Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 22.10.2016, Page 44

Fréttatíminn - 22.10.2016, Page 44
alla föstudaga og laugardaga Gakktu út Á mánudaginn er Kvennafrídagurinn og eru konur hvattar til að ganga úr vinnu klukkan 14.38 og sækja samstöðufund á Austurvelli. Fór í fitusog og segir það eins og að fara til augnlæknis Kerry Katona undirbýr sig fyrir tónleikaferð með Atomic Kitten. Poppsöngkonan Kerry Katona upplýsti nýlega að hún hafi verið að koma úr fitusogsaðgerð. Hún heldur því fram að þess konar aðgerð sé álíka hversdagsleg og að fara til augnlæknis nú til dags. Kerry, sem er 36 ára, fór jafn- framt í aðgerð á maga og bað fylgj- endur sína á Twitter að dæma sig ekki af þessum sökum. Hún væri enda fimm barna móðir. Kerry Katona, sem varð fræg sem söngkona í poppsveitinni At- omic Kitten á árum áður, er aftur gengin í sveitina og framundan er tónleikaferð. Hún kveðst ekki geta beðið eftir því að komast aftur í ræktina til að undirbúa sig fyrir tónleikaferðina. Undirbúningur Kerry fór í fitusog til að undirbúa sig fyrir tónleikaferð Atomic Kitten. Myndin er tekin fyrir aðgerðina. Mynd | Getty Ásdís losar sig við verslun Athafnakonan, fyrirsætan og þyrluflugmaðurinn Ásdís Rán Gunnarsdóttir, eða Ísdrottningin eins og hún kallar sig, hefur alltaf verið þekkt fyrir að vera með mörg járn í eldinum og er dugleg að skapa sér tækifæri. Stundum færist hún þó kannski of mik- ið í fang. Nú er hún til að mynda með netverslun til sölu, sem hún hannaði sjálf, en hefur aldrei haft tíma til að setja á laggirnar. Ás- dís segir verslunina geta hentað þeim sem eru í hönnunarbransan- um eða hverjum þeim sem langar að fara út í rekstur. Síðan er öll uppsett, tilbúin með pöntunar- og auglýsingakerfi, og þarf kaupandi lítið annað að gera en að setja inn vörur og vöruflokka og byrja fjör- ið, eins og Ásdís orðar það sjálf á facebook-síðu sinni. Ásdís, sem búsett hefur ver- ið í Búlgaríu síðastliðin ár, er nú á Íslandi og hefur verið síðustu mánuði, en hvort hún er alflutt heim er þó ekki víst. Keppa til úrslita í Osló Borg brugghús sigraði sænska brugghúsið Stigberget í undanúrslitaviðureign sinni í Bryggeribråk, keppni brugghúsa á Norðurlöndunum í pörun á mat og bjór. Sigurinn var öruggur, 3-0. Á mánudag keppa íslensku bruggararnir til úrslita en þar mæta þeir brugghúsinu Bådin frá Bodø í Norður-Noregi. Keppnin fer sem fyrr fram á veitingastaðn- um Håndverkerstuene í Osló og má búast við því að Íslendingar á svæðinu fjölmenni á staðinn enda kjósa gestir sigurvegarann. Sigurvegarinn í Bryggeribråk fær að launum bjór sem tapliðið í úrslitaviðureigninni bruggar. Fullkomin samsetning fyrir heilbrigði húðar, hárs og nagla RE-SILICA BEAUTY-GEL inniheldur kísilsýru í hreinu, vatnskenndu gel- formi sem og fegurðarvítamínið bíótín. RE-SILICA BEAUTY www.saguna.is Fæst í næsta apóteki. Framleiðandi meltingargelsins vinsæla! Hluta af söluandvirði RE-SILICA varanna hér á landi lætur Saguna renna til Ljóssins. www.ljosid.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.