Morgunblaðið - 31.12.2016, Blaðsíða 47
Morgunblaðið/Ófeigur
Forsetakjör Guðni Th.
Jóhannesson var kjör-
inn forseti Íslands í júní
síðastliðnum. Forsetinn
nýkjörni hlaut blíðar
viðtökur í þessari skóla-
heimsókn um haustið.
47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
4.11. | Sverrir Jan Norðfjörð
Afhendingaröryggi,
valkostir og umræðan
um Suðurnesjalínu 2
Mikilvægt er að til staðar séu
að lágmarki tvær tengingar
við Suðurnes til að afhend-
ingaröryggi á rafmagni á
svæðinu sé ásættanlegt.
5.11. | Sveinn Einarsson
Um leiklistina í
Ríkissjónvarpinu
Yfirlitsþættir af þessu tagi
krefjast rannsóknarvinnu,
byggðrar á raunverulegum
staðreyndum en ekki hug-
lægri sófaspeki.
7.11. | Arnór G. Ragnarsson
Eldri borgarar
hraktir út af
vinnumarkaðnum
Ný lög um lífeyrisréttindi
voru sam- þykkt á Alþingi
fyrir nokkrum vikum. Mig
grunar að margir sem þar
ýttu á græna takkann hafi
ekki vitað hvað þeir voru að sam-
þykkja.
8.11. | Unnur H. Jóhannsdóttir
Ég er Breiðholtsbarn
Þrátt fyrir að vera aðeins sex
ára þegar mamma varð ein-
stæð móðir skynjaði ég þá
strax erfiðleikana sem heim-
ilið átti við að etja til að ná
endum saman.
9.11. | Einar Páll Gunnarsson
Innherjar í pólitík
Stjórnarmyndunarviðræður
búa til innherjaupplýsingar
sem geta dreifst víða áður
en þær verða opinberar. Þó
er engin leið að vita hversu
margir hafa aðgang að þessum upplýs-
ingum um framvindu mála í stjórn-
armyndunarviðræðum sem almenningur
hefur ekki.
10.11. | Hjálmar Magnússon
Viljum við her í landinu
já, hjálpræðisher
Í þessu tilviki hefði verið
meiri reisn yfir því að verð-
launa Hjálpræðisherinn fyrir
gott líknarstarf síðustu
hundrað árin.
11.11. | Reynir Arngrímsson
Erfðaheilbrigðisþjónusta
Kominn er tími á aðgerða-
áætlun um framtíð erfðaheil-
brigðisþjónustu hérlendis.
12.11. | Heiðar Guðjónsson
Seðlabankinn tapar
öllu eigin fé og lætur
sem ekkert sé
Ef Seðlabankinn ætlar ekki
að breyta út af hávaxtastefnu
sinni mun krónan styrkjast
áfram og tap af gjaldeyr-
isforða og vaxtamun aukast
enn frekar.
14.11. | Halldór Björnsson
Gróðurhúsaáhrif
og hlýnun jarðar
Aðgerðir til að draga úr
losun og aðlögun að þeim
áhrifum loftslagsbreytinga
sem nú þegar eru óumflýj-
anleg munu verða við-
fangsefni þjóðarinnar á næstu áratug-
um.
16.11. | Emil Thoroddsen
Höfðingleg gjöf til
Gigtarfélags Íslands
Gigtarfélagi Íslands hefur
borist höfðingleg gjöf.
Stjórn fyrirtækisins John
Lindsay hf. ákvað í tilefni
af 90 ára afmæli fyrirtæk-
isins að færa Gigtarfélag-
inu 1.000.000 kr. að gjöf.
17.11. | Jón Gerald Sullenberger
Opið bréf til Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar
Sé haft í huga að fjöldi manna
situr núna í fangelsi vegna
Stím-viðskiptanna hlýtur það
að vera eðlileg krafa að þetta
sé upplýst, Jón Ásgeir.
18.11. | Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir
Réttlætiskennd
borgarstjóra
Það sem Dagur nefndi hins
vegar ekki er að nú í sumar
hækkuðu heildarlaun hans
um 305.176 kr. án þess að
nokkrar fréttir væru sagðar af
því.
19.11. | Svavar Svavarsson
Bókhaldsbrella ögrun
við ímynd Íslands
Upprunaábyrgðir raforku
virðast því þjóna þeim til-
gangi að skrökva á lögleg-
an hátt að neytendum að
tiltekin raforka sé upp-
runnin frá endurnýjanlegum orku-
gjafa.
