Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 22.10.2016, Side 52

Fréttatíminn - 22.10.2016, Side 52
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 20168 MATARTÍMINN Hollt og gott í hádeginu Notalegt umhverfi og bragðgóðar kræsingar fyrir alla. Unnið í samstarfi við Spíruna Spíran í Garðheimum er lítið og notalegt veitingahús sem er opið í hádeginu á virkum dögum. „Við stílum inn á að vera með þrjá einfalda rétti hvern dag; einn vegan eða grænmetisrétt, einn kjötrétt og einn fiskrétt,“ segir Rúnar Gísla- son. Reynt er að hafa mismunandi rétti milli daga og fjölbreytnina í fyrirrúmi. „Á föstudögum för- um við aðeins út fyrir rammann en þá bjóðum við upp á heilgrill- aða nautamjöðm sem við eldum í sólarhring og erum með berna- ise með og allan pakkann. Þetta ætluðum við bara að prófa fyrst en hefur vakið svo mikla lukku að föstudagarnir eru orðnir vinsæl- ustu dagarnir hjá okkur,“ segir Rúnar. Kokkarnir á Spírunni gera allt frá grunni og velja hráefnið af kostgæfni. „Við bökum brauðið sjálf og súpan er matarmikil og hveitilaus. Þemað er að bjóða upp á hollt hráefni og bragðgott.“ Nýlega hóf Spíran þjónustu við fyrirtæki og sendir mat til fyr- irtækja og hefur sú þjónusta reynst afar vel. Einnig getur Spíran tekið á móti fyrirtækjum og öðrum hópum á staðinn enda plássið lúmskt mikið. „Það er pláss fyrir rúmlega 60 manns í sæti, staðurinn leynir á sér þó að hann virki lítill.“ Spíran opnar klukkan 11 og þá er hægt að panta Spírulokuna sem er með kjúklingi, lárperu og dökku brauði eða vefjuna sem allir falla fyrir; með döðlumauki, kjúklingi og grænmeti. Heiti maturinn er síðan borinn fram klukkan 11.30. „Svo erum við alltaf með þrjú salöt sem fylgja með heitu rétt- unum. Við reynum að vera alltaf með eitt grænt salat og rótarsalat og erum með mismunandi útgáfur milli daga. Þetta eru verulega góð, holl og bragðmikil salöt.“ Alltaf er gott að fá sér sætan bita eftir matinn eða í kaffinu og það er nóg úrval af slíkum bitum á Spírunni. Hafrakökur, döðlukrútt, hnetustykki og möffins – sörur og súkkulaðibrownie. „Þegar líður á vikuna hendum við svo alltaf í marengs sem rennur ljúflega nið- ur,“ segir Rúnar og bætir því við að sjálfsögðu sé hægt að fá góð- an kaffisopa með. Nánari upplýsingar og matseðla má finna á www.spiran.is og Spíran er líka á Facebook. Þór Erlingsson Yfirkokkur á Spírunni. Mynd | Hari

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.