Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 34
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Ég er mjög mikið jóla-barn og hef alltaf haldið mikið upp á jólin,“ segir Árný Margrét Agnars-dóttir sem er löngu farin að huga að jólunum þó enn séu tveir mánuðir til stefnu. Í vikunni birti hún færslu í hópnum Skreyt- um hús á facebook, þar sem fólk skiptist á hugmyndum um allt sem tengist heimilinu, og spurði hvor fleiri en hún væru búnir að ákveða þema fyrir jólin. Sjálf sagðist hún loksins vera búin að ákveða sig. Færslan fékk góðar undirtektir og margir deildu hugmyndum að jólaþema, þannig Árný er greini- lega ekki sú eina sem byrjuð er að spá í jólin. En það verður ekki af henni tekið að hún er tímanlega í þessu. Róandi að hafa stílhreint „Ég byrja yfirleitt að spá í þetta í september, jafnvel fyrr. Ég valdi jarðtónaliti núna. Mér finnst vanta meira af þeim inn á heimilið, því það er svo mikið svart og hvítt hjá okkur. Mér finnst passa svo vel að hafa jarðliti við svarta og hvíta hönnun.“ Árný kýs frekar að hafa skreytingarnar stílhreinar og ekki of marga liti. „Ég verð alveg ómöguleg í rýmum þar sem eru of margir litir og of margir stílar saman, mér finnst svo róandi að hafa allt stílhreint.“ Litríkt minnir á æskuna Hún byrjaði að hafa ákveðið þema í jólaskreytingum hjá sér fyrir þremur árum. Árið 2014 var hún með hvítt og rautt þema en í fyrra var það litríkt. „Mér finnst það al- veg fallegt. Það minnir mig á æsk- una, en mér finnst það samt ekki passa við mig. Ég er mjög hrifin af þessum Ikea stíl og finnst alveg æðislegt að fara í Ikea fyrir jólin. Þau eru með mikið af jarðlitum, hvítu og rauðu. Það hefð hjá mér að fara fyrir hver jól og kaupa eitt- hvað smá skraut.“ Kærastinn heldur aftur af henni Árný er í raun það mikið jólabarn að helst vildi hún vera búin að skreyta. „Mig langar að skreyta í október en kærastinn segir að eigi að byrja í nóvember. Hann vill reyndar að ég geri þetta í desem- ber, en við komumst að samkomu- lagi um að ég skreyti um miðjan nóvember,“ segir hún og hlær. „Ef það væri ekki fyrir hann þá væri Stílhreint Árný verður alveg ómöguleg í rýmum þar sem of mörgum litum og stílum er blandað saman. Kim fer í hart vegna skrifa um Parísarránið Kim Kardashian hefur hótað skríbent á Huffington Post lögsókn eftir að hún lét að því liggja að ránið sem Kim varð fyrir í París á dögunum væri uppspuni. Skrif Shariku Soal voru fjarlægð af Huffington Post þegar yfirmenn þar á bæ komust að því að þau brytu í bága við skilmála síð- unnar. TMZ greinir frá því að Sharika Soal telji sig ekki geta birt afsökun á skrifum sínum þar sem aðgangi henn- ar að síðunni hafi verið lokað. Hilary eyðir og eyðir Hilary Duff flutti nýlega frá Los Angeles til New York og segir hún að neysluvenjur sínar hafi breyst mikið við það. „Ég verslaði bara á netinu því ég nennti ekki versla í búðum. Mér fannst betra að fá vörurnar sendar heim eins og það væru komin jól. En eftir að ég varð New York-búi fór ég að eyða miklu meiri peningum,“ segir hún. Jólin eiga að vera allan veturinn Árný er mikið jólabarn og hana klæjar í fingurna að byrja að skreyta. Hún er búin að velja sér þema fyrir þessi jól. ég búin að skreyta, honum finnst það skemma fyrir að skreyta of snemma, en ég er auðvitað ekki sammála því,“ segir hún kímin. „Mér finnst jólin eiginlega bara eiga að vera allur veturinn, ekki bara ein helgi eða vika í desember. Þetta er bara vetrarhátíð.“ Skoðar skreytingar hjá öðrum Sem mikið jólabarn þá held- ur Árný í nokkrar fastar hefðir í kringum jólin. Ein þeirra er að keyra um með móður sinni og skoða jólaskreytingar hjá öðrum. Það hafa þær gert saman síðan hún var barn. „Svo í fyrra þá gaf mamma mér stjörnuna sem ég ólst upp við að hafa á jólatrénu hjá okkur. Hún er reyndar mjög litrík og „eighties-leg“ en ég er að spá í að taka ljósin úr henni og setja glæra seríu í staðinn.“ Hluti af haustinu www.n1.is facebook.com/enneinn Haustið er tíminn til að hoppa í polla Dunlop Blizzard barnastígvél Þessi vinsælu stígvél fást nú á N1 í bleiku og bláu. Endingargóð, sterk og loðfóðruð fyrir íslenska veðráttu. Stærðir: 24-35 Verð: 6.700 kr. Fást í eftirtöldum N1 verslunum Reykjavík • Blönduós • Akureyri • Húsavík • Reyðarfirði Höfn • Grindavík • Ólafsvík • Patreksfjörður • Vestmannaeyjar Ekki hress Það er ekki hressleikanum fyrir að fara hjá Bieber þessa dagana. Það virðist vera eitthvað stuttur þráðurinn í tónlistarmanninum og Íslandsvininum Justin Bieber þessa dagana, en hann hefur tvisvar á skömmum tíma látið áhorfendur á tónleikum sínum heyra það vegna hávaða. Fyrra atvikið átti sér stað á tónleikum í Birmingham í byrjun vikunnar þegar Bieber reyndi að segja frá því að honum þætti erfitt að vera fjarri vinum og ættingjum þegar hann væri á tónleikaferðalagi, en það heyrðist ekkert í honum fyrir æstum tónleikagestum. Sagðist hann þá vissulega kunna að meta áhugann sem gestirnir sýndu sér en hann vildi frekar að þeir sýndu það að annan hátt, honum þættu þessi öskur ógeðsleg. Það er greinilega eitthvað að plaga stjörnuna sem veldur því að hann er geðstirður með eindæm- um, því tónleikagestum í Manche- ster var líka lesinn reiðipistill síðar í vikunni. Hann ætlaði að segja frá merkingunni á bak við nafnið á tónleikaferðalaginu – Purpose – en það var sama sagan, ekki heyrðist stakt orð frá honum vegna hávaða í salnum. „Ég hélt ég gæti fengið smá tíma til að tala við ykkur og myndi vilja að þið hættuð þessu kjaftæði. Ég er að reyna að eiga innilega stund með ykkur en ef við viljið það ekki, þá spila ég bara tónlist,“ sagði hann frekar reiði- lega við fullan salinn, og snéri sér í kjölfarið að tónlistinni. Geðstirður Bieber skammar áhorfendur aftur Eitthvað virðist vera að plaga Íslandsvininn þessa dagana. …fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2016 Ég byrja yfir- leitt að spá í þetta í september, jafnvel fyrr. Ég valdi jarðtónaliti núna. Mér finnst vanta meira af þeim inn á heimilið, því það er svo mikið svart og hvítt hjá okkur. Mér finnst passa svo vel að hafa jarðliti við svarta og hvíta hönnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.