Fréttablaðið - 18.03.2017, Page 4

Fréttablaðið - 18.03.2017, Page 4
KOMDU OG PRUFAÐU Margar góðar reynsluakstursleiðir í nágrenni Mosfellsbæjar. Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 Opið í dag laugardag 12 - 16 Tökum vel á móti þér! Rjúkandi Lavazza kaffi á könnunni. Borgarstjóri vill viðræður við ríkið um uppbyggingu á sex ríkis- lóðum í Reykjavík vestan Kringlu- mýrarbrautar. Telur borgarstjóri að á lóðunum mætti reisa um 800 íbúðir. Þetta kemur fram í bréfi sem borgarstjóri sendi Þorsteini Víglundssyni, félags- og húsnæðis- málaráðherra, fyrr í mánuðinum. „Við erum opin fyrir því hvort við leysum þær til okkar eða hvort ríkið gangist sjálft fyrir því að láta byggja á þeim eða að við gerum það einfaldlega í samstarfi. En með þessu bréfi vildum við einfaldlega þrýsta á þetta,“ segir Dagur. Hann segist vilja að ríki og borg nái samstöðu um að þessar íbúðir fari til uppbyggingar með þarfir ungs fólks í huga. „Það er sá hópur sem stendur höllustum fæti á hús- næðismarkaði. Annars vegar eru þarna nokkrar lóðir sem myndu henta mjög vel til þess að byggja stúdentaíbúðir en ég sé líka fyrir mér að það væri áhugavert að þróa þarna litlar og meðalstórar íbúðir sem væru hugsaðar fyrir kaup- endamarkaðinn,“ segir Dagur. Ríki og borg myndu í sameiningu finna leiðir til að tryggja að sú uppbygg- ing færi fram án hagnaðarsjónar- miða, eða því sem næst. Í bréfi dags kemur fram að við- ræður við fyrri ríkisstjórn hafi leitt til þess að borgin keypti lóð við Elliðaárvog sem var i eigu Sem- entsverksmiðjunnar og lóð Kenn- araháskólans við Bólstaðarhlíð þar sem verður byggt upp fyrir stúd- enta og eldri borgara. Viðræður um aðra mikilvæga reiti hafi ekki skilað árangri. Dagur segir við Fréttablaðið að því hafi verið borið við að ríkinu sé óheimilt að heimila uppbyggingu á þessum lóðum nema hámarks- verð fáist fyrir. „Þá þarf hugsanlega lagabreytingu eða eitthvað en þá er bara að gera það. Borgin er að láta land undir uppbyggingu sem er ekki í hagnaðarskyni án þess að fá þar hámarksendurgjald fyrir,“ segir Dagur og vísar þar í lóðaút- Vill lóðir frá ríkinu undir íbúðir Borgarstjóri vill samstarf við ríkið um íbúðauppbyggingu á sex ríkislóðum innan borgarmarkanna. Íbúð- irnar verði byggðar upp án hagnaðarsjónarmiða. Fleiri en borgin þurfi að koma að átaki um uppbyggingu. 800 matjurtagarðar verða leigðir út á vegum Reykjavíkur- borgar í sumar. Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasam- bands Íslands sagði það ömur- lega staðreynd að árið 2017 væri dýrt að vera í íþróttum. Þetta sagði Sól- veig vegna frétta um að tvær systur hefðu ekki fengið leyfi til að keppa á fimleikamóti þar sem þær áttu ekki nýjustu keppnis- búningana sem kosta tæplega 50 þúsund krónur. Sólveig sagði alla þurfa að vera í eins búningum á mótum. Guðmundur Ármann Pétursson, framkvæmdastjóri Sólheima kvaðst ekki skilja hvernig einstaklingur sem þurfi sér- stakt búsetuúr- ræði sé ekki metinn nægilega fatlaður til að þurfa akstursþjónustu. Einstaklingur sem fékk ferðaþjónustu í sveitar- félagi sem hann bjó í var ekki metinn nógu fatlaður til að fá slíka þjónustu þegar hann flutti á Sólheima. Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæð- inu, greindi frá því á ráðstefnunni Álag og fjölgun slysa hjá lög- reglunni að á síðasta ári hefði alltaf einn af hverjum tíu lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu verið fjarverandi úr vinnu, það er 28 af 290. Sigríður sagði að lögreglu- mönnum fjölgaði ekki í samræmi við þarfir. Á sama tíma ykist álagið á þá sem fyrir væru. Þrjú í fréttum Fimleikar, akstur og fjarvistir Tölur vikunnar 12.03.2017 – 18.03.2017 Meiri uppbygging í Úlfarsárdal Á borgarráðsfundi í fyrradag spurðu borgarráðsfulltrúar út í tillögur um fjölgun lóða í Úlfarsárdal. Dagur segir að í píp- unum sé stækkun Úlfarsárdals upp á allt að 500 íbúðir „Þá er bæði verið að auka uppbyggingarmöguleika innan hverfisins og bæta við hverfið. Það er búið að vera í sam- ráði núna, meðal annars við íbúasamtökin, og ég á von á að það verði klár í auglýsingu á næstu vikum,“ segir Dagur við Frétta- blaðið. Borgarráðs- fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins telja þetta hins vegar litla fjölgun og benda á að íbúða- þörfin í dag sé um 5.000 íbúðir og svo 1.000 íbúðir daglega. hlutanir vegna stúdentaíbúða og vegna íbúða sem borgin hyggst reisa í samvinnu við verkalýðs- hreyfinguna. „Mér líst mjög vel á þetta. Þetta verður aldrei afgerandi en samt eitt púsluspilið í því sem við erum að vinna með í húsnæðismálunum,“ segir Þorsteinn Víglundsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. „Ég reikna með að þetta verði í þeim aðgerðum sem við munum leggja til við aðgerðahóp ríkisstjórnar- innar um húsnæðismál,“ segir Þor- steinn en nefndin mun móta  tíu tillögur til lausnar á húsnæðisvand- anum. jonhakon@frettabladid ✿ lóðirnar sex sem Borgarstjóri leggur til 1 Sjómannareitur 2 Landhelgisgæslulóð 3 SS-reitur 4 Borgarspítalareitur 5 Veðurstofusvæði 6 Suðurgata-Hringbraut 2 1 3 5 4 6 1.154 rekstrarleyfi sem heimila vín- veitingar af einhverju tagi eru í gildi á landsvísu. 21.000 fólksbílar, rúmlega, voru fluttir hingað til lands í fyrra. 72.000 Íslendingar höfðu skráð sig til þátttöku í blóðskimunarátakinu Blóðs- kimun til bjargar í vikunni. 38% karla drekka sig ölvaða einu sinni í mánuði eða oftar og um 23% kvenna.E 95% skaðlausara er að veipa en reykja samkvæmt rannsókn. 24,6% fólks á öldrunar- og hjúkrunarheim- ilum fá sterk geðlyf en eru þó ekki haldin geðsjúkdómum. SkjáSkot/Map.iS 1 8 . m a r s 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð 1 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 1 2 0 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 7 8 -9 F 6 C 1 C 7 8 -9 E 3 0 1 C 7 8 -9 C F 4 1 C 7 8 -9 B B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.