21.11. | Ögmundur Jónasson
Landspítali og Háskóli
Íslands virða Alþingi
að vettugi
En ekki þykir mér þessi
framganga Landspítala há-
skólasjúkrahúss og Háskóla
Íslands vera þeim til vegs-
auka. Hún stuðlar ekki að
vönduðum og yfirveguðum vinnubrögð-
um þegar kemur að rannsókn sem bein-
ist að þessum virðulegu stofnunum
sjálfum.
22.11. | Kristján Guðmundsson
Stjórnarmyndun
stjórnleysi
Ef horft er til fortíðar þá mun
íhaldsflokkurinn Viðreisn
ganga inn í Sjálfstæðisflokk-
inn á svipaðan hátt og gerð-
ist 25. maí 1929 þegar
Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn
sameinuðust.
24.11. | Óli Anton Bieltvedt
Dýravernd er mælikvarði
á siðferði þjóða
10 eða 12 flokkar buðu fram,
en ég heyrði engan frambjóð-
anda, í neinum flokki, orða
dýra- eða náttúruvernd sem
stefnumál.
25.11. | Ásgeir Logi Ásgeirsson
Hinir vammlausu
Ekki þar fyrir að þeir sem
eiga kvóta finna ekki síður
fyrir þessari peninga-
málastefnu bankans, þeir fá
jafnfáar krónur fyrir sína er-
lendu mynt og við hinir.
26.11. | Rósa Guðbjartsdóttir
Lægri skattar og bjartari
tímar í Hafnarfirði
Lækkunin er skýr vísbending
um að nú hefur birt yfir
rekstri Hafnarfjarðarbæjar
eftir mörg erfið ár.
28.11. | Jóhann J. Ólafsson
Stórkostlegasta
þjóðnýting
Íslandssögunnar
Ég er ekki viss um að allir hafi
gert sér grein fyrir að með til-
lögum stjórnlagaráðs um að
náttúruauðlindir verði rík-
iseign, er stefnt að meiri þjóð-
nýtingu en nokkru sinni hefur átt sér stað
hér á landi.
29.11. | Sigurbjörn Þorkelsson
Friður, líf og framtíð
Þótt ég hafi valið það að vera
kristinnar trúar þýðir það
ekki að ég telji mig hafa ein-
hverja yfirburði yfir aðra eða
telji mig vita eða skilja eitt-
hvað betur en aðrir.
30.11. | Matthildur Guðný
Guðmundsdóttir
Björgunarafrek við
Straumneshlíð
30. nóvember 1916
Látramenn eru nú sem fyrr
glaðir, stoltir og þakklátir fyr-
ir að allir komust heilir að
landi eftir þann mikla hild-
arleik sem háður var 30. nóv-
ember 1916, það var mikil guðsgjöf eins
og Látramenn sögðu þá.
3.12. | Vilborg Auður Ísleifsdóttir Bickel
Harmsaga lítillar götu
í miðbæ Reykjavíkur
Miðað við fyrra deiliskipu-
lag hefur deiliskipulag 2013
umbylt öllum gildum. Í
norðanverðu Skólavörðu-
holti rísa húskumbaldar. Umhverfi borið
ofurliði.
5.12. | Karl Jóhann Ormsson
Við þurfum kosningar
að vori 2017
Spyrja skal almenning aftur
hverjir brugðust í stjórn-
armyndunarviðræðum,
hvernig og af hverju.
6.12. | Skúli Magnússon
Í aldarminningu
Kristjáns Eldjárns
Bréf Kristjáns til mín frá
Bessastaðaárunum urðu
styttri en áður sökum
anna hans, en ávallt jafn
hlýleg og áður.
8.12. | Jón Magnússon
Brutu villimennirnir
borgarhliðið?
Trump virðist ekki hafa
áhuga eða þekkingu á póli-
tískri hugmyndafræði.
Hvers má vænta er því
mun óræðara en þegar Ro-
nald Reagan var kosinn.
9.12. | Magnús Ingvar Magnússon
Hin víðtæka refsiábyrgð
samkeppnislaga
Refsiábyrgð laganna nær því
ekki aðeins til þess þegar
keppinautar eiga í tvíhliða
samskiptum sín á milli held-
ur einnig til þess þegar
starfsmenn fyrirtækis eiga með sér sam-
skipti innan fyrirtækisins.
9.12. | Friðrik I. Óskarsson
Höfum það sem sannara reynist
Þau hjá Kastljósi ætla hrein-
lega að ganga frá fólki þegar
þau eru að spyrja viðmæl-
endur sína. RÚV er ekki út-
varp okkar allra landsmanna
heldur hreint og klárt póli-
tískt vinstrisinnaður fjölmiðill.
12.12. | Emil Thoroddsen
Heilbrigðiskerfið okkar
Kostnaðarþátttaka sjúklinga
við heilbrigðisþjónustu er of
há. Þingmenn, grípið tæki-
færið. Afgreiðið fjárlög sem
færa okkur bætta heilbrigð-
isþjónustu.
