Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 22.10.2016, Síða 37

Fréttatíminn - 22.10.2016, Síða 37
…xxx5 | amk… FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2016 Aðspurð hvers vegna konur komi í svona myndatöku segir hún þær oft vilja efla sjálfstraustið eða vilji fara út fyrir þægindara- mmann. Vilja ögra sjálfri sér á nýj- an og spennandi hátt. „Þær vita oft að þær eiga ekki að hugsa neikvætt um sig, en gera það samt. Margar hefur dreymt um þetta lengi en ekki þorað, en þær sjá aldrei eftir þessu. Þær eru oft stressaðar í upp- hafi, og það er mjög eðlilegt, en í lokin þá eru þær farnar að hafa skoðanir á tökunni, sem er alveg frábært. Ég horfi á þær styrkjast og fyllast sjálfstrausti á meðan ég er að mynda þær.“ Að sögn Hildar er mjög mismun- andi hverju konur sækjast eftir varðandi myndirnar. Á meðan sumar vilja mjög djarfar myndir þá vilja aðrar meiri rómantík og blúndur. Hún bendir á að orðið boudoir sé í raun franskt heiti yfir búningsherbergi eða afdrep kvenna í viktoríustíl. „Ég vil því ekki segja að þetta séu erótískar myndir, þó sumar geti vissulega verið það. Stundum vefst fyrir mér hvaða orð er best að nota yfir þetta á íslensku en úti notaði ég alltaf boudoir.“ Breytingar eftir hryðjuverkin Hildur er sannfærð um að markað- ur sé fyrir slíkar myndatökur hér á landi og er hún búin að setja upp heimasíðuna bombshellbyhild- ur.com þar sem fólk getur kynnt sér hvað er í boði. „Það er sama við hvern ég tala það virðast allir spenntir fyrir þessu. Ég sé mark- aðinn hérna heima þannig ég efast ekki um að hann sé til staðar. Ég er allavega að fara með þetta af stað á Íslandi og það er ekkert sem stopp- ar mig,“ segir hún og hlær. Henni finnst líka ágætt að vera komin aftur heim til Íslands, þó vissulega séu það viðbrigði. Sérstaklega hvað varðar frelsi barnanna og fleira í þeim dúr, en það var til dæmis ekki í boði fyrir þau að fara út að leika eftir skóla í París. Og það að hitta vini þurfti oft að skipuleggja með margra vikna fyrirvara. Fjölskyldan upplifði miklar breytingar á landslaginu í París á meðan þau bjuggu úti. Það má eiginlega að tala um tímann fyrir og eftir hryðjuverk. Fyrsta eina og hálfa árið var allt öðruvísi en síðari hluti tímans. „Lífið okkar breytt- ist svolítið eftir þessar árásir, sér- staklega eftir árásirnar í nóvember síðastliðnum. Maður fór að óttast að gera ýmsa hversdagslega hluti, eins og bara að fara í bíó. Ég átti erfitt með að vera á stöðum þar sem margir voru saman inni í lok- uðu rými því mér fannst allt geta gerst. Mér fannst reyndar náunga- kærleikurinn í samfélaginu aukast þó vissulega fyndi maður líka fyrir reiði og ótta. En að öllu öðru leyti þá var Frakkland alveg yndislegt.“ SMÁRALIND VETRARVÖRUR Á SOKKAR.IS ER MIKIÐ ÚRVAL GÆÐASOKKA FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Á FRÁBÆRU VERÐI. SENDUM FRÍTT HEIM

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.