Morgunblaðið - 31.12.2016, Blaðsíða 46
46 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2016
6.9. | Birgir Guðjónsson
Háskóli Íslands
og plastbarkinn
Fróðlegt verður í hvaða sal
Háskóli Íslands gerir grein
fyrir þátttökunni og hversu
lengi eigi að njóta dóm-
greindar og forystu íslenskra
þátttakenda.
7.9. | Sveinn Óskar Sigurðsson
Verndum kristin gildi
kærleika og sátt
Íslenska þjóðkirkjan hefur
orðið fyrir margvíslegum
árásum og undirmálum.
Hvorki er slíkt maklegt né
heillavænlegt.
8.9. | Harpa Njáls
Hvert er markmið breytinga
á lögum um kjör aldraðra?
Ljóst er að eftirlaunafólk
verður í verri stöðu ef frum-
varpið verður að lögum og
skrefið stutt í skort og fá-
tækt.
9.9. | Ómar Benediktsson
Um Farice og gagnaver
Farice sér þessa aukningu í
aukinni bandvíddarnotkun á
strengjum félagsins og eru
gagnaver orðin stærri not-
endur en allur íslenski mark-
aðurinn.
10.9. | Sverrir Ólafsson
Ákæruvaldinu ber að gæta að
gögnum sem eru ákærðum
manni til hagsbóta
Þrátt fyrir útbreidda andúð á
bankamönnum er mikilvægt
að hún yfirbugi ekki virð-
inguna, sem við flest viljum
bera, fyrir réttarkerfi lands-
ins.
12.9. | Haukur Ingibergsson
Uppfærum lífeyriskerfi
eldri borgara 1.1. 2017
Enginn þingmaður getur vik-
ist undan því að ganga hreint
til verks og afgreiða breyt-
ingar á lögum um almanna-
tryggingar áður en efnt er til
kosninga.
13.9. | Friðrik Larsen
Reynsla sem skilar sér
Rétt eins og verkfræðing-
urinn þarf að skilja verklega
þætti orkunýtingar þarf
markaðsfræðingurinn að
skilja þarfir, hugsanir og
vilja viðskiptavina orkufyrirtækjanna.
14.9. | Sigurður Friðleifsson
Búvöruorkuskiptasamningur
Hvernig væri að gera svip-
aðan samning um stuðning
við innleiðingu innlendrar
orku í samgöngum og sjávar-
útvegi?
15.9. | Jónas Haraldsson
Ítrekuð áskorun til
kínverska sendiráðsins
Húsið sjálft mun með sama
framhaldi halda áfram að
grotna niður og ástand
garðsins er orðið skelfilegt,
eins og menn geta séð með
eigin augum.
17.9. | Sigríður Ólafsdóttir
Af búvörusamningum
Slíkt ákvæði á í fyrsta lagi
ekki heima í búvörulögum
heldur í lögum um velferð
dýra og það er búið að setja
þetta ákvæði inn þar.
20.9. | Kristófer Tómasson
Landbúnaður
allra landsmanna
Rekstrareiningar þurfa að
ná lágmarksstærð til að
hægt sé að horfa til fram-
tíðar í búrekstri hér á landi.
Vel rekin fjölskyldubú hafa í
gegnum árin verið farsælt form bú-
rekstrar.
21.9. | Hjálmar Árnason
Burt með skólastofurnar
Skólastofurnar halda skóla-
starfi föstu í viðjum vanans
og eiga sinn þátt í að halda
hefðbundnum kennsluhátt-
um jafn úreltum og raun ber
vitni.
22.9. | Sverrir Ólafsson
Raunir Landsnets
Og svo er ráðherra orkumála,
sem ber yfirábyrgð á öllu
saman, fokinn úr pólitík út í
veður og vind vegna lélegs
fylgis. Fleiri mættu fjúka.
23.9. | Guðmundur Oddsson
Nú borgum við
niður skuldir
Gott er að borga niður skuldir,
en ef það er á kostnað þess
að endurbæta og laga okkar
helstu grunnstoðir, þá er það
heldur döpur framtíðarsýn.
24.9. | Arnar Þór Jónsson
Fulltrúalýðræði
Það er holur hljómur í lúðra-
blæstri heils þingflokks um
upplýsta ákvörðunartöku
þegar það slagorð er notað til
að réttlæta hjásetu.
27.9. | Björn Theódór Árnason
Að vera stoltur af því
sem vel er gert
Viljum við tónlistarmenn
þakka það sem vel er gert og
um leið þeim stjórn-
málamönnum sem komu að
ákvörðun um byggingu henn-
ar.
