Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 22.10.2016, Síða 49

Fréttatíminn - 22.10.2016, Síða 49
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2016 5 MATARTÍMINN Öll fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld verður lifandi hátíðartónlist meðan hátíðarmatseðillinn er í gangi og SunnuDjass með hátíðarívafi öll sunnudagskvöld. Á hverju sunnudagskvöldi er djasskvöld á Bryggjunni og svífur þá dásamlegur djassinn yfir vötnum frá okkar fremstu tónlistarmönnum á þessu sviði. Söngvirtúósinn og hjartaknúsarinn Valdimar Guðmunds- son og tríó Bryggjunnar munu leiða saman hesta sína nk. sunnudag, en herlegheitin hefjast 20.00 og frítt er inn. Ásamt því sem tríóið mun leika ómþýðan djass, þá mun Valdimar stíga á stokk og syngja nokkur af hans eftirlætislögum, bæði innlend og er- lend. Þar verður sótt í smiðju Chets Baker og 12 september, svo nokkur nöfn séu hér nefnd til hægðarauka. Á boðstólnum er eftir sem áður ljúffengur matur af barseðli auk valin- kunna bjórtegunda sem bruggaðar eru á staðnum og er eldhús Bryggj- unnar opið til 22.00. Lifandi hátíðartónlist SunnuDjass á Bryggjunni Brugghúsi Fagnaðarerindið í farvegi Í langan tíma hafa bruggmeistarar Bryggjunnar Brugghúss þróað Fagnaðarerindið sem mun berast innan tíðar. Mynd | Rut Fagnaðarerindið á Bryggjunni brugghúsi Jólabjórinn væntanlegur á dælurnar og í vínbúðir. Unnið í samstarfi við Bryggjuna brugghús Tími jólabjórsins fer að renna upp og margan bjóráhugamanninn ef-laust farið að klæja í fingurna í biðinni eftir bjórnum. Bryggjan Brugghús lætur sig ekki í vanta í jólabjóraflóðið en bjórinn Fagnaðarerindið mun fylla dælur Bryggjunnar þann 10. nóvember og verður haldið upp á komuna með veglegum hætti. Bjórinn er vissulega með hátíð- legu bragði eins og almennilegra jólabjóra er von og vísa; þurrk- aðir ávextir og sæta frá ristuðu byggi einkennir þennan myrka en notalega bjór. Dökkur eins og nóttin en ljúfur í munni. Bjórstíll- inn er belgískur dubbel. Jólamatseðillinn hefur verið kunngjörður og eru ýmsar krásir á boðstólum. Hægt er að panta jólaplattann sem hefur lengi ver- ið í þróun til þess að finna hina fullkomnu samsetningu: • Reykt önd döðlur, appelsína • Tvíreykt lamb reykt í eldhúsinu okkar, piparrót, majónes • Pale ale grafinn lax kryddmajónes • Síld og rúgbrauð Jólaplattinn er á 3900 kr. Einnig er hægt að fá stærri út- gáfu af jólamatseðlinum og við hann bætist lambaprime með öllu meðlæti og kanilís í eftirrétt með piparkökumulningi, þurrkuðum trönuberjum og ganache úr 66% súkkulaði frá Omnom.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.