Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 22.10.2016, Page 20

Fréttatíminn - 22.10.2016, Page 20
„Fyrir utan þetta var hægt að nálgast brauð hjá Náttúrulækn- ingarfélaginu sem var tilbreyting frá þriggja tegunda úrvalinu, normal, frans og rúg. Og meir að segja jógúrt var nýkomið á markað og selt í Alýðubrauðgerðinni. Þetta var frekar einfalt líf. En alveg nóg til þess að ég gæti verið hamingju- söm.“ Bjórlíki á Gauknum Það má segja að það hafi rofað til lítillega á árunum milli 70 og 80 og austantjaldsgrámanum, sem lá yfir Reykjavík, létti. Fram að því hafði veitingahúsamenning borgarinn- ar aðallega verið í kringum hótelin þar sem hægt var að snæða nauta- lund með bernaisesósu. Brauðbær og Askur voru fjölskylduvænni stað- ir með fisk í raspi og franskar. En annars var ekki mikið úrval sem hélst í hendur við fjárhagsstöðu fjölskyldna á þeim tíma. Það var þess vegna boð um nýja tíma þegar Hornið opnaði 1979 og bauð uppá pasta og pítsur, hérna voru evrópsk áhrif og áströlsk hvítvín. Þetta þótti kúvending frá hamborgaranum og sjeiknum „drive in“ fæðu frá Banda- ríkjunum. Bjórinn var að vísu ekki kominn og ennþá tíu ár í það en í staðin drakk fólk vodka í pilsner, „bjórlíki“ á Gauknum. Þetta var allt að koma. Næstu grös „Það vantaði grænmetis veitinga- stað í Reykjavík. Matstofa NFL var vissulega á Laugaveginum, en þar voru meira svona grautar og þetta „krúska“ sem ég hef aldrei getað borðað,“ segir Tóta en þær Helga Mogensen, Heiðrún Kristjánsdótt- ir og Gunnhildur Emilsdóttir höfðu frétt af konu sem hafði rekið bakarí í New York. „Konan var Pat, nýkom- in til Íslands, og við báðum hana að opna matstofu með okkur. Þetta var árið 1979. Pat kom í hópinn og mat- stofan Á næstu grösum var stofnuð á þriðju hæð á Laugavegi 42, í fallega húsinu með Evu Gallerí á jarðhæð. Í risinu bjuggu Birna Þórðardóttir og Guðmundur Ingólfsson, sem varð til þess að við vorum með lifandi djass á staðnum. Og svo kom fólk með myndlistina sína og hengdi upp á vegginn. Þetta var mikil vinna og stundum vorum við svo þreytt eftir vaktirnar að við fórum á Brauðbæ Tóta, 23 ára, tveggja barna móðir í Leicester Englandi. Opnunardagur Matstofunnar Á næstu grösum árið 1978. Frá vinstri: Tómas Jónsson, Jón Tómasson, Heiðrún Kristjánsdóttir, Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, Gunnhildur Emilsdóttir og Helga Mogensen. Myndir | Einkaeign Tóta á leið í Kolaportið. Það var annar maður sem var með bás og seldi varning, sá var dálítið blautur en vildi meina að Kolaportið hafi bjargað lífi sínu af því að hann neyddist til þess að vera edrú um helgar og í Kola- portinu eignaðist hann í fyrsta sinn aura á ævinni. að fá okkur í svanginn, segir Tóta og hlær. Solla vann á Næstu grösum „Þetta var skemmtilegur hópur en það var ekki neitt bissnisvit í þessu hjá okkur, við gleymdum að reikna með launum fyrir okkur sjálf, og byrjuðum alltaf á því að leggja út fyr- ir grænmetinu.“ Tóta fór í Myndlista- og handíðaskólann upp úr þessu að stunda nám við Nýlistadeildina. En Á næstu grösum áttu eftir að lifa eitt- hvað áfram. Matstofan flutti sig um set og endaði þar sem Gló er núna til húsa á Klapparstíg. En Solla á Gló byrjaði einmitt sem starfsmaður á Næstu grösum og hefur haldið nafni grænmetiseldhússins hátt á lofti síð- an af miklum dugnaði. Kalt undir Útvegsbankaveggnum „Ef ég man rétt þá var það Gestur Ólafssonar arkitekt sem stofnaði vísinn að útmarkaði,“ segir Tóta. „Hann setti upp borð og tjöld niðri á Lækjartorgi, ég held að það hafi verið upp úr 70. En það var bara of kalt þarna undir Útvegsbankaveggn- um, það voru bara þeir allra hörð- ustu sem gátu staðið kuldann af sér, sérstaklega á veturna.