27.9. | Guðrún Kvaran
Ég ákvað að vera leiðinleg
Blár feldur með hvítum krossi
og rauðum krossi inni í hvíta
krossinum. Þannig lærði ég
að lýsa íslenska fánanum
þegar ég var skáti.
28.9. | Ólafur Þ. Jónsson
Það er draumur að
vera með dáta …
Eitthvað hlýtur að vera rotið
í lýðræðisríkinu Íslandi þeg-
ar einn ráðherra getur upp á
sitt eindæmi opnað allar
gáttir fyrir bandaríska hern-
um og fótum troðið fullveldi landsins.
29.9. | Þórdís Rúnarsdóttir
Heilsa óháð þyngd og holdafari?
Fjölmargir, sem hafa látið í
minni pokann fyrir megr-
unaræði nútímans þó að þeir
séu ekki með átröskun, hafa
brotið vítahringinn með HA-
ES.
30.9. | Skarphéðinn Guðmundsson
Þið munið hann Derras
Á þeim fimmtíu árum sem
liðin eru síðan fyrstu sjón-
varpsútsendingar hófust hef-
ur þjóðin sýnt það æ ofan í æ
að hún kýs framar öðru vand-
að íslenskt sjónvarpsefni.
1.10. | Össur Skarphéðinsson
EES kallar á nýja stjórnarskrá
Alþingi samþykkti nýlega
innleiðingu á tilskipun ESB
sem felur í sér meira framsal
á ríkisvaldi en dæmi eru til
um frá stofnun EES.
3.10. | Erling Freyr Guðmundsson
1.000 megabita
tengingar heimila
Þéttbýli Kópavogs verður
fulltengt Ljósleiðaranum
2017 og Hafnarfjörður og
Garðabær klárast fyrir árslok
2018.
4.10. | Geir Waage
Hvaðan kemur
mönnum vit?
Getur alþýða manna og alþingismenn
treyst upplýsingum embættismanna?
Getur það verið að ráðu-
neytin ljúgi beinlínis og rang-
færi upplýsingar?
5.10. | Logi Einarsson
Örstutt saga af ungri fjölskyldu
Samfylkingin vill hjálpa þess-
ari fjölskyldu. Við viljum
bjóða þeim fyrirframgreiddar
vaxtabætur til fimm ára; alls
þrjár milljónir króna.
6.10. | Óttar Guðjónsson
Ærandi þögn um innherja-
viðskipti formanns Viðreisnar
Þá vaknar spurningin hvort
hlutafjáraukninguna hafi borið
að með svo skyndilegum
hætti að formaður stjórnar
væri fullkomlega grunlaus um
að slíkt stæði til þegar hann og aðilar hon-
um tengdir seldu hlutabréf sín.
7.10. | Reynir Eyjólfsson
SagaPro dýrt og gagnslaust kukl
Samkvæmt nýrri rannsókn er
ekki hægt að halda öðru fram
um SagaPro-töflurnar en að
þær séu verkunarlausar, þ.e.
ómerkilegt, gagnslaust kukl.
8.10. | Lilja Alfreðsdóttir
Mitt á milli Moskvu og Washington
Markmið gestanna voru há-
leit, því stefna skyldi að mark-
vissri fækkun kjarnavopna í
útbólgnum vopnabúrum stór-
veldanna og leggja grunn að
þíðu í samskiptum ríkjanna eftir hart kulda-
kast í köldu stríði.
11.10. | Benedikt Jóhannesson
Róandi þögn
Mér er ljúft að upplýsa hann
um að eftirlitið hefur ekki
haft neitt samband við mig
út af þessu máli.
11.10. | Jóhanna María Sigmundsdóttir
Afkáraleg fyrirspurn?
Núna hverfa börn og ungar
stúlkur úr þessum búðum
nærri því á hverjum degi og
það er ekki vegna þess að
foreldrar þeirra eða ættingjar
hafi komið og sótt þau.
12.10. | Ásgerður Kr. Gylfadóttir
Heilbrigðisþjónusta
og landsbyggðin
Kannski myndi þessi staða
breytast ef afsláttur fengist
af námslánum við það að
starfa og búa úti á landi í
ákveðinn tíma eftir útskrift!
13.10. | Bryndís Haraldsdóttir
Borgarlína grundvöllur svæðis-
skipulags höfuðborgarsvæðisins
Niðurstöðurnar sýna að
breytingar á ferðavenjum
hafa meira vægi en auknar
framkvæmdir í því að draga
úr umferðarálagi.
14.10. | Kristinn Karl Brynjarsson
Lífseig lygi
Það afnam enginn auðlegð-
arskattinn nema þau lög sem
um hann giltu. Lög sem
Oddný tók sjálf þátt í að
koma í gegnum þingið á síð-
asta kjörtímabili og lagði sjálf
ríka áherslu á að yrðu ekki framlengd.
