Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 22.10.2016, Síða 46

Fréttatíminn - 22.10.2016, Síða 46
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 20162 MATARTÍMINN Notaleg stemning Opið er á Borðinu þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 11-20. Mynd | Rut Alvöru kanilsnúðar Sæþór sætabrauðs- sérfræðingur leggur lokahönd á mjúka snúðana. Mynd | Rut „Því er einnig hægt að grípa hráefn i á Borðinu útbúa dásam- lega máltíð hei ma fyr- ir þig og þína.“ Heilnæm máltíð í amstri dagsins Notaleg hverfis- og fjölskyldustemning. Unnið í samstarfi við Borðið Við erum tvenn hjón sem eigum og rekum Borðið, erum bæði með tvö börn og okkur fannst vanta stað þar sem hægt væri að ná sér í góð- an mat sem alla fjölskyldumeðlimi langar í,“ segir Rakel Eva Sæv- arsdóttir, einn eigenda Borðsins. „Okkar markmið var að leysa þetta vandamál sem allar fjölskyldur glíma við í lok vinnudagsins; hvað eigum við að hafa í matinn?“ Borðið er með fastan kvöldseðil fjórar vikur í senn sem samanstendur af fisk-, kjöt- og grænmetisrétti og matarmiklu salati, auk þess er alltaf hollur og góður barnaréttur á boðstólum. Kvöldmaturinn er tilbúinn kl. 17 virka daga. Hádegin eru einnig annasöm á Borðinu og er alltaf hægt að stóla á heilnæman há- degisverð í amstri dagsins og mælir Borðið með að enda allar máltíðir með sætabrauði og kaffi- bolla. Mikil áhersla er á að bjóða fólki upp á að grípa með sér máltíðina heim, bæði í hádeginu og á kvöldin. „Þó þykir okkur afskaplega gaman að fylla salinn af fjölskyldum og vinum sem njóta matarins í nota- legu umhverfi. Við erum ekki með vínveitingaleyfi en hvetjum fólk til þess að koma með vínið eða bjórinn með sér og borga sanngjarnt þjón- ustugjald fyrir,“ segir Rakel. Um helgar er boðið upp á bröns og kvöldseðil í sparifötunum og hefur myndast notaleg fjöl- skyldu- og hverfis- stemning í kringum brönsinn. Vinahópar og fjölskyldur eru að mæla sér mót hjá okkur, láta okkur sjá um matar- gerðina og njóta samver- unnar á meðan. „Svo erum við með tvo frábæra sætabrauðssér- fræðinga sem búa til allar kökur og sætabrauð frá grunni,“ segir Rakel. „Sæþór kemur frá Bandaríkjunum og kann aldeilis að búa til gómsæt- ar kökur og fleira sætabrauð og svo er það hún Catherine sem er lærður „pâtissier“ frá Frakklandi og býr meðal annars til guðdómlegar makkarónur sem að sjálfsögðu fást á Borðinu,“ heldur Rakel áfram. Á Borðinu er einnig að finna sæl- keraverslun með vörum frá Ítalíu, Bretlandi og Frakklandi. „Við erum með frábært pasta, sósur, pesto, svaladrykki og góðu ólífuolíuna okkar frá Ítalíu. Kex, sultur, pate, chutney og súkkulaði frá Bretlandi. Hágæða pottajárnspotta frá Staub í Frakklandi og loks skemmtilegt úrval af chilli, baunum, masa harina, marineringum og fleira í mexíkóska matargerð. Því er einnig hægt að grípa hráefni á Borðinu útbúa dá- samlega máltíð heima fyrir þig og þína.“ Aðgengið að Borðinu er gott og lítið mál er að finna bílastæði fyrir framan; það er því auðvelt bæði að koma og fara á sem skemmstan hátt akandi. Senn líður að jólabakstri og annarri dásemdar- matreiðslu sem fylgir hátíðunum. Best er að hafa vaðið fyrir neðan sig og svunta sig upp til að forðast subbugang. Matartíminn fór á stúfana og fann nokkrar flottar svuntur sem sóma sér vel í hvaða eldhúsi sem er. Svuntur fyrir jólastússið FERM LIVING 10.900 kr. Hrím eldhús. KRUMMI 5.900 kr. Epal. BOTANICA 6.590 kr. Kokka VINTER MITTISSVUNTA 995 kr. IKEA 20. ALDAR SVUNTA 4.990 kr. LÍN design JESSIE STEELE 5.390 kr. Allt í köku PARKER 7.950 kr. Kokka Kryddostur VILLIJURTIR WILD HERB CHEESE Kryddostur með villijurtum Frábær á ostabakkann, í sósur og aðra matargerð NÝTT H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.