13.12. | Vala Valtýsdóttir
Skattagrið Betra
er einn fugl í hendi
en tveir í skógi
Með því gefa kost á skat-
tagriðum, a.m.k. í ákveðinn
tíma, er hægt að koma
þessum fjármunum hingað
til lands, borga af þeim
rétta skatta og álag en sleppa ákæru-
meðferð.
14.12. | Ingrid Kuhlman
Faðmlög eru
undrameðal
Faðmlög hafa engar auka-
verkanir og ekki þarf lyfja-
ávísun frá lækni. Þau eru
einfaldlega undrameðal.
15.12. | Þorvaldur Víðisson
Um vettvangsferðir
skólabarna á aðventu
Mér finnst orðið mismunun í
þessu samhengi mjög stórt
orð. Við erum að tala um
eina vettvangsferð, samveru
á fallegum stað með sögu,
söng og kertum. Mér finnst
illa farið með þetta mikilvæga orð þegar
það er notað í þessu samhengi.
16.12. | Ragnar Frank Kristjánsson
Votlendi og vegagerð um
Hornafjarðarfljót
Hvernig getur sveitarfélagið,
Skipulagsstofnun og Vega-
gerðin samþykkt fyrirhugaða
framkvæmd yfir Hornafjörð
þar sem augljós nátt-
úruspjöll verða?
17.12. | Sigurður G. Thoroddsen
PISA Er samanburður
sanngjarn?
Það er aðeins á Íslandi og í
Lúxemborg og nokkrum öðr-
um fámennum ríkjum sem
próftakan er framkvæmd
með svo almennum hætti.
19.12. | Guðjón E. Hreinberg
Trúarofsóknir hinna trúlausu
Eftir því sem ég best veit, án
þess að hafa aðgang að op-
inberri tölfræði, eru meira en
90% íslenskra barna skírð til
kristinnar trúar og langflest
þeirra velja að fermast til þeirrar trúar.
20.12. | Pétur Magnússon
Verðum að fjölga
hjúkrunarrýmum fyrir aldraða
Staðreyndin er sú að í heild
hefur hjúkrunar- og dval-
arrýmum verið fækkað um
300 á undanförnum tíu árum
á sama tíma og þörfin hefur
aukist ár frá ári.
21.12. | Ingunn Björnsdóttir
Tíu þúsund óafgreiddar
amfetamíntöflur
Ofskráðu amfetamíntöflurnar
eru óafgreiddar enn, bæði í
þeim skilningi að enginn
sjúklingur hefur fengið þær
og enginn læknir ávísað þeim
22.12. | Helgi K. Hjálmsson
Hættum að refsa fyrir
ráðdeild og sparsemi
Við eigum að sjá sóma okkar
í því að gera ævikvöld okkar
eldri borgara og öryrkja fjár-
hagslega áhyggjulaust.
23.12. | Erna Bjarnadóttir
Má grípa til aðgerða til verndar
heilsu manna og dýra á grund-
velli EES-samningsins?
EFTA-dómstóllinn felldi úr-
skurð sinn 1. febrúar 2016 og
var niðurstaða hans sú að
einstök EES-ríki hefðu ekki
frjálsar hendur um setningu
reglna um innflutning hrárrar kjötvöru.
24.12. | Geir R. Andersen
Sundabrautin og
þverun Skerjafjarðar
Merkilegt hve samgöngumálin
hafa vafist upp í erfiðleika, svo
mikilvæg sem þau eru eyþjóð,
en ættu að vera í forgangi inn-
viðaverkefna þjóðarinnar.
27.12. | Lárus M.K. Ólafsson
Samgöngur í allskonar borg
SVÞ skora því eindregið á
borgaryfirvöld að sýna vilja í
verki við það að takast á við
samgöngumál í borginni með
hagsmuni allra að leiðarljósi.
28.12. | Jóhannes Loftsson
Lifi frelsið
Öryggisbraut Reykjavík-
urflugvallar var lokað á árinu
á sama tíma og borgin gerð-
ist hluthafi í hraðlest til
Keflavíkur.
29.12. | Guðjón Svarfdal Brjánsson
Áveðurs í
heilbrigðisþjónustu
Enginn fer í grafgötur um að
Landspítali býr nú við þrengri
fjárhag en stjórnendur sjálfir
kjósa.
30.12. | Dagrún Hjartardóttir
Tónlistarkennarar
samningslausir
í fjórtán mánuði
Samningsaðilum hefur á
tæpum 14 mánuðum ekki
tekist að taka til efnislegrar
umfjöllunar eða vinna úr
neinum af meginmarkmiðum
og áherslum FT.