15.10. | Elliði Vignisson
Byggð þrífst best ef
fyrirtækjum heilsast vel
Eyjamenn eru stoltir af sjáv-
arútvegsfyrirtækjunum sínum.
Við erum stoltir af áherslu
þeirra á sjálfbærni, stoltir af
vilja þeirra til að efla byggð.
17.10. | Árni Páll Árnason
Alvörukjarabætur
til eldri borgara
Þegar kemur að kjörum eldri
borgara veit þjóðin hvar
hjarta Samfylkingarinnar
slær.
18.10. | Illugi Gunnarsson
Endurreisn
framhaldsskólans
Héðan í frá mun rekstur fram-
haldsskólanna batna ár frá ári,
þangað til framhaldsskólakerfið
á Íslandi verður komið í hóp
þeirra sem best eru fjármögnuð.
20.10. | Jónas Egilsson
Innlendur landbúnaður,
framtíðin og umhverfið
Þjóðarsátt verði um að ís-
lenskur landbúnaður geti um
alla framtíð tryggt fæðu-
öryggi landsmanna.
21.10. | Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Gjaldtaka af nýtingu auðlinda
Mikilvægt er að þeir sem
bjóða fram krafta sína til
starfa á Alþingi þekki grund-
vallarforsendur að baki veiði-
gjaldi.
22.10. | Sigurður Ingi Jóhannsson
Lækkum skatta
á meðallaun
Við framsóknarmenn viljum
nýta tekjuskattskerfið til að
draga úr byrðum milli-
tekjufólks en í þeim hópi eru
flestir launþegar.
24.10. | Jakob F. Magnússon
Til betri vegar
Sjaldan ef nokkru sinni hefur
ein ríkisstjórn sýnt langtíma-
baráttumálum tónlistarfólks
jafn mikinn áhuga, skilning
og velvilja.
25.10. | Ragnar Árnason
Launamunur kynjanna:
Mælingar og fullyrðingar
Sé það raunverulega ætlunin að
vinna bug á launamismunun þarf
að ráðast skipulega að rótum
vandans. Þeir sem snúast gegn
því að það sé gert eru í raun að
vinna að áframhaldandi launamismunun.
26.10. | Þorkell Sigurlaugsson
Lilja Alfreðsdóttir
ekki trúverðug í
Landspítalamálinu
Samkvæmt Framkvæmdasýsl-
u ríkisins og Skipulagsstofn-
unar er áætlað að afhending
Landspítala tefjist um 10-15 ár
ef byggt er á öðrum stað.
27.10. | Halldór Halldórsson
Vörumst sama meirihluta
í landsmálin og er í borginni
Með þessu sýna þessir fjórir
flokkar sem eru Píratar,
Vinstri græn, Björt framtíð og
Samfylking kjósendum lítils-
virðingu og villa um fyrir þeim.
28.10. | Katrín Jakobsdóttir
Nú er kosið um réttlátt samfélag
Í velferðinni felast verðmæti
fyrir venjulegt fólk og það er
sú velferð sem við viljum ein-
henda okkur í að byggja upp
á næstu árum.
29.10. | Vigdís Hauksdóttir
Jóhannesi Karli Sveinssyni
svarað – Íslandsbanki
Ríkið virðist þannig hafa gefið
eftir eiginfjáruppbyggingu bank-
ans meðan hann var í eigu þess.
Ríkið virðist einnig hafa gefið eft-
ir réttinn til að gera upp skuld
við gamla bankann á gengi samningsdags.
31.10. | Guðbjörg Linda Rafnsdóttir
Háskólar í hættu
Fyrir velferð komandi kynslóða
er gríðarlega mikilvægt að efla
háskólastarf á landinu svo það
standi jafnfætis því sem best
gerist í nágrannalöndunum.
1.11. | Óli Þór Ástvaldarson
Sjúkraflugið, landlæknir og
Reykjavíkurflugvöllur
Ég vil skora á landlækni að
flytja nú búferlum til Ak-
ureyrar um tíma og ráða sig
þar sem lækni á sjúkra-
flugvélina.
2.11. | Kjartan Jóhannesson
Er varasamt að gera samninga
við ríkið um lífeyrissjóðsmál?
Óréttlátt er að allar skerðingar og
kostnaður vegna forsendubrests
lendi bara á öðrum aðila samn-
ingsins, á lífeyrisþegum en ekki
aðildarfyrirtækjum.
4.11. | Þorsteinn Þorkelsson
Takk fyrir, ISAVIA
Í október varð alvarlegt rútu-
slys á Mosfellsheiði. Fumlaus
og skjót viðbrögð við-
bragðsaðila má þakka sam-
starfi á æfingum ISAVIA.