskerfið hafi ekki fylgt framþróun í læknisfræði, hvort sem er með endurnýjun tækjabúnaðar, uppbyggingu húsnæðis eða með því að hlúa að heilbrigðisstarfsfólki.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.