“ Gerður í Flónni og fleiri fóru að funda og leita lausnar á þessu máli og vildu finna stað fyrir markað. Reykjavík var að breytast. Kringlan var komin og við hugsuðum með okkur að það vantaði vettvang þar sem fólk kæmi og hittist. Annað sem fer fyrir brjóstið á Tótu er það að Ís- lendingar henda svo miklu og þarna væri þá staður þar sem hægt væri að selja dót í staðin fyrir að lóga því. „Umferð, ekki bara á fólki heldur hlutum og mér fannst það auðvitað spennandi af því að ég er „ruslari“ í eðli mínu,“ segir Tóta sem er yfir- leitt með fulla vasa af tölum og nögl- um eða einhverju dóti sem á síðan eftir að skjóta upp kollinum í lista- verki eða leikmynd þegar tími þess kemur. Bílageymsla Seðlabankans Þau Helga Mogensen, Jens Ingólfs- son og Tommi minn voru „prím- us motor“ í Kolaportinu. Þau fóru í gegnum heilbrigðiskerfið með þetta, hvað má og hvað ekki, sem var mjög athyglisvert fyrir okkur. En mér hef- ur alltaf fundist krafturinn í Kola- portinu hafa átt upptök sín í orkunni hennar Gerðar í Flónni segir Tóta og hlær sínum dillandi hlátri, allavega var það af hennar hvötum að hug- myndin fór af stað. En Tommi vann þarna allar helgar, vaknaði fyrir all- ar aldir að búa til skilti og merkja básana. Krakkarnir mínir unnu líka í Kolaportinu þau tóku próf á lyftara og eru öll með próf á minniháttar jarðvinnuvélar. Annar starfsmaður var Skúli Mog- ensen, núverandi forstjóri WOW air, sem var líka á lyftara í Kolaportinu á sínum tíma. Og þetta stóð und- ir sér, leigan af básunum borgaði starfsmönnum laun. En ég fylgdist meira með, labbaði niður í Kolaport með Önnu Maríu, dóttur mína, í kerrunni.“ Samfélagið í Kolaportinu Kolaportið var svona lítið samfélag af góðu fólki sem þekktist vel. Það er svo fallegt hvernig væntumþykj- an breiðir úr sér. Ég man sérstaklega vel eftir manni einum sem átti ekki spariföt og hann komst þess vegna ekki í kirkju. En hann kom alltaf á kaffihúsið í Kolaportið þar sem Jóna Bolladóttir prestur hélt guðs- þjónustu um helgar, glaður í sínum hversdagsfötum. Kolaportið hent- aði kannski sumum sem áttu erf- iðara með að fóta sig í samfélaginu. Það var annar maður sem var með bás og seldi varning, sá var dálítið blautur en vildi meina að Kolaportið hafi bjargað lífi sínu af því að hann neyddist til þess að vera edrú um helgar og í Kolaportinu eignaðist hann í fyrsta sinn aura á ævinni. Erla og vikubaksturinn „Við kynntumst svo góðu fólki í Kolaportinu. Bændur komu með matinn sinn úr sveitinni. Erla úr Þykkva- bæ bakaði alla vikuna, flatkökur og kleinur, og kom í bæ- inn um helg- ar og seldi baksturinn í Kola- portinu. En hún fékk síðan hjartaáfall blessunin og okkur var boðið í sveitina að vera viðstödd útförina hennar. Það var sérstaklega falleg athöfn í litlu kirkjunni í Þykkvabæ en það komust ekki allir fyrir og við Tommi sátum úti í bíl og hlustuðum á útförina og í erfidrykkjunni var síðasti viku- baksturinn hennar lagður á borð fyrir gestina og harmoníkkuleikar- inn söng og spilaði Erla góða Erla! Það var svo fallegt.“ Rocky Horror í Nýja bíói „Reykjavík er æðisleg. Ég hef allt til alls, get hjólað og gengið. Sef við op- inn glugga og með þetta góða vatn í krönunum. Ég segi það ekki, ef það er eitthvað þá sakna ég Nýja bíós af því að þangað var hægt að fara einu sinni á ári með krakkana og horfa á Rocky Horror Show. Ég held að Nýja bíó hafi átt eintak sem þeir drógu fram einu sinni ári og við fjölskyldan mættum alltaf með dagblað og hrís- grjón og sungum með. Börnin mín eru öll alin upp við Rocky Horror show,“ segir Tóta hlæjandi og stend- ur upp og gengur út í Þingholtin á næsta fund þar sem hún þarf að vera með í ráðum. 20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 22. október 2016 þriðjudaginn 25. október, kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is laugardag kl. 11–16, sunnudag kl. 12–16, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17 Si gu rð ur G uð m un ds so n Sara Riel Uppboð í 20 ár Forsýning á verkunum fimmtudag til þriðjudags

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.