Morgunblaðið - 31.12.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.12.2016, Blaðsíða 19
www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Mörkinni 6 | 108 Reykjavík S. 568 2533 | www.fi.is facebook.com/ferdafelagislands Aftur af stað Aftur af stað er endurhæfingarverkefni FÍ, sérstaklega hugsað fyrir þá sem vilja fara af stað í hreyfingu og útiveru eftir veikindi, slys, meiðsl eða langvarandi hreyfingarleysi. Aðaláherslan er á göngur á jafnsléttu auk þess sem gerðar eru ýmsar liðkandi æfingar ásamt stöðu- og styrktar- æfingum. Gengið er á mánudags- og miðvikudagskvöldum á mismunandi stöðum á höfuð- borgarsvæðinu. Þriðja hvern laugardag er svo farið í létta fjallgöngu. Innifalið í verkefninu eru líka reglulegir sundleikfimitímar og jóga. Verkefnið er einstaklingsmiðað og mikil áhersla lögð á að hver og einn finni sinn hraða. Verkefnið varir í fjóra mánuði, hefst mánudaginn 16. janúar og lýkur mánudaginn 15. maí. Umsjónarmenn eru Bjarney Gunnarsdóttir og Steinunn Leifsdóttir. Kynningarfundur: Fimmtud. 12. janúar kl. 20 í risi FÍ, Mörkinni 6. Alla leið Ferðafélag Íslands býður upp á æfingaáætlun sem miðar að því að undirbúa þátttakendur fyrir langa og spennandi jöklagöngu að vori. Undirbúningurinn er þríþættur og felst í vikulegum fjall- göngum, sem stigmagnast að erfiðleikastigi, alhliða ferðafræðslu um klæðnað, búnað, næringu, öryggismál og jöklagöngur og svo vikulegum þrekæfingum. Þátttakendur velja að ganga á eitt af fjórum eftirtöldum fjöllum: Eyjafjallajökul (þveraður frá Grýtutindi að Seljavöllum) 6. maí, Hrútsfjallstinda 20. maí, Hvannadalshnúk 3. júní og Birnudalstind 17. júní. Ef illa viðrar uppgönguhelgarnar gæti farið svo að göngunum yrði frestað um viku. Athugið að í boði er að ganga á alla fjóra tindana gegn aukagjaldi. Umsjónarmaður er Hjalti Björnsson. Kynningarfundur: Þriðjud. 10. janúar kl. 19:45 í sal FÍ, Mörkinni 6. Eitt fjall á mánuði - Léttfeti Þetta verkefni er hugsað fyrir þá sem vilja koma sér af stað að nýju eftir hlé sem og alla þá sem vilja koma reglulegum, rólegum fjallgöngum inn á dagatalið sitt. Farið er í 12 fjallgöngur, yfirleitt fyrsta laugardag í hverjum mánuði út árið. Fjöllin sem fyrir valinu verða eru í léttari kantinum. Meðal annars verður gengið á ýmsa tinda í Esjunni, Ingólfsfjall og Keili. Umsjónarmenn eru Ævar og Örvar Aðalsteinssynir. Hámarksfjöldi er 50. Kynningarfundur: Fimmtud. 4. janúar kl. 20 í sal FÍ í Mörkinni 6. Eitt fjall á mánuði - Fótfrár Þetta verkefni er tilvalið fyrir þá sem hafa einhverja reynslu af fjallgöngum þar sem þessi hópur ræðst til uppgöngu á erfiðari og meira krefjandi fjöll. Þátttakendur þurfa því að vera í nokkuð góðu gönguformi. Alls verður gengið á 12 fjöll, yfirleitt þriðja laugardag í hverjum mánuði út árið. Göngurnar verða heldur hraðari og meira krefjandi. Meðal annars verður gengið á ýmsa tinda í Esjunni, Baulu og Þórisjökul. Umsjónarmenn eru Ævar og Örvar Aðalsteinssynir. Hámarksfjöldi er 50. Kynningarfundur: Fimmtud. 4. janúar kl. 20 í sal FÍ í Mörkinni 6. Nú um áramót er góður tími til að stíga á stokk og strengja heit um fögur fyrirheit, fjallgöngur, útiveru og þátttöku í góðum félagsskap þegar ferðast er um í náttúru landsins. Ferðafélag Ís lands sendir landsm önnum bestu óskir u m gleðilegt og farsælt ko mandi ár. Þökkum ánæ gjulega samfylgd á á rinu 2016. FJALLAVERKEFNI OG HREYFIHÓPAR FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS Eitt fjall á mánuði - Þrautseigur Þeim sem vilja ganga meira og hittast oftar gefst kostur á að taka þátt í báðum verkefnunum hér að ofan og ganga þá á alls 24 fjöll yfir árið, yfirleitt bæði fyrsta og þriðja laugardag í hverjum mánuði. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðu gönguformi því bæði er gengið á létt og krefjandi fjöll. Umsjónarmenn eru Ævar og Örvar Aðalsteinssynir. Hámarksfjöldi er 50. Kynningarfundur: Fimmtud. 4. janúar kl. 20 í sal FÍ í Mörkinni 6. Fyrsta skrefið / Næsta skrefið Í verkefnunum Fyrsta skrefið og Næsta skrefið er gengið á fjöll einu sinni í viku. Verkefnið er hugsað fyrir þá sem vilja taka fyrstu skrefin í fjallgöngu þar sem áhersla er lögð á að ganga rólega á létt og þægileg fjöll. Verkefnið hentar einnig öllum fjallageitum sem vilja ganga rólega og njóta útiveru og góðs félagsskapar. Sérstök áhersla er á að njóta en ekki þjóta. Í ferðunum er fræðsla, söngur og æfingaprógrammið Haukurinn er ómissandi. Fyrsta skrefið er vorverkefni sem stendur frá byrjun janúar til maí. Næsta skrefið er haustverkefni sem stendur frá september til desember. Umsjónarmenn eru Reynir Traustason, Ólafur Sveinsson og Auður Kjartansdóttir. Kynningarfundur: Fimmtud. 5. janúar kl. 20 í sal FÍ Mörkinni 6. Ferðafélag Íslands heldur úti nokkrum fjallaverkefnum og hreyfihópum sem allir eiga það sammerkt að vera lokuð verkefni sem ganga út á reglulegar fjallgöngur, gönguferðir eða annars konar heilsubót. Verkefnin eru af ýmsum toga og við flestra hæfi. Sum standa allt árið en önnur byrja annað hvort í upphafi árs eða að hausti þegar haldnir eru kynningarfundir og þátttakendur fá í hendurnar fyrirfram ákveðna dagskrá. Meginmarkmið þessara hópa er útivera, náttúruupplifun, gleði og góður félagsskapur. Eins og í öllum ferðum Ferðafélags Íslands er mikil áhersla lögð á fræðslu og öryggi. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS VAR STOFNAÐ 1927 OG VERÐUR ÞVÍ 90 ÁRA 2017. FRAMUNDAN ER ÞVÍ AFMÆLISÁR MEÐ TILHEYRANDI AFMÆLISFERÐUM OG FAGNAÐI. FERÐAÁÆTLUN FÍ 2017 ER DREIFT TIL FÉLAGSMANNA 6. JANÚAR. BÓKANIR Í FERÐIR HEFJAST 9. JANÚAR. Valitor er aðalsamstarfsaðili Ferðafélags Íslands Skráðu þig inn – drífðu þig út
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.