Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 41

Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 41
Fjórir veitingastaðir Lemon rekur fjóra veitingastaði hér á landi; við Laugaveg, Suðurlands- braut, Hjallahraun í Hafnarfirði og Hafnargötu í Reykjanesbæ. Mynd | Rut Girnilegt Ferskir djúsar og samlokur eru aðalsmerki Lemon . Mynd | Rut Miklar vinsældir Jón Arnar Guðbrandsso, einn eiganda Lemon, segir að mikill vöxtur sé í veisluþjónustu fyrirtækisins. Mynd | Rut Vinsæl veisluþjónusta Veisluþjónusta Lemon nýtur mikilla vinsælda en í henni geta fyrirtæki og hópar fengið til sín girnilegar samlokur á bakka og djúsa. Eins er hægt að fá Lemon Pop-Up, en þá djúsa starfsmenn Lemon á staðnum. Mynd | Rut Spennandi tímar og tækifæri framundan hjá Lemon Kynna tvær nýjar samlokur, djús og próteinbox til að njóta milli mála. Mikill vöxtur hjá veisluþjónustu Lemon og í skoðun að opna fleiri veitingastaði úti í heimi. Unnið í samstarfi við Lemon Það er ýmislegt í pípun-um hjá okkur. Bæði nýjar og spennandi vörur hér heima en einnig er verið að skoða að opna fleiri staði úti í heimi,“ segir Jón Arnar Guð- brandsson, einn eigenda veitinga- staðarins Lemon. Lemon hefur notið mikilla vin- sælda síðan fyrsti staðurinn var opnaður árið 2013. Staðirnir eru nú fjórir talsins hér á landi og sá fimmti var opnaður í París fyrr á árinu. Á Lemon eru í boði girni- legar samlokur, djúsar, Smoothies, kaffi og árbítur og er staðurinn annálaður fyrir ferskleika og hlý- lega stemningu. Jón Arnar segir að í næstu viku séu tvær nýjar samlokur væntan- legar á matseðil Lemon. Annars vegar Spicy Vegan og hins vegar Chicken Curry. „Vegan samfélagið er sístækk- andi hér á landi og við viljum koma til móts við þann hóp. Spicy Vegan er með falafel bollum og hummus, gúrku og spínati. Þetta er mjög skemmtileg loka og það er gaman að geta komið til móts við óskir okkar góðu kúnna með henni,“ segir Jón Arnar. „Chicken Curry er framreidd í Naan-brauði sem er nýjung hjá okkur. Við höfum fengið gríðar- lega góð viðbrögð hjá þeim sem hafa smakkað. Auk samlokanna setjum við í næstu viku á seðilinn nýja græna sprengju í djúsunum. Þetta er heilsudjús með mintu og mangó. Alveg frábær.“ Jón Arnar segir að Lemon sé líka að fara af stað með nýja „take-away“ línu. Um er að ræða svokallað próteinbox sem inni- heldur egg, spínat, rautt chili, pestó og strengjabaunir. „Þetta er hrikalega gott millimál. Svona próteinbox njóta mikilla vin- sælda úti í heimi og henta bæði milli morgunmatar og hádegis- matar eða milli hádegismatar og kvöldverðar. Það eru margir sem fá sér til dæmis prótein- stykki á milli mála en þeim fylgja ýmis sætuefni og aukaefni. En í próteinboxinu eru bara hreinar af- urðir. Þú færð ekkert sykursjokk á milli mála. Við byrjuðum með þetta á Lemon í Frakklandi fyrir mánuði og það hefur verið gríðar- lega vinsælt þar.“ Fleiri nýjungar eru væntanlegar í „take-away“ hjá Lemon. Þar á meðal tvö ný salöt og pakki með sex djúsflöskum. Veitingastaðir Lemon hafa not- ið mikilla vinsælda en veisluþjón- usta fyrirtækisins hefur sömuleið- is verið í stórsókn. „Þar er okkar mesti vöxtur í dag. Við höfum tekið að okkur veislur fyrir tíu manns og upp í 2.800 manns. Og allt þar á milli. Þetta er gríðarlega vinsælt, til að mynda hjá fyrirtækjum á höfuð- borgarsvæðinu enda sendum við frítt ef pantað er fyrir tíu manns eða fleiri,“ segir Jón Arnar. Hægt er að fá á staðinn sólskin- -í-glasi-djúsa og sælkerasamlokur á bökkum sem er fullkomið fyrir allar tegundir viðburða og funda. Annar kostur er Lemon Pop-Up þar sem fulltrúar Lemon mæta og djúsa á staðnum. Það brýtur upp skemmtilega viðburði og er bæði ferskt og litríkt. „Okkur finnst alltaf gaman að djúsa í hádeg- inu. Við erum þó ekki með alkóhól heldur bara ferska ávexti,“ segir Jón Arnar í léttum tóni. Það vakti mikla athygli þegar Lemon-staður var opnaður í París fyrr á árinu enda ekki algengt að íslenskir veitingastaðir séu opn- aðir erlendis. „Það hefur gengið vonum fram- ar í Frakklandi og það er skemmti- legt að hafa farið inn á þann markað,“ segir Jón Arnar. Eru fleiri staðir á teikniborðinu? „Það er mikill áhugi á Lemon úti, bæði í Evrópu, Asíu og Banda- ríkjunum. Það eru sannarlega spennandi tímar og tækifæri framundan. Við viljum taka skref- in rólega og erum að kanna þessa markaði en við munum að öllum líkindum opna fleiri staði úti.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.